Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 90
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR58
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
13
3
500.000 KR. VERÐLÆKKUN!
VERÐBÓLGAN
BÍTUR EKKI Á NISSAN
Nissan X-Trail Sport
Verð aðeins 2.890.000 kr.
Nissan Patrol Elegance sjálfskiptur
Verð aðeins 4.790.000 kr.
Verð áður 5.290.000 kr.Verð áður 3.390.000 kr.
Önnur tilboð frá Nissan gilda ekki með þessu tilboði. Aukahlutir á mynd: 35" breyting krómgrind með kösturum og toppbogar.
BORGAÐU MINNA
FYRIR MEIRI LÚXUS
TAKMARKAÐ
MAGN!
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
EINTAK STRAX!TRYGGÐU ÞÉR
HANDBOLTI Metnaður Stjörnunnar
í kvennaboltanum kom berlega í
ljós í gær þegar félagið samdi
við fjölda leikmanna og þar af
tvo mjög sterka erlenda leik-
menn. Hlynur Sigmarsson, for-
maður handknattleiksdeildar
ÍBV, segir ekki hægt að keppa
við peninga sem Stjarnan eigi og
fullyrðir að útlensku stúlkurnar
- Florentina Grecu og Alina Pet-
rache - séu að fá virkilega vel
borgað fyrir að stunda handbolta
á Íslandi.
„Petrache var of dýr fyrir
okkur en hún fór fram á 3.000
evrur á mánuði plús íbúð og vinnu
fyrir manninn hennar,“ sagði
Hlynur en 3.000 evrur eru tæp-
lega 280 þúsund íslenskar krónur.
„Stjarnan á fullt af peningum.
Garðabær er ríkur bær. Búa ekki
olíufurstar í bænum?“
Florentina Grecu var í vinnu
hjá Hlyni og hann segist aldrei
hafa átt möguleika á að keppa við
samninginn sem Stjarnan bauð
henni. „Florentina er með 4.000
evrur á mánuði plús íbúð og bíl.
Hún var með 2.000 evrur hjá
okkur og hún sagðist þurfa að fá
4.000 evrur frá okkur ef við vild-
um halda henni. Við eigum ekki
þessa peninga,“ sagði Hlynur en
Þorsteinn Rafn Johnsen, formað-
ur handknattleiksdeildar Stjörn-
unnar, gefur lítið fyrir yfirlýsing-
ar Hlyns.
„Þetta er bara bull. Engu að
síður er ljóst að þessir leikmenn
kosta sitt. Það væri hægt að fá
ódýran leikmann sem væri spurn-
ingarmerki en við viljum frekar
vera með dýrari menn sem við
vitum hvað geta,“ sagði Þorsteinn
og bætti við að nýjustu kaupin
gæfu það til kynna að líðið ætlaði
sér alla leið. - hbg
Formaður handknattleiksdeildar ÍBV segir Stjörnuna eiga mikið af peningum:
Grecu og Petrache fá samtals 650 þúsund krónur
á mánuði í laun sem og íbúð frá Stjörnunni
HANDBOLTI Ólafur Víðir Ólafsson
og Elías Már Halldórsson skrifuðu
í gær undir samninga við Stjörn-
una. Ólafur spilaði með ÍBV á síð-
ustu leiktíð en hann er leikstjórn-
andi sem áður spilaði með HK.
Hann hefur leikið með ungmenna-
landsliði Íslands auk tveggja A-
landsleikja og skrifaði þessi 23
ára gamli kappi undir þriggja ára
samning. Auk þess er sterkur
erlendur leikmaður á leiðinni í
Garðabæinn auk tveggja uppalinna
leikmanna.
Elías Már kemur úr HK og
þekkir Ólaf Víði vel enda spiluðu
þeir saman í Kópavoginum á árum
áður. Hann skrifaði undir tveggja
ára samning og var næstmarka-
hæstur leikmanna HK á síðasta
tímabili. Ljóst er að um umtals-
verðan liðsstyrk er að ræða fyrir
bikarmeistarana, sem hafa þó
misst þrjá sterka leikmenn.
Fyrirliðinn og stórskyttan
Arnar Freyr Theodórsson fer til
Danmerkur í atvinnumennsku og
skrifar að öllum líkindum undir
samning við HF Mors.
Kristján Svan Kristjánsson fer
í skóla til Danmerkur og mun
eflaust spila með liði í efstu eða
næstefstu deild þar og Þórólfur
Nielsen, leikstjórnandi, er á leið-
inni í nám til Bandaríkjanna.
Kvennaliðið tekur einnig mikl-
um breytingum en alls hefur hand-
knattleiksdeildin samið við sex
leikmenn á undanförnum dögum
auk þess sem samningar við tíu
leikmenn hafa verið framlengdir.
Þær eru Kristín Guðmundsdóttir,
Anna Blöndal, Arna Gunnarsdótt-
ir og Björk Gunnarsdóttir auk
tveggja ógnarsterkra erlendra
leikmanna. Florentina Grecu
kemur til liðsins frá ÍBV, en
Eyjamenn voru alls ekki sáttir við
að missa einn af máttarstólpum
liðsins. Hún hefur spilað í tvö ár á
Íslandi og hefur verið besti mark-
maður Íslandsmótsins bæði árin.
Stjarnan hefur einnig samið við
Alinu Petrache, en hún er 24 ára
rúmenskur landsliðsmaður. Hún
er 186 cm á hæð og lék með Tomis
Constansa í Rúmeníu á síðustu
leiktíð þar sem hún skoraði 210
mörk í 26 leikjum í deildinni. Hún
lék hér á Íslandi með liði sínu gegn
Val í áskorendakeppni Evrópu, en
hún skoraði 27 mörk í tveimur
leikjum gegn Valsstúlkum. ÍBV
hugðist fá hana til sín áður en
Stjarnan gekk á milli og samdi við
hana. hjalti@frettabladid.is
Stjarnan stefnir ótrauð á toppinn
Stjarnan er greinilega stórhuga í karla- og kvennaflokki en nýir leikmenn flykkjast nú í Garðabæinn.
Samið hefur verið við nýja leikmenn í tugatali og munu fleiri leikmenn bætast við á næstunni.
ÓLAFUR SKIPTIR YFIR Ólafur Víðir er hér í leik gegn Stjörnunni en hann þarf ekki að hafa
áhyggjur af því að Patrekur Jóhannesson taki fast á honum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Gareth Southgate hefur
verið ráðinn stjóri Middlesbrough
og tekur hann við af Steve McClar-
en, sem tekur við enska landslið-
inu eftir HM í sumar. Samtök
knattspyrnustjóra á Englandi
heimiluðu Southgate að taka við
liðinu, þrátt fyrir að hann hefði
ekki tilskilin réttindi til þess.
Southgate er 35 ára gamall en
hann hefur leikið með Boro frá
árinu 2001 þegar hann gekk í raðir
liðsins frá Aston Villa. - hþh
Gareth Southgate:
Ráðinn stjóri
Middlesbrough
SOUTHGATE Er í miklum metum hjá stuðn-
ingsmönnum Boro. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Gennaro
Gattuso verður ekki með ítalska
liðinu í tveimur fyrstu leikjum
þess á HM. Gattuso er meiddur á
læri og er alveg ljóst að hann mun
ekki spila gegn Gana í fyrsta leik
Ítala. Einnig er útlit fyrir að hann
spili ekki gegn Bandaríkjunum á
þjóðhátíðardag Íslendinga.
„Ég ætla með á HM þó að ég
þurfi að hlekkja mig við liðsrút-
una. Ég táraðist þegar ég frétti að
ég yrði frá í tvær vikur,“ sagði
Gattuso. Þjálfarinn Marcello Lippi
ætlar ekki að fá nýjan mann í hóp-
inn. „Ég mun láta leysa hann af á
vellinum en ekki í hópnum,“ sagði
Lippi. - egm
Áfall fyrir ítalska landsliðið:
Gattuso ekki
með frá byrjun