Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 89
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 57
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Vélorf
Alvöru orf
á góðu verði
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
Ó
tr
ú
le
g
ve
rð
!!
!!
FÓTBOLTI „Það eina sem er öruggt
er að ekkert er öruggt,“ er frasi
sem Guðjón er þekktur fyrir að
nota, enda hverju orði sannara.
Hann á einnig vel við núna en Guð-
jón sagði við Fréttablaðið í gær að
ekkert væri ráðið í hans málum.
Hann var þá í óða önn að undirbúa
smálúðu sem hann bauð upp á í
kvöldmatnum í gær.
„Ég fór og kíkti til Norðurland-
anna um helgina en það er ekkert
komið út úr þessu ennþá. Ég talaði
við fulltrúa frá þremur liðum, einn
meira en hina, en þetta eru bara
viðræður fram og til baka og ekk-
ert tilboð eða slíkt hefur borist.
Þetta eru góðir klúbbar og það
getur alveg farið svo að ég skoði
þetta betur,“ sagði Guðjón í gær
en hann staðfesti að hafa hitt full-
trúa frá Helsingborg.
„Ég hitti fulltrúa þeirra og
Helsingborg er hugsanlegur kost-
ur. Það er góður klúbbur og er að
fá spennandi liðsstyrk auk þess að
vera með ágætt lið,“ sagði Guðjón
en það er hvalreki á fjörur liðsins
að markaskorarinn mikli Henrik
Larsson hefur ákveðið að snúa
heim úr atvinnumennskunni og
spila með Helsingborg eftir HM í
sumar. Larsson var á mála hjá
Barcelona og var boðið að vera
áfram hjá félaginu, en sýndi mik-
inn persónuleika í því að standa
við orð sín og koma heim.
„Ef það gerist ekkert þá gef ég
þessu bara tíma, ég ætla mér ekki
að fara í eitthvað sem ég er ekki
sáttur við. Það eru greinilega tæki-
færi þarna úti fyrir mig og ég þarf
að velja það sem ég tel vera besta
kostinn,“ sagði Guðjón, sem einnig
hitti aðila frá félagi í Danmörku
sem vantar knattspyrnustjóra.
Guðjón hefur starfað mikið á Eng-
landi og hefur heyrt í aðilum þar í
landi.
„Ég talaði við tvo klúbba á Eng-
landi og svo voru þreifingar í
gangi með þann þriðja. Ég var
ekki til í að vinna eins og þeir vildu
vinna, í það minnsta annað liðið,
en það er ekki loku fyrir það skot-
ið að eitthvað meira gerist í þeim
efnum,“ sagði knattspyrnustjór-
inn frá Akranesi, Guðjón Þórðar-
son, en óneitanlega væri spenn-
andi að sjá hann taka við liði
Helsingborg.
hjalti@frettabladid.is
Guðjón Þórðarson til Helsingborg?
Guðjón Þórðarson er líklegur til að taka við liði á Norðurlöndunum á næstunni. Guðjón hefur verið í við-
ræðum við Helsingborg í Svíþjóð auk liðs í Danmörku, en hann segir að ekkert sé komið á hreint í málinu.
TIL NORÐURLANDANNA? Guðjón segir að það komi alveg eins til greina að þjálfa á Norður-
löndunum og í Englandi. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Robert Huth, varnarmað-
ur Chelsea, er að öllum líkindum á
leið til Middlesbrough og skrifar
undir samning við félagið í lok
vikunnar. Huth er 21 árs og er stór
og sterkur leikmaður en hefur
ekki náð að vinna sér inn sæti í öfl-
ugu liði Chelsea. Wigan og Evert-
on höfðu einnig áhuga á að fá Huth
í sínar raðir en Middlesbrough
virðist hafa unnið kapphlaupið.
Huth er í leikmannahópi þýska
landsliðsins sem nú er að búa sig
undir heimsmeistaramótið. „Það
er mjög mikilvægt fyrir mig að fá
að spila og ég tel Middlesbrough
gott tækifæri til þess. Ég held að
ég geti lært mikið af Gareth South-
gate,“ sagði Huth. - egm
Félagaskipti á Englandi:
Huth á leið til
Middlesbrough
HUTH Hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá
Chelsea. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Svo gæti farið að Lennart
Johansson ákveði að sækjast ekki
eftir endurkjöri sem forseti Evr-
ópska knattspyrnusambandsins.
Hinn sænski Johansson er að velta
málunum ítarlega fyrir sér þessa
dagana en hann hefur gegnt emb-
ættinu í sextán ár, allt frá árinu
1990.
Johansson gaf það út á fundi
FIFA í vikunni að hann myndi
ákveða á næsta fundi fram-
kvæmdastjórnar UEFA hvort
hann gæfi kost á sér til endur-
kjörs. Fundurinn verður einmitt
haldinn hér í Reykjavík, dagana
10-13. júlí. - hþh
Lennart Johansson:
Ákveður sig í
Reykjavík
LENNART JOHANSSON Ákveður hvort hann
haldi áfram sem forseti UEFA fljótlega.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI