Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 43
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 11
Á hverjum þriðjudegi og
fimmtudegi safnast hópur
hlaupara saman við Glitni
á Kirkjusandi. Þarna er á
ferð undirbúningshópur fyrir
Reykjavíkurmaraþon.
Hópurinn er ætlaður þeim sem
vilja hlaupa lengri vegalengdirnar
í Reykjavíkurmaraþoninu, 10, 21
eða 42 kílómetra. Hópurinn er mis-
stór frá degi til dags. Um sjötíu
manns mæta þegar best lætur en
þegar nær dregur sjálfu maraþon-
inu má búast við allt að tvö hundruð
manns eins og gerðist á síðasta ári.
Þjálfarar hópsins eru þrír, þeir
Stefán Ingi Stefánsson, Þórsteinn
Ágústsson og Andrés Ramón. Stef-
án fer fyrir þeim sem ætla sér í 10
km hlaup. „Það getur í hugum
sumra verið svolítið átak að hlaupa
10 km, ég tala nú ekki um 21 eða 42
km,“ segir Stefán. „Þess vegna var
þessi hópur settur upp.“
10 km hópnum er skipt upp enn
frekar í byrjendahóp og hóp fyrir
lengra komna. Byrjendahópurinn
er fyrir þá sem eru á leið í sitt
fyrsta eða annað 10 km hlaup og er
fyrst og fremst um þolþjálfun að
ræða. Þeir lengra komnu læra
meiri tækni sem miðar að því að
bæta tíma þeirra.
Skráning í hlaupahópinn fer
fram á marathon@glitnir.is. Þegar
maður er kominn á blað fær maður
senda æfingaáætlun og vikulegan
tölvupóst með góðum ábendingum
og sögum. „Þó að við hittumst tvisv-
ar í viku er hlaupið 3-4 sinnum í viku
samkvæmt plani. Fólk hleypur þá
sjálft í hin skiptin,“ segir Stefán.
„Planið er auðvitað mismunandi
eftir því hversu langt fólk ætlar að
hlaupa en það er hægt að sjá það á
netinu á glitnir.is.“
Sjálfur hefur Stefán hlaupið
maraþon fjórum sinnum. „Ég trúi
því að hlaup séu góð íþrótt fyrir
flest alla ef ekki alla,“ segir Stefán.
„Það er líka gaman að setja sér
markmið og ná þeim, það er mín
upplifun. Fólk á að setja sér eigin
markmið og keppa við sjálft sig.
Hlaupahópurinn er hugsaður meðal
annars sem stuðningur við þetta
fólk.“
Hópurinn er öllum opinn og
hægt er að byrja hvenær sem er.
Það þarf einungis að skrá sig á póst-
listann og mæta með hlaupaskóna á
Kirkjusand.
tryggvi@frettabladid.is
Að keppa við sjálfan sig
Meðlimir hlaupahópsins láta vel af félagsskapnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR
Útsölustaðir: Fótaaðgerðastofurnar og Snyrtistofurnar Eygló, Paradís, Líf, Jóna og Aníta Vestmannaeyjum.
Spar Þín Verslun Kópavogi, Fjarðarkaup Hafnarfirði og Lipurtá.
NÝTT
Fáðu fæturnar mjúkar
og fínar á aðeins
2 vikum með nýja