Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 82
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR50
Tónlistarmaðurinn Mike Pollock
heldur tónleika á Café Rosenberg
í kvöld klukkan 22.00. Tónleikarn-
ir eru undir yfirskriftinni
Universal Roots Music.
Mike, sem verður einn með
kassagítarinn, mun spila tónlist úr
ýmsum áttum, þar á meðal blús og
þjóðlagatónlist. Mike er um þess-
ar mundir að undirbúa sólóplötu
þar sem kassagítarinn verður í
hávegum hafður.
Einn með
gítarinn
MIKE POLLOCK Tónlistarmaðurinn Mike
Pollock heldur tónleika á Café Rosenberg í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Afmælistónleikar rokkkóngsins
Bubba Morthens voru haldnir með
pompi og prakt í troðfullri Laug-
ardalshöll í fyrrakvöld.
Tónleikarnir tókust með ein-
dæmum vel og fór Bubbi sjálfur á
kostum hvort sem hann spilaði
róleg kassagítarlög eða harða
rokkslagara á borð við Fjöllin hafa
vakað og Blindsker. Sýndi hann og
sannaði að hann á nóg inni þrátt
fyrir að vera kominn á sextugsald-
urinn. Diddú, Idol-stjarnan Snorri,
Hera Hjartardóttir og Ragnhildur
Gísladóttir sungu öll lög eftir
Bubba og stóðu sig með prýði.
Bubbi er þekktur fyrir að liggja
ekki á skoðunum sínum og á tón-
leikunum gagnrýndi hann stór-
iðjuframkvæmdir stjórnvalda og
lýsti jafnframt yfir ánægju sinni
með brotthvarf Halldórs Ásgríms-
sonar úr forsætisráðherrastóli.
Einnig hvatti hann áhorfendur til
að kaupa nýjustu bók Andra Snæs
Magnasonar, þar sem stjórnvöld
eru einmitt harðlega gagnrýnd
fyrir stóriðjuhugmyndir sínar.
Kóngurinn fór á kostum
LÉTT DANSSPOR Bubbi Morthens var í miklu stuði á afmælistónleikum sínum og tók meðal annars nokkur dansspor. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
RÚNI JÚL Goðsögnin Rúnar Júlíusson
spilaði með Bubba og hljómsveitinni GCD
í Höllinni.
UPP MEÐ HENDUR! Áhorfendur voru vel
með á nótunum og sveifluðu höndum
þegar stemningin var sem mest.
ROKK OG RÓL Þessi rokkari skemmti sér prýðilega á tónleikunum eins og sjá má.
VÆLANDI GÍTAR Mike Pollock lét gítarinn
væla er hann spilaði með Bubba og Utan-
garðsmönnum.
Um sjötíu manns skráðu sig í aðdá-
endaklúbb Bubba Morthens sem
var stofnaður á Classic Rock á
fimmtíu ára afmælisdegi kapp-
ans.
Áður höfðu um það bil 80 manns
skráð sig í klúbbinn á netinu og
því eru meðlimirnir strax orðnir
um 150 talsins. „Mig óraði ekki
fyrir því að allur þessi fjöldi
myndi mæta,“ segir Bárður Bárð-
arson, formaður klúbbsins.
Útvarpsmaðurinn og Bubbaaðdá-
andinn Ólafur
Páll Gunnars-
son var val-
inn fyrsti
heiðurs-
meðlimur
klúbbsins
og fékk að
launum ein-
tak af öllum
plötum
Bubba sem
voru endurútgefnar þennan sama
dag.
Bárður skemmti sér konung-
lega á tónleikum Bubba í Laugar-
dalshöll, rétt eins og um 5.500 aðrir
Íslendingar. „Mér fannst magnað
hversu umgjörðin var flott, efnið
flott og flutningurinn. Þetta var
bara rokk-fjölskyldustund. Þarna
voru börn á herðum feðra og
mæðra og rokkuðu með. Mér
fannst það æðislegt,“ segir hann
og bíður nú spenntur eftir næstu
stóru tónleikum Bubba, sem verða
væntanlega á Nasa í haust.
Hann segir kónginn eiga nóg
inni þrátt fyrir að vera kominn á
sextugsaldurinn. „Það er helling-
ur eftir. Hann er bara hálfnaður
með ferilinn. Hann
fær ekki að hætta
fyrr en hann verð-
ur leiddur inn á elli-
heimilið,“ segir
Bárður ákveðinn.
„Svo komum við
þangað og setjum
gítarinn í fangið á
honum, það er
ekkert öðruvísi.“
Á heilan helling inni
BÁRÐUR BÁRÐARSON Formaður aðdáenda-
klúbbs Bubba Morthens var hæstánægður
með tónleikana í Höllinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.