Fréttablaðið - 08.06.2006, Page 18
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR18
nær og fjær
Tollkvótar vegna
innflutnings á blómum.
Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu,
verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með
vísan til reglugerðar dags. 2. júní 2006, er hér með auglýst eftir um-
sóknum um tollkvóta vegna innflutnings á blómum, fyrir tímabilið
1. júlí 2006 til 31. desember 2006.
Nánari upplýsingar liggja frammi í ráðuneytinu á skrifstofutíma
frá kl. 9:00 – 16:00.
Skriflegar umsóknir skulu berast til landbúnaðarráðuneytisins,
Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 föstudaginn 9. júní n.k.
Landbúnaðarráðuneytinu, 2. júní 2006.
Hjalti Kjartansson ákvað
að taka af skarið og koma á
fót starfsstöð fyrir óvirka
vímuefnaneytendur. Hann
bíður nú eftir fjármagni svo
hann geti hafið starfsem-
ina í rúmlega sex hundruð
fermetra húsnæði sem hann
hefur fest kaup á í Kópa-
vogi.
Starfsþjálfunin Ekron er tilbúin
til starfa en markmið hennar er að
aðstoða óvirka vímuefnaneytend-
ur sem ekki eru á vinnumarkaði
og hafa ekki gott aðgengi að vinnu.
Starfsþjálfunin er til húsa að
Smiðjuvegi 4b í Kópavogi og verð-
ur hún opin frá 8 til 16. Á staðnum
verður veitt aðstoð við atvinnuleit
á almennum vinnumarkaði og
eftirfylgni á nýjum vinnustað í
samvinnu við atvinnurekanda.
Hjalti Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri Ekron, segir hug-
myndina hafa fæðst þegar hann
var sjálfur í áfengismeðferð á
Hlaðgerðarkoti fyrir tveimur og
hálfu ári síðan. „Þarna sá ég fólk
sem hafði farið í gegnum margar
áfengismeðferðir, var dottið út af
atvinnumarkaðnum og komið á
örorku. Ég sá að það vantaði
starfsþjálfun fyrir þennan hóp
fólks með það að markmiði að
koma því út í atvinnulífið og
þannig varð hugmyndin til.“ Hjalti
hefur nú fest kaup á rúmlega sex
hundruð fermetra húsnæði og
þróað dagskrá fyrir óvirka vímu-
efnaneytendur og nú vantar aðeins
fjármagn til að hægt verði að opna
formlega. Hjalti skorar nú á opin-
bera aðila að leggja þessu þarfa
málefni lið.
„Ég hef fengið fjölda umsókna og
fyrirspurna bæði bréfleiðis og
símleiðis og aðilar innan heilbrigð-
is- og félagsmálakerfisins sem ég
hef talað við segja brýna þörf á
úrræði sem þessu. Hjá Ekron mun
staða hvers einstaklings verða
metin við komu og leitast verður
við að byggja upp sjálfstraust
hvers og eins með stuðningi og
námskeiðum. Áfengis- og félags-
ráðgjafar eru tilbúnir til starfa
þegar Ekron opnar.“
Herdís Hjörleifsdóttir er í
stjórn Ekron og hefur bæði starfað
sem félagsráðgjafi og félagsmála-
stjóri. Hún segist vita af fólki sem
þurfi á úrræði á borð við þetta að
halda og innan þess hóps séu meðal
annars margir geðfatlaðir. Herdís
segir hvern einstakling mikils virði
og mikið í húfi að koma hverjum og
einum út á vinnumarkaðinn á ný.
Gert er ráð fyrir að starfsþjálf-
un Ekron taki frá tveimur mánuð-
um til tveggja ára og þar er pláss
fyrir 24-36 einstaklinga í einu.
Starfsþjálfun fyrir óvirka
vímuefnaneytendur
EKRON TILBÚIÐ TIL AÐ TAKA Á MÓTI VÍMUEFNANEYTENDUM Hjalti Kjartansson, framkvæmdastjóri Ekron, og Herdís Hjörleifsdóttir félags-
ráðgjafi segja þjálfunarmiðstöðina úrræði sem vanti og nú þegar hafi borist umsóknir um starfsþjálfun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJÉTUR
Eyjólfur harmar hlutinn
sinn
„Sjómenn og útvegs-
menn hafa greint frá
ágætum afla og ég batt
vonir við að Eyjólfur
væri að hressast.“
EINAR K. GUÐFINNSSON
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA LÝSTI
VONBRIGÐUM SÍNUM EFTIR AÐ
SKÝRSLA HAFRÓ LÁ FYRIR EN ÞAR
ER MÆLT MEÐ ELLEFU ÞÚSUND
TONNA NIÐURSKURÐI Á NÆSTA
FISKVEIÐIÁRI. FRÉTTABLAÐIÐ 7.
JÚNÍ.
Sú var tíðin
„Ég minnist Finns sem
mikils dugnaðarforks og
öflugur var hann sem
ráðherra. Ég hins vegar
bjóst við því að það gæti
verið flókið fyrir hann að
koma inn á vettvang
stjórnmálanna og hæpið
að um það næðist alger
samstaða en ég ætlaði
ekkert að standa gegn
því.“
GUÐNI ÁGÚSTSSON, VARAFORMAÐ-
UR FRAMSÓKNARFLOKKSINS, UM
HUGSANLEGA ENDURKOMU FINNS
INGÓLFSSONAR.
Heimalningur einn á bænum í
Breiðavík, skammt frá Látra-
bjargi, er afar frábrugðin öðrum
kollegum sínum í sveitum lands-
ins. Þetta er nefnilega kópurinn
Rokkó sem fannst fyrir hálfum
mánuði einn og yfirgefinn í fjör-
unni svo Birna Mjöll Atladóttir og
Keran Stueland Ólason fóru með
hann heim. „Þar tók tíkin okkar,
Trilla, við honum en hún var nýbú-
in að eiga og sinnti kópnum jafn-
vel betur en eigin afkvæmum,“
segir Birna Mjöll. „Rokkó reyndi
hvað hann gat að sjúga tíkarspen-
ann en það gekk ekki nógu vel. Svo
er hann reyndar svolítið mislynd-
ur og gat tekið þessum móðurtil-
burðum Trillu illa svo við erum
farin að skilja þau að.“
Það er dýrt að halda kópi uppi
en til allrar lukku barst hjónunum
óvæntur liðsauki. „Verkstjórinn í
Odda hefur alveg bjargað okkur
með því að færa okkur afskorinn
fisk, annars hefðum við farið á
hausinn.“
Öll svona ævintýri taka þó enda
og ráðgera þau hjú að Rokkó
hleypi heimdraganum þegar hann
verður orðinn þrjátíu kíló að
þyngd. Ekki er þó víst að Rokkó
vilji yfirgefa fjörið í bráð en í
Breiðuvík er ferðaþjónusta og því
margt um manninn þar og verður
kópnum ekki um sel í allri þeirri
athygli sem hann fær frá þeim.
Kópurinn Rokkó
á tíkarspena
ROKKÓ OG TÍKIN TRILLA Tíkin vildi ganga
kópnum í móðurstað en Rokkó er mislynd-
ur og gat verið pirraður við hana eftir að
hann komast að því að spenar hennar eru
erfiðir viðureignar en þeir eru mun stærri
en á hinni líffræðilegu móður hans.
Veðursveiflur hérlendis í maí síð-
astliðnum fóru vafalaust framhjá
fáum. Einar Sveinbjörnsson,
veðurfræðingur hjá Veðurstofu
Íslands, segir að þrátt fyrir þessar
sveiflur, þar sem kuldakast leysti
af mikil hlýindi, geti mánuðurinn
varla talist óvenjulegur. „Þetta
jafnaðist út og hitinn í Reykjavík
var til að mynda nálægt meðal-
lagi,“ segir hann. „Annars er
meðaltalið svolítið blekkjandi, þar
sem mánuðurinn var tíðindamikill.
Í fyrsta lagi vegna hlýinda dagana
8.-9. maí, sem verða lengi í minn-
um hafðir sökum reykjarmisturs.
Þá voru mörg staðarhitamet sett,
en hitinn fór hæst upp í 22 gráður.
Síðan var það kuldakastið upp úr
20. maí sem er það mesta sem
orðið hefur á þessum árstíma frá
árinu 1979. Munurinn þarna á milli
er sá að þá var mikill hafís úti
fyrir Norðurlandi, en hann var
hvergi sjáanlegur nú. Óvenjuleg
snjóþyngsli voru á Norðurlandi
miðju með mikilli ófærð. Í þriðja
lagi var djúp lægð yfir landinu 3.
maí. Þá fór loftþrýstingur á Stór-
höfða niður í 968,1 hektópascal,
sem er lægsti loftþrýstingur í maí
sem mælst hefur í hálfa öld.“
Einar segir engar sérstakir orsak-
ir vera fyrir þessum sviptingum.
„Íslensk veðrátta er mjög breyti-
leg og sveiflurnar voru einfald-
lega meiri nú heldur en oft áður,“
segir hann. „Það hefur mikil
umræða um meiri veðursveiflur
átt sér stað úti í heimi, en erfitt er
að segja hvort þetta helst í hend-
ur.“ - re
Eðlilegar sveiflur í veðrinu
VORSNJÓR Eftir mikil hlýindi fyrri hluta maímánaðar skall á kuldakast seinni hlutann með
þeim afleiðingum að ófært varð fyrir norðan. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„ORÐRÉTT“
„Ég var nú í miðjum draumi rétt í þessu,“
segir Valur Gunnarsson rithöfund-
ur þegar blaðamaður hringir í hann
snemma dags. „Mig dreymdi að við
Ringo Starr værum að greiða skrá-
setningargjöld í Háskóla Íslands sem
endaði þannig að við vorum á fylleríi á
einhverjum báti.“
Vera má að draumfarirnar séu í sam-
hengi við framtíðaráætlanir Vals en hann
er á leið til Finnlands og ætlar að búa
þar í kofa við stöðuvatn. „Nú er að koma
sér til Helsinki og beint í sánu, ég verð
að komast í gufubað. Síðan held ég í
skóg sem er fyrir utan verkamannaborg-
ina Tampere, sem er höfuðborg finnsks
kommúnisma, en íbúar borgarinnar
börðust til síðasta manns við hvítliðana
og voru lík þeirra skilin eftir á götunum
sem víti til varnaðar,“ segir Valur fullur
tilhlökkunar.
„Ég verð í kofa þarna við eitt af
hinum þúsund vötnum í sirka mánuð
og stefni á að finna mér konu til að taka
þátt í hinu árlega eiginkonuhlaupi, sem
gengur út á að halda á kvenmanni og
hlaupa með hann í kappi við önnur pör.
Sigurparið hlýtur bjórverðlaun í þyngd
konunnar. Því þyngra sem vífið er, því
meiri bjór fær maður. Hún má ekki vera
of létt á fæti, því þá er til lítils að vinna.
Ég veit ekki hvort ég þarf að giftast
henni en það er aldrei að vita hvað
gerist í sigurvímu bjórsins,“ segir Valur
og skellir upp úr. Eiginkonuhlaup þetta
nýtur vinsælda í Finnlandi og Eistlandi
og eru menn við æfingar allan ársins
hring. „Það eru víst dæmi um að fólk
hafi tekið saman vegna góðrar
samvinnu í hlaupinu,“ heldur Valur
áfram vongóður.
„Svo er aldrei að vita nema
maður skelli sér á Júróvisjón-
tónleika með Lordi, en fyrst og
fremst ætla ég mér að klára
þessa blessuðu bók sem ég
byrjaði að skrifa fyrir fimm
árum í Finnlandi og hef þurft
að fara þangað reglulega
til að ljúka við hana. Það
verður gaman að ljúka því
og að fá loksins að fara
til einhvers annars
lands,“ segir Valur
Gunnarsson en
hann fer utan á
föstudaginn.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? VALUR GUNNARSSON RITHÖFUNDUR
Verð að komast í gufubað