Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 28
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR28
og fólk
?
Urð og grjót - Upp í mót ...
göngu-
sumarsins
garpa
Fyrir
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
82
59
05
/2
00
5
Meindl Island Pro GTX
Flokkun BC
Heil tunga og vandaður frágangur
Ótrúlega léttir! Þyngd: 830 g (stærð 42)
Gore Tex vatnsvörn
MFS fóður lagar sig að fætinum
MultigriffVibram veltisóli með fjöðrun
Mjög góður stuðningur við ökklann
Einnig fáanlegir í dömustærðum (gráir)
Verð 24.990 kr.
Meindl Air Revolution 2
GTX Lady
Flokkun B
Hönnun sem miðar að hámarks öndun
Ótrúlega léttir! Þyngd: 630 g (Stærð 37)
Gore Tex vatnsvörn
MultigriffVibram veltisóli með fjöðrun
Einnig fáanlegur í herrastærðum, flokkun BC
Verð 21.990 kr.
Meindl Colorado Lady
Flokkun B
Nubuk leður
Gore Tex vatnsvörn
Vibram Multigriff sóli
Þyngd: 750 g (stærð 42)
Einnig til í herraútfærslu
Tilboð 16.990 kr.
Verð áður 19.990 kr.
Meindl Main Mid GTX
Flokkun AB
Mjúkir og léttir
Nubuk leður
Gore Tex vatnsvörn
Litur: Grár
Þyngd: 520 g (stærð 42)
Einng til í dömuútfærslu
Verð 15.990 kr.
TNF Adrenaline
Gore Tex XCR
Flokkun A
Strigaskór á sterum!!
Gore Tex XCR vatnsvörn
Súperléttur gönguskór í léttari notkun
Nubuk leður og nylon
Til í dömuútfærslu
Verð 11.990 kr.
TNF Esker Ridge Mid
Flokkun A
Súperléttur gönguskór í léttari notkun
Nubuk leður og nylon
Til í dömuútfærslu
Verð 8.990 kr.
Við skiptum skónum hjá okkur í flokka eftir því í hvaða notkun þeir eru hugsaðir. A: Fyrir auðvelda göngu og daglega notkun • AB: Fyrir göngu á slóðum og láglendi • B: Fyrir lengri göngur og bakpokaferðalög • BC: Fyrir erfiðari göngur og fjallabrölt • C: Fyrir alpagöngur, kletta, ís og brodda
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Vissir þú?
að Þáttur frá Kirkjubæ átti 650
skráð afkvæmi. Rauðhetta frá
Kirkjubæ fékk hæstu einkunn
þeirra, 8,81 í aðaleinkunn. Önnur
þekkt afkvæmi Þáttar eru Þrá frá
Hólum og Kolfinnur frá Kvíarhóli.
www.worldfengur.com
Vafalaust verður hart barist í töltkeppninni á
Landsmóti hestamanna sem hefst í lok mánað-
arins. Þar etja kappi þrjátíu knapar og hestar sem
hafa fengið hæstu einkunn í tölti yfir landið allt.
Listinn tekur nokkrum breytingum í viku hverri
eftir því sem fleiri mót bætast við og enn betri ein-
kunnir líta dagsins ljós. Hins vegar er ólíklegt
að þeir sem þegar eru komnir inn á
topp tíu-listann í dag detti út fyrir
landsmótið. Hér er listi yfir tíu
efstu knapa eins og staðan
var um helgina.
■ Ný staða á töltlista
Snorri Dal og Hlýr frá Vatnsleysu vöktu mikla
athygli í gæðingakeppni Sörla sem haldin var
í Hafnarfirði um síðustu helgi. Þeir unnu B-
flokk gæðinga með talsverðum yfirburðum og
dómarar völdu Snorra knapa mótsins og
Hlýr glæsilegasta gæðinginn. Mótið var
jafnframt úrtökumót Sörla fyrir Lands-
mót og eru þeir félagar því öruggir
þangað inn.
„Þetta sýnir kannski helst að
maður er að uppskera það sem
maður hefur sáð yfir veturinn,“
segir Snorri sem hefur haft Hlýr
í sinni umsjá í fjögur ár. „Þetta
er mikill gæðingur, aflmikill en
blíður,“ lýsir Snorri hestinum
sínum.
Snorri mun hafa í nógu að
snúast á Landsmóti hestamanna
enda er Hlýr ekki eini hesturinn sem hann
heldur með í það ferðalag. Eftir úrtökuna um
helgina er hann kominn með þrjá hesta inn í B-
flokk en fyrir utan Hlýr er hann með hryssurnar
Dúkku frá Úlfsstöðum og
Vöku frá Hafnar-
firði. Þá er hann
einnig kominn
inn í A-flokk-
inn með Lind
frá Hofi. Þó
allt þetta væri
nóg bætist við
að Snorri er
ofarlega á
stöðulistanum
í tölti á hryss-
unni Vöku frá
Hafnarfirði sem
einnig hefur unnið keppnisrétt í B-flokki.
Snorri segir Landsmót án efa hafa breyst
nokkuð eftir að byrjað var að halda það á
tveggja ára fresti, en fyrir árið 2000 var það
haldið á fjögurra ára fresti. „Þá var ennþá meiri
eftirvænting að komast inn á mótið og sam-
verkandi vonbrigði að komast ekki. Hins vegar
finnst mér alltaf sama stemningin í kringum
það,“ segir Snorri og vill meina að fyrirkomulag-
ið eins og það er í dag geri meira fyrir sportið.
Þrátt fyrir að mikill tími fari í þjálfun og
tamningar reynir Snorri að finna tíma til að
skella sér í hestaferðalag. Kannski ekki síst
vegna keppnishestanna sem fá að koma með
þótt þeim sé ekki mikið riðið og fái mest að
hlaupa frjálsir. „Þetta hefur svakalega góð áhrif
á þá,“ segir Snorri og líkir því við nokkurs konar
andlega þjálfun þar sem þeir finni fyrir frelsinu
á ný.
HESTAMAÐURINN: SNORRI DAL
Uppsker það sem hann hefur sáð
1. Hulda Gústafsdóttir og List frá Vakurstöðum með 8,23
2. Þorvaldur Á. Þorvaldsson og Blíða frá Flögu með 8,13
3. Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi með 7,87
4. Hinrik Bragason og Skúmur frá Neðri-Svertingsstöðum með 7,57
5. Sigurbjörn Bárðarson og Grunur frá Oddhóli með 7,57
6. Atli Guðmundsson og Mörður frá Miðhjáleigu með 7,43
7. Viðar Ingólfsson og Stemma frá Holtsmúla 1 með 7,43
8. Snorri Dal og Vaka frá Hafnarfirði með 7,40
9. Theodór Ómarsson og Greifi frá Garðshorni með 7,40
10. Sveinn Ragnarsson og Loftfari frá Laugavöllum með 7,37
Snorri og Katla Sif dóttir hans sem situr
ljúflinginn Hlý
Hann vefst oft fyrir mönnum munurinn
á gæðingakeppni og íþróttakeppni.
Hinu óþjálfaða auga áhugamannsins
virðist munurinn lítill en sérfræðingar
sjá mikinn mun þar á. Í tilefni þess að
Landsmót hestamanna rennur upp
von bráðar er ekki úr vegi að rifja upp
hver munurinn á þessum tveimur
keppnum er en Landsmótið er stærsta
gæðingakeppnin á Íslandi og er haldin
á tveggja ára fresti.
„Fyrst og síðast er það frjálsræðið,
afköst, vilji og fjör, meiri hraði og meiri
afköst,“ segir Sigurður Emil Ævarsson
gæðingadómari um það sem einkennir
gæðingakeppnina. Þá tekur hann
einnig fram að hesturinn sé keppand-
inn en ekki knapinn og því fái karakter
hestsins að njóta sín í keppninni.
Töltið er dæmt nokkuð öðruvísi í
gæðingakeppni en íþróttakeppni. Þar
þarf aðeins að sýna hestinn á frjálsum
hraða, það er, þeim hraða sem hestur-
inn er bestur á. Ekki er gerð krafa um
hægt eða yfirferðartölt í A-flokki. Taktur
gangsins er þó mjög mikilvægt atriði
í dómi. Honum þarf hins
vegar að fylgja fjaður-
magn og mýkt. „Svo
þarf karakter hestsins
að skína í gegnum allt
sem hann gerir,“ segir
Sigurður en játar að
það geti verið erfitt að
dæma útgeislun enda
byggist það svolítið á
huglægu mati hvers
dómara. Hins vegar
séu sumir hestar
einfaldlega þannig að
menn grípi andann
á lofti þegar þeir
koma í brautina.
Sigurður segir
mikilvægt að
standa vörð um
þessa séríslensku
keppni. Það
virðist ganga nokkuð vel enda er áhugi
á henni að glæðast mjög erlendis.
Hafa verið haldin nokkur námskeið
fyrir gæðingadómara á öllum
Norðurlöndum og í Þýska-
landi. „Þeir vilja fara í þetta
frjálsa form.“
Landsmótið er stærsta
gæðingakeppni í heimi að
sögn Sigurðar. Hann vill
meina að þar megi sjá allt
öðruvísi reiðmennsku, sem
einkennist af frjálsræði
og afköstum og það
sé það sem dragi að
fjölmarga útlendina
sem komi aftur
og aftur til
Íslands til
þess að
fylgjast
með
Lands-
móti.
SÉRFRÆÐINGURINN: SIGURÐUR EMIL ÆVARSSON GÆÐINGADÓMARI
Gæðingakeppni þýðir frjálsræði og afköst