Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 33
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.07 13.27 23.48
Akureyri 2.07 13.11 24.20
GÓÐAN DAG!
Í dag er fimmtudagurinn
8. júní, 159. dagur ársins
2006.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GERÐARLEGAR
FLÍKUR OG
FYLGIHLUTIR
Í versluninni í Gerðarsafni
fást skemmtilegir munir sem
byggja á verkum Gerðar
Helgadóttur TÍSKA 4
Söngkonukjólar eru ólíkir öðrum
kjólum. Jana María Guðmundsdóttir
mun klæðast einum slíkum þegar
hún heldur burtfarartónleika sína í
Hafnarborg í kvöld.
„Þetta er án efa íburðamesti kjóll sem ég
hef átt,“ segir Jana María Guðmundsdóttir
um söngkonukjólinn sem hún mun klæðast í
kvöld. Hún hefur lært söng í sjö ár og í dag
er komið að burtfarartónleikum hennar.
„Maður er að færa sig upp á skaftið. Eftir
því sem tíminn líður og maður verður stærri
söngkona, því meiri og fallegri verða kjól-
arnir.“
Að Jönu sögn eru söngkonukjólar ekki
eins og aðrir kjólar. ,,Það er einhver sér-
stakur andi yfir þeim. Áhorfandinn á að
verða furðulostinn og orðlaus þegar hann
sér söngkonuna. Þetta eru kjólar sem maður
færi varla í á gala-dansleik, þeir eru einung-
is til að koma fram í,“ segir Jana sem fann
kjólinn sinn í Coast. ,,Ég sá þennan kjól um
daginn og fannst hann vera hinn eini sanni
tónleikakjóll. Sniðið er akkúrat eins og
maður hefur gert sér í hugarlund að söng-
konukjólar eigi að vera, hann er þröngur að
ofan en fyrir neðan mittið kemur alveg
rosalega mikið púff. Því meira púff, þeim
mun betra.“
Þeir sem vilja hlusta á Jönu syngja í
þessum fallega kjól geta mætt í Hafnarborg
í Hafnarfirði klukkan átta í kvöld. Á efnis-
skránni verða meðal annars íslensk sönglög
eftir Jórunni Viðar, ljóðasöngvar eftir
Schumann, Debussy og Fauré og aría úr
óperunni Rómeó og Júlía. „Þegar á sviðið er
komið í svona kjól veit maður aldrei hvað
gerist, kannski eitthvað óvenjulegt og
spennandi,“ segir Jana glöð í bragði.
mariathora@frettabladid.is
Söngkonukjólar
með ævintýraljóma
Jana María segir það ekki
auðvelt verk að finna alvöru
söngkonukjól.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TOUS er ný verslun sem var
opnuð í Smáralind á dögunum.
TOUS er fyrst og fremst skart-
gripaverslun en þar er einnig
hægt að fá ýmsa fylgihluti, svo
sem töskur, úr, ilmvötn, sól-
gleraugu, slæður, boli og ýmsa
gjafavöru.
Sumarið er komið
og nú er rétti
tíminn til að setja
niður sumar-
blóm. Það er
líka tilvalið að
fegra heimilið með
blómum innandyra og
afskorin blóm í vasa eru ákaflega
sumarleg.
Dansrækt JSB býður upp á fjör-
leg sumarnámskeið fyrir þá sem
vilja dansa í sumar. Fyrir þá sem
vilja halda sér í formi er tilvalið
að skrá sig á DANSpúl nám-
skeiðið sem er ætlað stelpum og
strákum, 16 ára og eldri.
Fyrsta sígarettan er sú afdrifa-
ríkasta og þeir unglingar sem
freistast til að reykja eina
sígarettu eru mun líklegri til þess
að byrja að reykja en þeir sem
aldrei prófa. Þetta kemur fram í
nýrri breskri rannsóknir og sýnir
svo ekki verður um villst að
forvarnarstarf er gríðarlega mikil-
vægt í baráttunni við reykingar.
ALLT HITT
[TÍSKA HEIMILI HEILSA]
FRÁBÆRT AÐ RÓA
ÚT Á KVÖLDIN
Þeim fjölgar ört sem leggja stund á
kajakróður.
HEILSA 10
veistu hvers ég myndi óska mér ... reyndu að giska á ... hvers eðlis þessi ósk mín er ...Ef ég ætti eina ósk ...
Skyr.is-drykkurinn er fljótleg
og holl næring fyrir þá sem
vilja styrkja líkamann og lifa
heilbrigðu lífi.
� � �� � � � � � � �
���������������������������
�� �������������������������
������������
��������� ��������� ���
������������������������������������������������������������
�������������������������������� ����� ��������������������
��������������������������������� ������
����� ��� ������������������������������������ ����
�
�
��
�
�
�
�
�
��
��
�
�
�
�
�
� �
�
�
�
�
�
�