Fréttablaðið - 08.06.2006, Síða 37
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 5
Kate Moss er greinilega ekki
eina óþekka stelpan úr módel-
bransanum.
Mikið fjölmiðlafár hefur verið í
kringum meinta eiturlyfjaneyslu
Kate Moss að undanförnu eins og
flestir ættu að hafa orðið varir
við. Nú hefur hins vegar önnur
ofurfyrirsæta stigið fram á sjón-
arsviðið og viðurkennt að hafa
neytt eiturlyfja en það er engin
önnur en hin danska Helena
Christensen.
Í nýlegu viðtali viðurkenndi
Christensen að hafa oft reykt
kannabisefni meðan hún starfaði
sem fyrirsæta. Hún sagðist þó
aldrei hafa farið út í harðari efni.
„En það voru hins vegar margar
ungar og fallegar stelpur í partís-
enunni, með mikið af eiturlyfjum í
umferð. Ég er enginn dýrlingur,
en (sterk) eiturlyf voru aldrei
minn stíll.“ - sha
Viðurkennir
dópnotkun
Danska dívan Helena Christensen er greini-
lega ekki eins saklaus og hún lítur út fyrir
að vera. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Þegar blautt er úti er um að
gera að taka fram stígvélin.
Eins og veðrið hefur verið hér á
höfuðborgarsvæðinu að undan-
förnu hefur sumarklæðnaður
fengið að bíða aðeins lengur inni í
fataskápnum. Þá er lítið annað að
gera í stöðunni en að klæða sig
eftir veðri og þá koma stígvélin
sterk inn.
Fullt af flottum stígvélum
hefur nefnilega verið að koma á
markað að undanförnu. Allir eru
komnir með leiða á þessum gömlu
svörtu enda er fátt sumarlegt við
þau. Stígvel sem slík eru hins
vegar ekki ljót. Þau má poppa all-
verulega upp með smá litum og
pínu mynstri. Þannig verða þau
sumarleg, flott, þægileg og nota-
gildið er mikið.
Að lokum má
svo bæta við
að hitna á um
helgina og sólin
fer vonandi
aftur að skína.
- sha
Upp með
stígvélin
Stígvél geta alveg verið flott og eru langt
frá því að vera einhvers konar tískuslys.
Fracisco Costa stóð uppi sem
sigurvegari CFDA-verðlaun-
anna, Óskarsverðlauna tísku-
heimsins.
Francisco Costa, yfirhönnuður
Calvin Klein, var valinn kvenfata-
hönnuður ársins á CFDA-verð-
laununum nýliðnu. Costa tók við
starfi yfirhönnuðar Calvin Klein
fyrir þremur árum síðan og leysti
þar með Calvin Klein sjálfan af
hólmi. „Ef ameríski draumurinn
er til, þá er þetta hann fyrir mér,“
sagði hinn brasilíski Costa þegar
hann tók við verðlaununum.
Af öðrum sigurvegurum þetta
kvöldið má nefna Tom Browne
sem valinn var karlfatahönnuður
ársins og Olivier Theyskens sem
hlaut alþjóðlegu hönnuðarverð-
launin. Enn fremur var sérstakur
verðlaunaflokkur fyrir efnilega
og upprennandi hönnuði og í þeim
flokki stóð Doo-Ri Chung upp úr
sem kvenfatahönnuður ársins,
The Trovata Team fyrir karlfata-
línu sína og Devi Kroell fyrir
hönnun fylgihluta.
Á CFDA-verðlaunaafhending-
unni, sem oft er nefnd Óskars-
verðlaunaahending tískuheimsins,
mátti sjá margar frægar stjörnur,
meðal annars Janet Jackson,
Lindsey Lohan, Jessicu Simpson
og Chloe Sevigny.
Yfirhönnuður Calvin Klein sigrar
Costa var undir áhrifum Bauhaus í vor- og
sumarlínu sinni.
NORDIC PHOTOS/GETTYIMAGES
Francisco Costa mætti á verðlaunaafhend-
inguna ásamt hinni ungu og fögru Scarlett
Johansson.
NORDIC PHOTOS/GETTYIMAGES