Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 65
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 33
AF NETINU
Þegar sumarið loksins gengur í garð er um að gera að vera klár í
að halda á vit ævintýranna á glæsilegum jeppa. Þess vegna efnum
við nú til Jeppadaga á Bílaþingi Heklu og bjóðum mikið úrval á
frábærum kjörum.
Komdu og skoðaðu úrvalið á Bílaþingi Heklu.
Allt frá því landamæri voru fundin
upp hefur fólk ekki látið þau hindra
sig í að heimsækja erlend ríki, ekki
bara til að svala forvitni sinni held-
ur einnig til að setjast að og leita
sér að atvinnu. Oftar en ekki hefur
þetta fólk tekið áhættu, staðráðið í
að vinna bug á mótlæti í þágu betra
lífs. Slíkar vonir hafa alltaf verið
drifkraftur framfara mannkyns-
ins. Sögulega séð hafa fólksflutn-
ingar ekki aðeins aukið velmegun
þeirra sem flutt hafa sig um set,
heldur einnig mannkynsins í heild.
Innnflytjendur auka hagvöxt
Og þetta á enn við rök að styðjast. Í
skýrslu sem ég hef kynnt á Alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna,
hef ég dregið saman niðurstöður
rannsókna sem sýna að, að minnsta
kosti þegar best lætur, hagnist ekki
aðeins aðkomumennirnir heldur
einnig löndin sem þeir setjast að í
og heimalönd þeirra. Hvernig má
þetta vera? Í þeim löndum sem þeir
setjast að í, taka innflytjendurnir
að sér störf sem fólk sem fyrir er
vill síður vinna. Þeir sinna að stór-
um hluta þjónustu sem þjóðfélagið
getur ekki verið án. Þeir sinna
börnum, sjúkum og öldruðum,
koma uppskeru í hús, sinna mats-
eld og þrífa skrifstofur og heimili
Og þeir stunda ekki aðeins lík-
amleg störf. Nærri helmingur
aðfluttra 25 ára og eldri í iðnríkjum
á tíunda áratugnum, var á einhvern
hátt sérhæft starfsfólk. Hvort sem
fólkið býr yfir sérstökum hæfileik-
um eða ekki eru innflytjendur oft
athafnamenn sem hleypa af stokk-
unum nýjum fyrirtækjum, allt frá
kaupmanninum á horninu til upp-
hafsmanna Google-leitarvélarinn-
ar. Enn aðrir eru myndlistarmenn,
tónlistarmenn eða rithöfundar sem
hleypa nýju lífi menningar og sköp-
unar í sína nýju heimabæi.
Innflytjendurnir auka einnig
eftirspurn eftir vörum og þjónustu,
auka þjóðarframleiðslu og greiða
almennt meira í skatta en þeir fá til
baka í gegnum velferðarkerfið og
aðra styrki. Og til dæmis í Evrópu
þar sem fólki fjölgar mjög hægt, ef
nokkuð, leggur ungt aðkomufólk
fram sinn skerf til að leiðrétta halla
á fjárvana lífeyrissjóðum.
Þegar öllu er á botninn hvolft
eru þau ríki sem taka á móti inn-
flytjendum opnum örmum og tekst
að aðlaga þá samfélaginu, með
þeim öflugustu, efnahagslega,
félagslega og menningarlega, í
heimi.
Heimalöndin njóta líka góðs
Á sama tíma hagnast heimalöndin
á því fé sem þetta fólk sendir heim
en alls námu heimsendingar 232
milljörðum dala á síðasta ári. Þar
af fóru 167 milljarðar til þróunar-
landa en það er meira en öll sam-
anlögð opinber þróunaraðstoð. Það
eru ekki aðeins viðtakendur fjár-
ins sem hagnast, heldur líka þeir
sem útvega þá vöru og þjónustu
sem keypt er fyrir þetta fé. Þetta
hefur þau áhrif að þjóðartekjur
aukast og fjárfesting eflist. Fjöl-
skyldur sem státa af einum eða
fleiri fjölskyldumeðlimum í vinnu
erlendis, verja meira fé til mennt-
unar og heilsugæslu heima fyrir.
Ef fólkið er fátækt eins og í
hinni sígildu mynd Le Mandat frá
Senegal, kynnist fjölskyldan fjár-
málaþjónustu eins og bönkum,
sparisjóðum og smáfjármálastofn-
unum við það að fá fé sent að
utan. Ríkisstjórnir gera sér líka
betur og betur grein fyrir því að
brottfluttir borgarar geta nýst
þróun heima fyrir og rækta tengls
við þá. Margar ríkisstjórnir reyna
að ýta undir þessi tengsl með því
að leyfa tvöfaldan ríkisborgara-
rétt, leyfa utankjörstaðaratkvæða-
greiðslur erlendis, efla starfsemi
ræðismanna og vinna með útflytj-
endum við að efla þróun í heima-
héruðum þeirra. Í sumum ríkjum
hafa samtök innflytjenda tekið að
sér að fjármagna þróunarverkefni
í smáum stíl í heimahögunum.
Innflytjendur sem hafa haslað
sér völl á nýjum slóðum, fjárfesta
oft í heimalöndum sínum og hvetja
aðra til að gera slíkt hið sama. Þar
að auki njóta heimalöndin góðs af
áunnum hæfileikum þeirra og
tæknikunnáttu. Forritunariðnaður
Indlands á að miklu leyti rætur að
rekja til samskiptatengsla Ind-
verja erlendis, innflytjenda sem
snúið hafa heim og indverskra
athafnamanna heima og erlendis.
Að sama skapi hafa Albanir sem
unnið hafa í Grikklandi, flutt með
sér heim landbúnaðarþekkingu
sem stuðlað hefur að auknum
afköstum í landbúnaði. Og svona
mætti lengi telja.
Nýtt upphaf
Já, vissulega eru slæmar hliðar á
fólksflutningum á milli landa. Það
er hins vegar kaldhæðnislegt að
sum vandamálin eiga rætur að
rekja til tilrauna til að hindra þá;
þannig á fólk sem ekki hefur til-
skylda pappíra mest á hættu að
lenda í klóm ófyrirleitinna smygl-
ara og verða ýmiss konar misnotk-
un að bráð. Og vissulega er spenna
á meðan rótgrónir íbúar og inn-
flytjendur eru að venjast hverjir
öðrum, ekki síst þegar trúarbrögð,
siðir og menntunarstig eru mis-
munandi. Og því er ekki að leyna
að fátæk ríki líða fyrir það þegar
hæfileikaríkasta fólkið, til dæmis
heilbrigðisstarfsmenn í sunnan-
verðri Afríku, sækjast eftir betri
launum og aðstæðum erlendis.
En ríki eru stöðugt að læra að
taka á þessum vandamálum og
það er auðveldara ef þau taka
höndum saman og læra af reynslu
hvers annars. Slíkt er einmitt
markmið samræðna hátt settra
ráðamanna um fólksflutninga og
þróun á vettvangi Allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna nú í sept-
ember. Það er ekki ætlast til þess
af neinu ríki að það hætti að gæta
landamæra sinna eða framselji
öðrum stefnumörkun sína. En öll
ríki og ríkisstjórnir hagnast á því
að ræða málin og skiptast á hug-
myndum. Þess vegna vona ég að
fundurinn í september marki nýtt
upphaf.
Svo lengi sem ríki eru til, mun
fólk flytjast á milli ríkja. Hvað
sem hverjum finnst eru fólksflutn-
ingar staðreynd. Það er engin
ástæða til að reyna að stöðva fólks-
flutninga, heldur til að koma stjórn
á þá og auka samvinnu og skilning
af beggja hálfu. Fólksflutningar á
milli ríkja geta verið öllum til
góðs.
Hnattrænar samræður um
fólksflutninga eru tímabærar
UMRÆÐAN
FÓLKS-
FLUTNINGAR
KOFI A. ANNAN
FRAMKVÆMDASTJÓRI SAMEINUÐU
ÞJÓÐANNA
Þegar öllu er á botninn hvolft
eru þau ríki sem taka á móti
innflytjendum opnum örmum
og tekst að aðlaga þá samfé-
laginu, með þeim öflugustu,
efnahagslega, félagslega og
menningarlega, í heimi.
Segir sína sögu
Það er bæði hættulegt, með tilliti til lýð-
ræðissjónarmiða og hefðbundinna arð-
semis- eða hagvaxtarsjónarmiða, ef ráða-
menn fjármagnsins nota það til að fjárfesta
í pólitískum ítökum frekar en nýjum hug-
myndum eða nýrri tækni. Það er ábyrgð-
arhlutur þegar valdamiklir stjórnmálamenn
eru sífellt að hvetja þá til þess með einum
eða öðrum hætti [...] Halldór virðist sem
betur fer hafa klúðrað þessari atburðarás,
eins og mörgum fleirum, og það segir
auðvitað sína sögu. En hin stórbrotna hug-
mynd um endurkomu Finns [Ingólfssonar]
er ekki bara pólitískur klaufaskapur, heldur
sýnir hún líka að Halldór er til óþurftar í
stjórnarráðinu og ekki sá maður sem við
þurfum á að halda um þessar mundir.
Guðmundur Rúnar Svansson á deiglan.
com
Holdið sækir að
Neyslusamfélagið býr til og ýtir undir kynja-
mismun, skapar staðlaðan dagsryþma og
óöryggi. Að miklu leyti er búið að taka frá
okkur frumkvæði og ábyrgð til þess að
meta hvað sé rétt og rangt gagnvart sam-
skiptum kynjanna og stöðu þeirra gagn-
vart hvoru öðru. Fjölmiðlar, auglýsingar og
poppmenning skipa þar stóran sess með
því að þvinga upp á bæði kynin líkama
konunnar sem söluvöru. Hold konunnar
sækir alls staðar að: úr imbakassanum,
tónlist, auglýsingaskiltum o.s.frv.
Emil Hjörvar Petersen á murinn.is
Muldur sem lekur
Hvernig er hægt að klúðra sinni eigin
afsögn? Sennilega er það áhugaverðasta
spurningin eftir axarsköft síðustu daga, þar
sem svo virðist sem enginn viðkomandi
sé með fullu viti. Eftir meira en áratug af
samstöðu í ríkisstjórn sem náð hefur ótal
stjórnmálamarkmiðum í framkvæmd, þing-
menn stjórnarinnar hinir samvinnufúsustu
með örfáum undantekningum, aðkallandi
vandamál ekki meiri en gerist og gengur -
þá rennur forsætisráðherra, sem hafði lagt
talsvert á sig að komast í þann stól, á aftur-
endann og fer að muldra í trúnaði við ein-
hverja menn um flótta sinn. Muldur sem
lekur svo út hraðar en nokkur ræður við.
Vefþjóðviljinn á andriki.is