Fréttablaðið - 08.06.2006, Síða 80
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR48
Fyrsta hlutverk Kurt Russell var í Elvis Presley-mynd-inni It Happened at the
World’s Fair árið 1963 en þá var
leikarinn aðeins tíu ára. Sjálfur
Walt Disney tók hann síðan upp á
sína arma og gerði við hann tíu
ára langan samning en þegar
honum lauk einbeitti Russelll sér
alfarið að hafnabolta. Árið 1979
sneri Russell aftur á hvíta tjaldið
í hlutverki Elvis Presley og sló
svo eftirminnilega í gegn sem
Snake Plissken í Carpenter-
myndinni Escape from New York.
Á níunda áratugnum hélt hann
áfram að leika hasarhetjur í
myndum á borð við hina frábæru
Big Trouble in Little China auk
þess að standa uppi í hárinu á
sjálfum Sylvester Stallone í Tango
& Cash. Russell er að sjálfsögðu
aðalhetjan í stórslysamyndinni
Poseidon sem er endurgerð á
myndinni The Poseidon Advent-
ure frá árinu 1972 með Gene
Hackman í aðalhlutverki. Þessi
nýja útgáfa þýska leikstjórans
Wolfgang Petersen (Das Boot,
Outbreak, Air Force One, Perfect
Storm, Troy og fleiri) er öllu
alvarlegri og raunverulegri en
fyrri myndin enda á hún það eitt
sameiginlegt með forvera sínum
að þær gerast báðar um borð í
farþegaskipinu Poseidon, sem
veltur eftir að brotalda skellur á
því.
Kurt sem pabbi
Miðað við þá staðreynd að Kurt
Russell er alveg jafn mikill töff-
ari í eigin persónu og á hvíta
tjaldinu er eins gott að passa sig á
því að fá hann ekki upp á móti sér.
Þrátt fyrir að reyna að tipla á
tánum í kringum harðjaxlinn
tókst mér engu að síður að móðga
hann mjög snemma í viðtalinu,
alveg óviljandi.
Russell leikur mjög strangan
pabba í myndinni sem kann ekk-
ert sérstaklega vel að meta það að
dóttir hans og kærasti hennar séu
byrjuð að stunda kynlíf.„Ég er nú
ekki eins harður pabbi og persóna
mín í myndinni,“ svarar Kurt en
dóttir hans er leikkonan Kate
Hudson sem Russell ættleiddi
eftir að hann gekk að eiga leik-
konuna Goldie Hawn. „Kate er
mjög sterkur persónuleiki og ég
hef aldrei haft áhyggjur af henni.
Ég hafði yfirleitt meiri áhyggjur
af strákunum sem hún var að
hitta,“ útskýrir Russell.
Það hlýtur nú samt að vera
hrikalegt að byrja að hitta stelpu
og komast svo að því að pabbi
hennar er harðjaxl úr Holly-
wood?
„Ég er nú ekki þannig gerður.
En aftur á móti var einn strákur
sem hún var að hitta þegar hún
var ung. Ég vissi að hún var að
hitta leikara sem lék með mér í
Backdraft, ég nefni engin nöfn en
viðurkenni að ég kvartaði eitt-
hvað undan þessum ráðahag. Eitt
kvöldið fer ég út um hliðið heima
og þar eru þau í sleik. Þessi ungi
maður horfði mjög vandræðalega
til mín og ég starði á móti og sagði
honum að það væri kominn tími
til þess að fara heim. Þetta var í
eina skiptið sem ég hef nokkurn
tíma gert eitthvað í þessum dúr
og þetta er enn brandari á heimil-
inu,” segir Kurt og er greinilega
skemmt af minningunni.
Lifi eftir Slap Shot
Þú ert svolítið út úr kú miðað við
marga í Hollywood núna. Flestir
þar virðast annað hvort vera í
Vísindakirkjunni eða byrjaðir að
stunda Kabballah trúarbrögð, en
þú ert kaþólskur. Tekurðu það
með í uppeldið?
„Heldurðu að ég sá strangtrú-
aður kaþólikki?“ spyr Russell á
móti og ég viðurkenni að þetta
séu bara upplýsingar sem ég hafi
lesið um hann en þar stóð meðal
annars að hann færi í kirkju á
hverjum sunnudegi. „Vá, ég elska
svona. Mig langar nánast bara
ekki að svara þessu,“ segir Rus-
sell og hlær. „Ég væri til í að
ljúga og segja þér að ég færi í
kirkju á hverjum sunnudegi. En
það er bara bull og vitleysa. Ég
hef ekki farið í kirkju í mörg ár.“
Honum verður svolítið heitt í
hamsi og ég sest aftur í sætið og
hlusta enda ekkert annað að gera
.„Þetta minnir mig á frábært
atriði í myndinni Slap Shot sem
ég hef lifað lífi mínu eftir. Paul
Newman leikur íshokkíþjálfara
og í einu atriðinu er hann búinn
að fá mótherjana vel upp á móti
sér. Andstæðingur hans reynir að
segja hvað sem hann getur til
þess að reita Paul Newman til
reiði. Eftir heljarinnar ræðu og
nafnakallanir snýr Paul sér að
andstæðing sínum og svarar; „Er
þetta allt sem ég fæ?“. Þannig fer
ég í gegnum lífið. Hvar sem þú
hefur heyrt þetta þá er lítið til í
þessu. Ég hef aldrei verið kaþ-
ólskur og ég hef ekki farið í kirkju
í ein 40 ár.”
Ég stenst ekki mátið og spyr
hvort hann sé þá ekki bara í Vís-
indakirkjunni. „Það eina sem ég
hef að segja um hana er að ég
þekki bæði Tom Cruise og John
Travolta sem eru í henni. Ég hef
nú ekki talað mikið um trú þeirra
við þá en þeir eiga fleiri flugvélar
og peninga en ég. Auk þess hafa
þeir verið með fleiri fallegum
konum en ég. Hversu slæmt getur
þetta verið?“
Er þetta undarlegasti orðróm-
ur sem þú hefur heyrt um sjálfan
þig? „Úff, hann er nú svolítið
skrítinn. En ég hef farið umvaf-
inn orðrómum í 45 ár.“
Verður auðveldara að takast á
við þá með árunum?
„Já, algjörlega. Þeir skipta mig
engu máli. Ég held líka að það sé
þess vegna sem ég hef alveg
sloppið við það að verða skotmark
fjölmiðla. Ég hef aldrei verið einn
af þessum leikurum sem tímarit
eða dagblöð taka fyrir. Ég held að
það sé vegna þess að ég hef aldrei
kvartað yfir neinu sem hefur
verið skrifað um mig. Fyrr eða
síðar mun alltaf einhver skrifa
eitthvað bölvað rugl um þig.“
Drukknaði læknisfræðilega rétt
Þegar þú varst beðinn um að leika
í endurgerð The Poseidon Advent-
ure, veltir þú því þá fyrir þér
hvort það væri þess virði að reyna
að toppa eldri myndina?
„Fannst þér fyrri myndin
virkilega góð?“ spyr Kurt eins og
ég sé eitthvað skrítinn. „Mér
finnst hún hálf slöpp, þannig að
ég velti því ekki einu sinni fyrir
mér. Ég vissi að Wolfgang myndi
gera sína eigin útgáfu af þessari
mynd. Í Hollywood er það hefð að
gera nokkrar útgáfur af sömu
hugmynd. Ef þetta hefði verið
endurgerð af Casablanca þá hefði
ég nú kannski afþakkað gott boð.
Fyrri myndin er algjörlega úrelt,
þó svo að ég hafi haft gaman af
henni þegar hún kom út. Það er
heldur ekkert mitt starf að segja
til hvort framleiðendur eigi að
endurgera myndir eða ekki. Það
er mitt starf að ákveða hvort ég
eigi að taka þátt í slíku. Ég hafði
bara mínar ástæður. Ég er á
þannig stað í lífi mínu að ég get
hreinlega ákveðið hvort ég vilji
vinna eða ekki. Ég hafði aldrei
unnið með Wolfgang og mér datt í
hug að það gæti orðið gaman. Mér
hefur fundist margar mynda hans
spennandi og ég vissi vel að hann
myndi gera mun alvarlegri og
raunverulegri mynd en sú eldri
er. Þá fannst mér spennandi til-
hugsun að fá að drukkna í kvik-
mynd. Sumir lifa það af í mynd-
inni, aðrir ekki. Svo þegar kom að
mér, þá datt mér í hug að ég gæti
gert svolítið sem ég hef aldrei séð
áður. Það er að drukkna læknis-
fræðilega rétt í kvikmynd. Ég las
mér til um hvernig væri hægt að
gera þetta og útskýrði fyrir Wolf-
gang að ég ætlaði mér að anda að
mér vatninu þegar kæmi að sen-
unni.“
Var þá ekkert hættulegt að
skjóta þá senu?
„Jú, það sem við urðum að gera
var að fá kafara til þess að koma
á hárréttum tíma og gefa manni
loft. Ef maður fær loft strax eftir
að maður hleypir smá vatni í lung-
un ætti allt að vera í lagi.”
En hvernig tilfinning var það?
„Í fyrstu var mjög erfitt að
komast yfir ofsahræðsluna. Við
skutum atriðið fyrst tvisvar en
það mislukkaðist. Ég var nálægt
því að hætta við en mundi svo
eftir því að þetta hefði verið það
sem ég ætlaði mér að gera. Ég
treysti manninum sem átti að sjá
um öryggi mitt. Ég sneri mér að
honum, bað hann vinsamlegast
um að klúðra þessu ekki og lét
bara vaða.“
Sem betur fer heppnaðist atrið-
ið fullkomlega því Kurt er enn í
fullu fjöri og stekkur á fætur um
leið og aðstoðarmaður hans
kemur inn í herbergið til að til-
kynna okkur að tíminn sé liðinn.
„Gaman að spjalla við þig,” segir
hann að lokum. „Afsakaðu, ég
ætlaði ekki að móðga þig með
þessu með kaþólsku spurninguna,
ég vona að þú sért ekki strangtrú-
aður,“ bætir hann við. Ég tek í
höndina á Kurt og fullvissa leik-
arann um að hann þurfi nú ekki
að hafa miklar áhyggjur af því.
biggi@frettabladid.is
Umvafinn orðrómi í 45 ár
HETJAN Í POSEIDON Robert Ramsey er strangur faðir en Kurt Russell segist sjálfur aldrei
þurft að hafa miklar áhyggjur af börnunum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES.
HARÐJAXL Kurt Russell hefur yfirleitt leikið hetjur í sínum myndum og hér er hann ásamt
Chuck Norris og Don Johnson á leið í kappakstur.
Í UPPHAFI FERILSINS Kurt Russell ásamt Veronicu Cartwright, Bob Denver, Bill Mumy og
Jay Noan við upphaf ferils síns árið 1966 en þá lék hann í mynd með Elvis Presley sem
hann lék reyndar seinna meir.
ÓAÐSKILJANLEG Kurt Russell og Goldie Hawn hafa verið nánast óaðskiljanleg frá árinu 1983 og mæta nánast aldrei án hvors annars við
opinberar athafnir. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Kurt Russell hefur verið ótrúlega langlífur í
Hollywood og er vafalítið undantekningin á þeirri
reglu að barnastjörnur í kvikmyndaborginni fari
yfirleitt til fjandans. Birgir Örn Steinarsson fór svo-
lítið í taugarnar á leikaranum þegar þeir hittust í
London í tilefni af frumsýningu stórslysamyndar-
innar Poseidon.
ÞEKKTUSTU MYNDIR
KURT RUSSELL
1981 Escape from New York
1982 The Thing
1983 Silkwood
1986 Big Trouble in Little China
1988 Tequila Sunrise
1989 Tango & Cash
1991 Backdraft