Fréttablaðið - 08.06.2006, Qupperneq 86
54 8. júní 2006 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Handsláttuvélar
Bumbubaninn
víðfrægi
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Greinakurlarar
2200 W
öflugur mótor.
Max 40 mm
greinar
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Laufsugur
Fáanlegar með bensínmótor
eða rafmótor.
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Vélorf
Tilvalin fyrir
heimilið og
sumarbústaðinn
Vélorf með
rafmagns- eða
bensínmótor
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
fyrir garðinn
Garðslöngur
Slöngutengi
Veltiúðarar
Úðabrúsar
LEIKMAÐUR
UMFERÐARINN
AR
LIÐ UMFERÐARINNAR
Peter Gravesen (3)
Sigmundur Kristjánsson
Davíð Þór Rúnarsson (2)Atli Viðar Björnsson
Daniel Servino
Daði Lárusson
Davíð Þór Viðarsson
Milos Glogovac Óðinn Árnason
Viktor Bjarki Arnarsson (4)
Ólafur Ingi Stígsson
3-5-2
FÓTBOLTI „Ég geri bara það sama
og allir aðrir markmenn. Ég vel
mér horn til að fara í og vona það
besta,“ sagði Daði Lárusson, leik-
maður fjórðu umferðar, en hann
varði tvær vítaspyrnur í leik gegn
Keflavík á mánudaginn.
Önnur vítaspyrnan kom í
uppbótartíma og
fengu Keflvíkingar
gullið tækifæri til að
jafna metin en Daði sá
til þess að það gerðist
ekki og FH vann 3-2. Íslands-
meistararnir eru með fullt hús
stiga eftir fimm umferðir og eru
strax komnir með sex stiga for-
skot.
„Maður gat vissulega ekki séð
það fyrir að við næðum strax
svona góðu forskoti í deildinni.
Úrslitin hafa spilast okkur í hag,
við siglt lygnan sjó meðan allir
aðrir hafa unnið alla,“ sagði Daði
en hann hefur aðeins fengið á sig
þrjú mörk í fyrstu fimm umferð-
unum. „Vörnin hefur verið mjög
traust hjá okkur. Við erum vel
settir með miðverði og ekki verið í
vandræðum þrátt fyrir að hafa
misst Auðun Helgason og Sverri
Garðarsson. Þá hefur Tommy
Nielsen ekki verið heill. Ármann
Smári hefur verið hreint
magnaður og átt eina
óvæntustu endurkomu
íslenska boltans.“
Þrátt fyrir að hafa
misst marga góða menn frá
því í fyrra virðist það ekki hafa
komið niður á FH. „Við höfum
bara breytt leikskipulaginu sam-
hliða þessu. Nýju mennirnir hafa
komið sterkir inn í þetta. Venni
(Sigurvin Ólafsson) hefur verið að
spila fantavel á miðjunni og Allan
Dyring er duglegur og berst vel
fyrir liðið. Svo höfum við endur-
heimt leikmenn sem voru í láni
síðasta sumar og þeir koma reynsl-
unni ríkari inn í hópinn hjá
okkur.“
Daði er 32 ára og
hefur alla tíð spil-
að með FH og
búið lengi í Hafn-
arfirði þó hann
sé fæddur í
Reykjavík.
„Ég lít á mig
sem Gaflara
þó að hörð-
ustu Gafl-
ararnir
geti
kannski
ekki samþykkt það. Ég stefni þó á
að verða viðurkenndur sem Gafl-
ari,“ sagði Daði í léttum tón. „Það
hefur verið frábært að fá að taka
þátt í því að vekja risann og upp-
gangur liðsins hefur verið ótrú-
legur síðustu ár. Stjórnin hefur
staðið sig vel og þá hafa stuðn-
ingsmenn okkar spilað ómetanlegt
hlutverk og eiga hrós skilið.“
Stuðningsmenn FH hafa verið
duglegir við að hrópa „Daða í
landsliðið“ en sjálfur segist hann
líta á það sem bónus ef hann nær
því að komast þangað. „Mín stefna
er bara að halda áfram að standa
mig fyrir FH í öllum leikjum. Svo
væri ekki leiðinlegt ef við næðum
árangri í Evrópukeppnninni eftir
vonbrigðin í fyrra þar sem við
fengum drátt dauðans og lékum
gegn liði frá Fjarskanistan. Það lið
var mjög sterkt en vonandi verð-
um við heppnari með dráttinn í
ár,“ sagði Daði.
elvar@frettabladid.is
Vill verða viðurkenndur Gaflari
Daði Lárusson, markvörður FH, hefur verið valinn leikmaður fimmtu umferðar af Fréttablaðinu. Daði
hefur verið traustur milli stangana það sem af er leiktíð og var hetja liðsins gegn Keflavík á mánudag.
TRAUSTUR Daði Lárusson hefur spilað lykilhlutverk í velgengni FH undanfarin ár.
HANDBOLTI Unglingalandsliðsmað-
urinn Arnór Gunnarsson hjá Þór
er að öllum líkindum á leið til
Vals. „Það er nánast pottþétt.
Málið hefur þó tafist,“ sagði
Arnór. Svo gæti farið að Þór sam-
einist grönnum sínum í KA en ef
af því verður mun samningur
Arnórs falla niður og þá verður
honum frjálst að ganga til liðs við
hvaða lið sem er og það þarf ekk-
ert að greiða fyrir hann.
„Ég reikna nú með því að ef
Þór og KA sameinist muni verða
talað við mig. En hreint út sagt þá
hef ég bara ekki áhuga á því að
spila undir merki KA,“ sagði
Arnór. Hann hyggst fara í nám í
Reykjavík og þá er unnusta hans
búsett á höfuðborgarsvæðinu og
hugur hans leitar því þangað.
Hann hefur útilokað alla aðra
möguleika en Val. Axel Stefáns-
son, sem þjálfaði Þórsara í vetur,
er að taka við norska úrvalsdeild-
arliðinu Elverum og bað hann
Arnór um að koma með sér út.
„Ég ákvað að neita því boði þar
sem ég tel mig ekki vera tilbúinn
að fara út. HK og Fram vildu
einnig fá mig en ég gaf félögun-
um afsvar,“ sagði Arnór. - egm
Handboltamaðurinn Arnór Gunnarsson spilar væntanlega fyrir Valsmenn næsta vetur:
Hef ekki áhuga á því að spila undir merki KA
Knattspyrnumaðurinn Veigar Páll
Gunnarsson hefur svo sannarlega staðið
sig frábærlega á tímabilinu í Noregi og
er hann markahæstur í úrvalsdeildinni
með sjö mörk eftir ellefu umferðir. „Ég
viðurkenni það að ég bjóst ekki við
því fyrir fram að verða markahæstur á
þessum tímapunkti. Það hefur gengið
ótrúlega vel og það er allt öðruvísi að
ganga inn á völlinn núna. Sjálfstraustið
er í botni, ég æfði eins og vitleysingur
fyrir tímabilið og er kominn í mjög gott
form,“ sagði Veigar, en hann spilar fyrir
Stabæk.
Hann kom til liðsins fyrir tveimur árum
en átti erfitt uppdráttar vegna meiðsla
og Stabæk féll. Það vann sér síðan inn
sæti í úrvalsdeildinni að nýju í fyrra og
er nú í áttunda sæti. Á þriðjudaginn
gerði liðið 2-2 jafntefli við Våler-
enga en Veigar skoraði glæsilegt
mark í leiknum framhjá landsliðs-
markverðinum Árna Gauti Arasyni
auk þess að leggja hitt markið
upp.
„Ég fékk boltann óvænt
milli varnar og miðju.
Enginn leikmaður var
í mér svo ég náði að
reka boltann aðeins
áfram og þegar ég sá
að enginn varnarmaður
var á leiðinni í mig þá
lét ég bara vaða. Ég
hitti boltann mjög
vel og Árni átti
einfaldlega ekki
möguleika,“ sagði
Veigar sem var valinn í úrvalslið
umferðarinnar fyrir frammistöðu
sína í leiknum.
Þegar Veigar er spurður út í
persónuleg markmið segir hann
að brátt sé tími til kominn
að stíga næsta skref. „Ég
ætla að halda áfram að
standa mig hérna og svo
ætla ég að reyna að komast í
sterkari deild. Ég hef alltaf verið
hrifinn af Hollandi og væri alveg
til í að fara þangað sem dæmi. En
ef ég fæ ekki tækifæri á að fara í
sterkari deild verð ég bara að taka
því og halda áfram að standa mig
hér,“ sagði Veigar Páll Gunn-
arsson, markahæsti leikmaður
norsku úrvalsdeildarinnar.
KNATTSPYRNUKAPPINN VEIGAR PÁLL GUNNARSSON: ER MARKAHÆSTUR Í NORSKU ÚRVALSDEILDINNI
Allt öðruvísi að ganga inn á völlinn
> Einar aftur til Minden
Handknattleikskappinn Einar Örn
Jónsson þarf að fara aftur til Minden í
frekari læknisskoðanir hjá þýska úrvals-
deildarfélaginu en Einar var í ítarlegum
rannsóknum hjá félaginu á dögunum.
Félagið teflir ekki á tvær hættur með
hnémeiðsli leikmanna eftir að það
samdi við Patrek Jóhannesson á sínum
tíma en síðar kom í ljós að hnémeiðsli
hans voru verri en í
fyrstu var talið. Ef rann-
sóknirnar
ganga að
óskum
mun
Einar skrifa
undir samning við
félagið í kjölfarið en
hann hefur leikið með
Torrevieja á Spáni í
vetur.
Nýr samningur við Visa
Visa Ísland hefur framlengt samstarfs-
samning sinn við Íþróttasamband
fatlaðra um þrjú ár. Styrknum verður
varið til undirbúnings fyrir Ólympíumót
fatlaðra í Peking árið 2008. Íslenskt
íþróttafólk hefur verið í fremstu röð á
mótum fatlaðra undanfarin ár.
HANDBOLTI HK sótti í gær um
félagaskipti fyrir litháíska mark-
vörðinn Egidijus Petkevicius.
Hann stendur í deilu við Fram,
sem ákvað að framlengja ekki
launasamning hans en krefst engu
að síður greiðslu fyrir hann þar
sem eitt ár er eftir af leikmanna-
samningi hans við félagið.
Petkevicius sættir sig ekki við
þessa hegðun Framara og vill ekki
sjá að greitt verði fyrir sig. Hann
er búinn að semja við HK og að
undirlagi Petkeviciusar hefur HK
sótt um félagaskipti fyrir mark-
vörðinn á þeim forsendum að hann
sé laus allra mála.
„Nú bíðum við eftir svari frá
forráðamönnum Fram og ef þeir
neita að sleppa honum án greiðslu
er ekkert annað í spilunum en að
kæra málið en það er ósk Petja að
við gerum það,“ sagði Hilmar
Sigurgíslason, formaður hand-
knattleiksdeildar HK, við Frétta-
blaðið í gær.
„Ég heyri ekki betur en Fram
ætli ekki að sleppa honum og Petja
vill ekki að það verði greitt fyrir
sig. Við munum því keyra málið
alla leið fyrir hönd Petja ef á þarf
að halda því hann getur ekki rekið
málið sjálfur. Ég held að það sé
líka nauðsynlegt þar sem fleiri
eru í þessari stöðu og við þurfum
fordæmisgefandi mál svo línurn-
ar verði alveg skýrar í framtíð-
inni,” sagði Hilmar. - hbg
Mál Egidijusar Petkeviciusar:
HK sækir um
félagaskipti
PETKEVICIUS Mun fara með málið til EHF ef
á þarf að halda.