Fréttablaðið - 08.06.2006, Síða 87
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 55
410 4000 | landsbanki.is
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
30
53
06
/2
00
6
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
30
53
06
/2
00
6
Tryggðu þér miða á betra verði á
landsbankadeildin.is eða ksi.is
fim. 8. júní kl. 19:15
fim. 8. júní kl. 19:15
fim. 8. júní kl. 19:15
lau. 10. júní kl. 16:00
sun. 11. júní kl. 19:15
lau. 10. júní kl. 16:00
mán. 12. júní kl. 19:15
mið. 14. júní kl. 19:15
mið. 14. júní kl. 19:15
Valur - Fylkir
Víkingur - Grindavík
Keflavík - ÍA
ÍBV - KR
Breiðablik - FH
KR - Valur
Breiðablik - Þór/KA
Keflavík - FH
Fylkir - Stjarnan
5. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA
6. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA
�������
����������������
�����������������������������
�� ���������������������������
������ ���������
FÓTBOLTI Forráðamenn Barcelona
eru staddir í London þessa dagana
þar sem þeir eru í viðræðum við
Chelsea um kaupverðið á Eiði
Smára Guðjohnsen. Eggert Skúla-
son, talsmaður Eiðs, staðfesti
þetta við Fréttablaðið í gær en
ekki náðist í Arnór Guðjohnsen,
föður og umboðsmann Eiðs, frek-
ar en undanfarna daga.
Líklegt er að risafélögin nái
samkomulagi en talið er að Chel-
sea vilji fá um fimmtán milljónir
evra fyrir Eið en Barcelona sé að
reyna að lækka það nær tíu millj-
ónunum. Sá áhugi sem önnur félög
hafa sýnt Eiði, til að mynda
Manchester United, gerir það að
verkum að forráðamenn Chelsea
eiga auðveldara með að halda
kaupverðinu uppi, þar sem þeir
geta hótað Börsungum því að leita
annað gangi þeir ekki að kröfum
sínum.
Arnór var í Barcelona á dögun-
um en er nú kominn aftur til Eng-
lands. Talið er að hann hafi verið
að ræða við Barcelona um kaup og
kjör fyrir son sinn, sem verður
líklega að taka á sig launalækkun
til að ganga til liðs við Spánar- og
Evrópumeistarana.
El Mundo Deportivo, staðar-
blað í Barcelona, heldur því fram
að þegar sé búið að semja um kaup
og kjör um launamál Eiðs Smára.
Samkvæmt blaðinu verður launa-
greiðsla Eiðs 3,2 milljónir evra á
ári, en það verða laun hans og
bónusgreiðslur. Upphæðin er sú
sama og hann fékk í laun hjá Chel-
sea utan bónusgreiðslna og því
lækka laun Eiðs lítillega.
- hþh
Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen mun að öllum líkindum semja við Evrópumeistarana:
Chelsea og Barcelona í samningaviðræðum
EIÐUR SMÁRI Nokkuð ljóst er að hann hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Chelsea, eftir tvo
Englandsmeistaratitla með félaginu. NORDICPHOTOS/AFP
TENNIS Hinn ungi Spánverji Rafael
Nadal komst í undanúrslit á opna
franska meistaramótinu í tennis í
gær. Þessi tvítugi piltur er hand-
hafi titilsins á mótinu en andstæð-
ingur hans, Novak Djokovic,
neyddist til að hætta keppni vegna
meiðsla þegar Nadal leiddi leikinn
2-0 í settum.
„Það er aldrei skemmtilegt að
vinna á þennan hátt. Ég var reynd-
ar með fína stjórn á leiknum en
svona er þetta,“ sagði Nadal. Þetta
var 58. sigur hans á leirvelli í röð
og virðist enginn geta skákað
kappanum á þeirri tegund yfir-
borðs.
Í undanúrslitum á föstudag
mætast annars vegar Svisslend-
ingurinn Roger Federer og Arg-
entínumaðurinn David Nalbandian
og hins vegar Nadal og Ivan
Ljubicic. - hþh
Opna franska meistaramótið:
Nadal kominn
í undanúrslitin
MEIDDIST Djokovic meiddist í leiknum
gegn Nadal og lauk þar með keppni.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Allar líkur eru á því að
franski sóknarmaðurinn Djibril
Cisse yfirgefi herbúðir Liverpool
og gangi í raðir Marseille í heima-
landi sínu. Hann hefur gefið það
út að hann vildi glaður spila fyrir
liðið en forráðamenn Marseille
hittu kumpána sína hjá Liverpool í
gær vegna Cisse.
Pape Diouf, forseti Marseille,
gaf það út í gær að hann vonaðist
til þess að tryggja sér Cisse að láni
fyrst um sinn, með forkaupsrétt
innifalinn í samningnum. Óvíst er
hvort Liverpool samþykki það, þar
sem félagið þarf væntanlega fjár-
muni til að kaupa nýjan sóknar-
mann í staðinn. - hþh
Djibril Cisse:
Á leiðinni til
Marseille
FÓTBOLTI Paul Robinson, mark-
vörður enska landsliðsins, er ekki
sáttur við eiginleika hins opinbera
bolta heimsmeistaramótsins.
„Þessi bolti minnir mann meira
á sund- eða blakbolta. Hann er
mjög léttur og hreyfist óþægilega
mikið í loftinu, jafnvel þó það sé
ekki Roberto Carlos eða Ronald-
inho sem skjóti,“ sagði Robinson
en England leikur fyrsta leikinn
sinn á HM gegn Paragvæ á laugar-
daginn. - egm
Heimsmeistarakeppnin:
Robinson ekki
sáttur við bolta