Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 91
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
13
3
500.000 KR. VERÐLÆKKUN!
VERÐBÓLGAN
BÍTUR EKKI Á NISSAN
Nissan X-Trail Sport
Verð aðeins 2.890.000 kr.
Nissan Patrol Elegance sjálfskiptur
Verð aðeins 4.790.000 kr.
Verð áður 5.290.000 kr.Verð áður 3.390.000 kr.
Önnur tilboð frá Nissan gilda ekki með þessu tilboði. Aukahlutir á mynd: 35" breyting krómgrind með kösturum og toppbogar.
BORGAÐU MINNA
FYRIR MEIRI LÚXUS
TAKMARKAÐ
MAGN!
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
EINTAK STRAX!TRYGGÐU ÞÉR
FÓTBOLTI Þrír athyglisverðir leikir
verða í Landsbankadeild karla í
kvöld og hefjast þeir allir klukkan
19:15. Á Laugardalsvellinum tekur
Valur á móti Fylki, Víkingur fær
Grindavík í heimsókn og í Kefla-
vík mætast heimamenn og ÍA.
„Stemningin í hópnum er bara
nokkuð góð þrátt fyrir að mikil
óvissa ríki um liðsuppstillingu
vegna meiðslavandræða,“ sagði
Ólafur Þórðarson, þjálfari Skaga-
manna, en hans menn eiga erfiðan
leik fram undan þar sem Keflvík-
ingar hafa spilað vel það sem af er
móti.
„Það er enginn andstæðingur í
deildinni erfiðari en einhver
annar. Við höfum ekki verið að
spila neitt illa að undanförnu en
það vantar samt sem áður trúna í
mína leikmenn,“ sagði Ólafur, sem
vonast til að geta blásið trú í sína
menn fyrir leikinn. Eftir þessa
umferð verður þriðjungur búinn
af mótinu en ÍA er í botnsæti deild-
arinnar og hefur enn ekki hlotið
stig.
„Vissulega verður þriðjungur
búinn af mótinu en á móti verða-
tveir þriðju eftir og 36 stig í pott-
inum, þannig að það er alveg nóg
eftir, við enduðum með 32 stig í
fyrra og getum tölfræðilega alveg
bætt það ennþá. Við erum alls ekki
á þeim buxunum að gefast upp,“
sagði Ólafur en Þórður Guðjóns-
son, Kári Steinn Reynisson, Dean
Martin og Hafþór Ægir Vilhjálms-
son eru allir tæpir fyrir leikinn í
kvöld.
Reykjavíkurslagur Vals og
Fylkis verður einnig á dagskránni
í kvöld en með heimasigri komast
Valsmenn upp að hlið Árbæinga
sem hafa níu stig í 2.-4. sætinu,
sex stigum á eftir Íslandsmeistur-
um FH. Víkingar eru einnig með
níu stig en þeir eru á hörkuskriði
og hafa unnið þrjá síðustu leiki
sína. Þeir fá Grindvíkinga í heim-
sókn, sem eru aðeins stigi á eftir
Víkingi og má því reikna með
hörkuleik en sú viðureign verður
sýnd í beinni útsendingu á Sýn.
- egm
Tapar ÍA sjötta leik sínum í röð í deildinni?
Ekki á þeim buxun-
um að gefast upp
FAGNA ÞEIR Í KVÖLD? Ólafur og Þórður hafa lítið getað fagnað það sem af er tímabili.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL