Fréttablaðið - 08.06.2006, Side 94
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Nýr humar, grillpinnar
sólþurrkaður saltfiskur
opið alla laugardaga 11-14
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
Þ
ú
ve
rð
u
r
b
ar
a
lík
a…
Heimsmeistaramótið: Þeir sem eru
með Sýn eru sjálfsagt þegar búnir að
taka helgina frá til að fylgjast með fyrstu
leikjum HM um helgina. Þeir sem ekki
ná leikjunum hafa nú góða átyllu til að
heimsækja vini og kunningja og glápa
á HM, því það er auðvelt að smitast af
æðinu og jafnvel antisportistar geta
haft lúmskt gaman að.
Hafnarhús: Carnegie Art Award-
sýningin í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, endurspeglar það besta
í norrænni samtímalist. Sýningin
hefur ferðast um höfuðborgar allra
Norðurlandanna auk Nice í Frakklandi
og Lundúna og sýnir meðal annars verk
Eggert Péturssonar sem hlaut önnur
verðlaun Carnegie Art Award 2006.
Súfistinn: Hvernig sem viðrar er nota-
legt að eyða laugardeginum á kaffihúsi
með stafla af blöðum og bókum. Gott
kaffi, hábókmenntir eða léttmeti í formi
slúðurblaða og útsýni yfir líflegan Lauga-
veg er uppskrift að góðri stund.
Omen: Hrollvekjan Omen kemur í
bíóhús um helgina og blóðþyrstir ættu
að skella sér á þessa nýjustu mynd
leikstjórans John Moore, sem er reyndar
endurgerð af myndinni frá 1976. Julia
Stiles og Marshall Cupp fara með
aðalhlutverk í myndinni sem foreldrar
andkrists.
Tapasbarinn: Suðræn stemning sem
yljar manni um hjartaræturnar og góður
matur sem gaman er að borða.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn: Bol-
inn Guttormur er genginn, en garðurinn
iðar engu að síður af lífi. Börnin elska að
heilsa upp á dýrin og kíkja í tækin.
Helgin okkar...
HRÓSIÐ
... fær Sigur Rós fyrir að ætla að
halda stórtónleika á Miklatúni í
sumar sem verða opnir öllum.
LÁRÉTT:
2 skipalægi 6 í röð 8 tala 9 fálm 11
hæð 12 sannfæringar 14 gnýr 16
ætíð 17 rangl 18 umhyggja 20 tveir
eins 21 óhljóð.
LÓÐRÉTT:
1 örverpi 3 mannþyrping 4 lögtak 5
á nefi 7 fiskur 10 ferð 13 drulla 15
þurrka út 16 verkfæri 19 númer.
LAUSN:
Þrír íslenskir vinir eru um þessar
mundir á ferðalagi um Bandaríkin
á ellefu metra löngum húsbíl.
Flakka þeir á milli ríkja og taka
viðtöl bæði við heimamenn og
Íslendinga sem búa þar. Komust
þeir í kynni við meirihluta fólksins
í gegnum heimasíðuna Myspace.
com sem hefur notið mikilla vin-
sælda að undanförnu.
Myndbrot úr ferðinni birta þeir
síðan reglulega á heimasíðunni
frankieleetv.com. „Okkur datt
fyrst í hug að fara til Bandaríkj-
anna og ferðast með rútu. Síðan
ákváðum við að fara á húsbíl og
sendum bandaríska sendiráðinu
póst og sögðum því frá hugmynd-
inni,“ segir Karl Hreinsson, einn
af þremenningunum. Fólst hug-
myndin í því að hafa myndband-
stökuvél með í för og taka upp efni
sem yrði síðan sett á netið. Um
yrði að ræða gott tækifæri fyrir
þá sem á horfðu til að kynnast
betur hinu fjölmenningarlega
samfélagi Bandaríkjamanna.
„Það er varla hægt að fara á
kaffihús á Íslandi án þess að heyra
fordóma um Bandaríkjamenn; að
þeir séu feitir og heimskir og
þeim sé alveg sama um restina af
heiminum. Við ákváðum að fara og
athuga hvort það væri fótur fyrir
þessum fordómum og raunin er að
svo er ekki, langt í frá,“ segir Karl.
„Þeir eru ekki svona einsleitir eins
og fólk heldur. Ég er búinn að ferð-
ast til nokkurra landa og hef aldrei
séð svona mikla fjölbreytni.“
Þeir félagar hafa þegar ferðast
til New York, séð heimili Elvis
Presley í Graceland, skoðað sveita-
borgina Nashville og hitt Amish-
fólk í Pennsylvaniu. Engu að síður
nefnir Karl ferð þeirra í smábæinn
Rosedale í Mississippi sem þá eft-
irminnilegustu til þessa. „Það var
eins og að vera í Afríku því 98 pró-
sent bæjarbúa eru svört nema að
þar er hvítur bæjarstjóri,“ segir
hann. „Hann bannaði okkur eigin-
lega að fara í burtu og við vorum í
viku hjá honum. Við sigldum með
honum niður Mississippi-ána og
fórum síðan með honum á nætur-
klúbb sem hann átti. Þetta var
hálfgerður „gangster“.
Hann segist aldrei hafa orðið
var við ræningja í ferðinni þrátt
fyrir margar aðvaranir þess efnis.
„Fólkið hérna er svo rólegt í tíð-
inni. Enginn labbar framhjá þér án
þess að heilsa þér og ég held að
það væri gott fyrir Íslendinga að
taka upp sömu siði. Ég hefði aldrei
trúað því hversu almennilegir
Bandaríkjamenn eru.“
Áður en þeir félagar halda
heim á leið hinn 11. júlí ætla þeir
meðal annars að heimsækja Dall-
as, Mexíkó, Las Vegas, Los Angel-
es og San Francisco. Leggja þeir
engu að síður litla áherslu á skipu-
lagningu. „Þegar við leggjum af
stað erum við oft ekki búnir að
ákveða áfangastaðinn. Við förum
bara eitthvert og endum einhvers
staðar, það fer bara eftir and-
rúmsloftinu á hverjum stað fyrir
sig. Þetta er meira svona spuna-
ferð,“ segir Karl og er rokinn af
stað til Dallas.
freyr@frettabladid.is
ÞRÍR ÍSLENSKIR VINIR: FERÐAST UM BANDARÍKIN Í HÚSBÍL
Fordómalaus spunaferð
Í VILLTA VESTRINU Karl Hreinsson, Theódór Kristjánsson og Hrafn Jóhannesson eru staddir í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hafa þeir
lent í ýmsum ævintýrum.
LÁRÉTT: 2 höfn, 6 rs, 8 sjö, 9 pat, 11
ás, 12 trúar, 14 druna, 16 sí, 17 ráf, 18
önn, 20 mm, 21 garg.
LÓÐRÉTT: 1 urpt, 3 ös, 4 fjárnám, 5
nös, 7 sardína, 10 túr, 13 aur, 15 afmá,
16 sög, 19 nr.
Tónlistaverslunin 12 tónar og Ind-
riði klæðskeri ætla að opna versl-
anir sínar í Kaupmannahöfn í dag.
Verslanirnar eru hlið við hlið á
Fiolstrede, sem er þvergata af
Strikinu í miðborg Kaupmanna-
hafnar. Reyndar liggur gatan að
gamla háskólanum þar sem
íslenskir menntamenn drukku í
sig danska menningu og mjöð en
nú hefur dæmið hins vegar snúist
við og gefst þessari fyrrum herra-
þjóð okkar tækifæri til að kynnast
öllu því besta sem gengur og ger-
ist í íslenskri tónlist. „Þetta verð-
ur bara tíska og rokk og ról,“ segir
Lárus Jóhannesson hjá Tólf tónum,
en hann var í óða önn að gera sig
kláran fyrir brottför. „Megin-
markmið okkar er að sjálfsögðu
að kynna íslenska tónlist en einnig
að taka virkan þátt í dönsku tón-
listarlífi,“ bætir Lárus við.
Fyrirmönnum úr dönsku tón-
listar- og tískulífi hefur verið boðið
í teitið og var Lárus að vonum
bjartsýnn. „Við opnuðum reyndar
dyrnar fyrir tíu dögum síðan og
Danir hafa látið vel af þessu,“
útskýrir hann en Mugison spilaði á
fyrstu tónleikunum á föstudaginn
þar sem fjöldi fólks barði kappann
augum. Meðal þeirra sem koma
fram á opnunarhátíðinni eru Dikta
og Johnny Sexual en hann vinnur
að sinni fyrstu sólóskífu, sem
kemur út á vegum 12 tóna.
Aðspurður hvort Kim Larsen eða
Margrét Danadrottning hefðu ekki
örugglega fengið sín boðskort
sagði Lárus að Kim nennti ekki
lengur svona kynningarstússi.
„Margrét er hins vegar komin
uppá vegg auk síðasta konungsins
yfir Íslandi, Kristjáni X,“ segir
Lárus og því ekki laust við að
danska þjóðernisástin kvikni í
hjörtum þeirra sem koma inn í Tólf
tóna. -fgg
Rokk og tíska í Kaupmannahöfn
LÁRUS JÓHANNESSON Formleg opnun 12
tóna í Kaupmannahöfn verður í dag en þar
munu Dikta og Johnny Sexual troða upp
fyrir helstu menningarpáfa Dana.
FRÉTTABLAÐI/VILHELM
FRÉTTIR AF FÓLKI
Gestir á tónleikum Bubba Morthens í Laugardalshöll á þriðjudagskvöld
skemmtu sér konunglega. Meðal gesta
voru forsetahjónin, herra Ólafur Ragnar
Grímsson og Dorrit Moussaieff, og
tóku þau undir fagnaðarlæti gesta þar
sem þau sátu við hlið Bjarna Ármanns-
sonar, forstjóra Glitnis. Eftir því var tekið
að klæðnaður forsetafrúarinn- ar var
vel við hæfi tilefnisins, en
Dorrit klæddist gallabux-
um og leðurjakka
þetta kvöld.
Ekki vantaði
þó upp á
glæsileika
forsetafrúar-
innar, sem
tók sig
jafn vel út
og alltaf.
Rokksveitin Kimono hefur síðustu
mánuði gert út frá Berlín. Meðlimir
sveitarinnar fluttust allir út á síðasta ári
og hafa verið duglegir við tónleikahald
í Þýskalandi og reyndar víðar í Evrópu.
Innan tíðar verða þó breytingar á
búsetu meðlima sveitarinnar og munu
fjórmenningarnir verða búsettir í þremur
löndum. Söngvarinn Alex MacNeil
ætlar að búa áfram í Berlín en Dóri
bassa- leikari og Kjartan trommari
ætla að snúa aftur til
Íslands. Gítarleikarinn
Gylfi Blöndal er svo
búsettur á Írlandi ásamt
þarlendri kærustu sinni.
Þetta mun þó ekki
stoppa sveitina í að halda
áfram að semja og
flytja tónlist sína
og vinna við
þriðju breið-
skífu Kimono
stendur nú yfir.
Rappsöngvarinn Halldór Halldórs-son, betur þekktur sem Dóri DNA,
ætlar að skipta um starfsvettvang á
morgun. Halldór hefur starfað við
blaðamennsku og sjónvarps-
þáttagerð síðustu
mánuði með-
fram því að ljúka
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum
við Hamrahlíð. Hann
hefur nú ákveðið að
gerast útvarpsmaður á
rokkstöðinni X-inu 977
og mun standa
vaktina frá
15-17 á virkum
dögum af
alkunnri snilld.
- hdm
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI