Fréttablaðið - 08.06.2006, Qupperneq 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Ný
tt!
+ Staðgreiðsluverð
+ Lægri vextir
+ Lægri kostnaður
+ Til allt að 36 mánaða
+ Framlengdur ábyrgðartími
+ Flutningstrygging
+ Vildarpunktar
VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu-
dreifingar við kaup á vörum eða þjónustu.
– HAGSTÆÐAR AFBORGANIR
Spurðu um ENNE
M
M
/
S
ÍA
Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eða í síma 525 2000
Smelltu þér á www.ogvodafone.is, komdu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 og fáðu nánari upplýsingar.
Þú missir aldrei af HM marki
Sjáðu öll HM 2006 mörkin í símanum þínum
Hringitónar Fréttir og Íþróttir Leikir Skemmtun
36.900 kr.
NOKIA 6280
Skráðu þig strax - það er einfalt:
Þú sendir HM2006 á 1900. Ein
skráning og þú færð myndbrot af
öllum HM mörkunum í símann þinn.
Verð: Öll HM mörkin á 990 kr.
Sjáðu hvernig þetta virkar
Fáðu frítt prufumark í símann þinn
með því að senda HMPRUFA á 1900.
ÖLL SPENNAN Á HM 2006
Í EINUM PAKKA
Fullt verð 44.900 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
28
32
05
/2
00
6
������ �����
���� ������
����������
����������
Ég verð alltaf svo vandræðaleg-ur þegar betlarar gefa sig að
mér. Þá er ég að meina fullorðið
fólk, sem ég þekki ekki, sem geng-
ur upp að mér, segir að líf þess sé
ömurlegt, og biður mig um pen-
ing. Ég hef aldrei fundið þörf hjá
mér til að gefa slíku fólki fé. Ég
hef sem betur fer aldrei verið í
fátæku landi þar sem eru hungruð
lítil börn betla á götum úti.
ÞAÐ ER trú mín að enginn sé svo
aumur að hann hafi ekkert að gefa.
Þetta fólk gæti gert svo margt;
teiknað myndir, sungið, samið ljóð
um sitt ömurlega líf eða jafnvel
tekið myndir af því og selt þær. Ef
maður viki sér að mér og byði mér
að kaupa ljóð um hvað allt væri
ömurlegt er aldrei að vita nema ég
slægi til.
GÖTULISTAMENN eru annar
handleggur. Þeir eru algengir í
útlöndum. Ég gef slíku fólki oft
smápeninga. En það fer eftir því
hvað það er gefandi. Í London
rakst ég á fiðluleikara í neðanjarð-
arbrautarstöð. Hann spilaði af
slíkri innlifun að það snart mig og
ég gaf honum, ekki bara smápen-
inga heldur allt handbært fé sem
ég hafði á mér. Einn róni í San
Francisco spurði mig einu sinni:
„What is the greatest nation on
earth?“ Ég vissi það ekki og sagði
bara „Bandaríkin“ fyrir kurteisis
sakir. „It´s donation,“ sagði hann.
Við hlógum báðir og ég gaf honum
enda hafði hann gefið mér.
ÉG HEF rekist á tvo betlara í
Reykjavík nú í vor. Annar var
frekur og dónalegur við mig og
hræddi mig en hinn var ákaflega
kurteis og sagðist búa á götunni og
vantaði aura fyrir mat. Ég gaf
hvorugum. Ég var ekki einu sinni
með peninga á mér. Og í rauninni
fannst mér þeir alveg eins eiga að
gefa mér.
KANNSKI halda íslenskir betlar-
ar að ég sé svo kristinn að ég verði
að gefa þeim eða jafnvel að ég hafi
unnið í Lottó. Ég hef alveg fengið
minn skammt af ömurleika í þessu
lífi. Vorkunnsemi er ekki kærleik-
ur. Mér finnst ég hreinlega vera
að gera rangt með því að styðja
fjárhagslega við eitthvað sem
stríðir svona gegn sannfæringu
minni. Ég er bláfátækur maður og
stórskuldugur. Ég á fullt af börn-
um og reyni að sjá eins vel fyrir
þeim og ég get. Ef líf þitt er ömur-
legt þá þarft þú að gera eitthvað í
því. Hættu að væla og gefðu af
þér! Fátæka ekkjan gaf minnst fé
en gaf þó mest.
Betlarar