Fréttablaðið - 16.08.2006, Blaðsíða 8
8 16. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR
Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is
Akureyri
461-2960
Njarðvík
421-8808
Höfn í Hornafirði
478-1990
Reyðarfirði
474-1453
Umboðsmenn
um land allt
�������������������������
�������������
�����������������������������
�������������������������������� ���������������������������������������������
������������������������� �������������
�������� �������������������������������������������������������� ���������������������������������������
�� ���������������������������������������������������������� ������������������������������� ������
�������������
�������������
�������������
�������������
�����������������
�������������������
������������ �����
������������� ����
������������� �����������������
LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík
tók á dögunum til skoðunar meint
brot fasteignasölunnar Eign.is, en
dómsmálaráðuneytið sendi lög-
reglunni beiðni um skoðun þess
eftir að athugasemdir bárust frá
eftirlitsnefnd Félags fasteigna-
sala. Þar hafði vaknað grunur um
að salan væri starfrækt án þess að
við hana starfaði löggiltur fast-
eignasali.
„Það er alveg skýrt í lögunum
að til þess að starfrækja megi
fasteignasölu þá þarf til þess lög-
giltan aðila sem er í forsvari fyrir
sölunni og hefur full réttindi og
tryggingar til þess að reksturinn
geti staðist,“ segir Ingibjörg Þórð-
ardóttir, varaformaður Félags
fasteignasala.
Andrés Pétur Rúnarsson, eig-
andi Eign.is, lagði inn réttindi sín
til fasteignasölu fyrir ári, en
hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður
Gizurarson tók við ábyrgðinni.
Hann hætti svo þar í júní.
„Okkur höfðu borist vísbend-
ingar um að þarna væri starfrækt
sala án þess að á starfsstöðinni
væri starfandi löggiltur fasteigna-
sali. Það er það sem var verið að
kanna,“ segir Ingibjörg.
Andrés Pétur segir að enginn
rekstur hafi verið í gangi síðan
Sigurður hætti hjá fyrirtækinu.
Grunurinn hafi vaknað vegna þess
að vefsíða sölunnar var enn uppi,
en það hafi verið mistök að loka
henni ekki strax. Engar eignir hafi
verið auglýstar á síðunni, einungis
hafi verið þar óuppfærður frétta-
gluggi. Vefsíðunni var lokað á
fimmtudaginn var. Andrés segist
ekki vita betur en að lögregla hafi
lokið skoðuninni og að ekkert
óeðlilegt hafi komið í ljós.
Jónas Hallsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn, segir að lögreglu
hafi einungis verið falið að stöðva
reksturinn, væri hann enn í gangi.
Í ljós hafi komið að grunurinn
hafði vaknað út af heimasíðunni
sem var uppi, henni hafi nú verið
lokað og lögreglu hefði ekki borist
beiðni um að rannsaka málið frek-
ar. stigur@frettabladid.is
Eign.is skoðuð
vegna vefsíðu
Lögregla skoðaði fasteignasöluna Eign.is vegna
vefsíðu sem ekki hafði verið tekin niður. Grunur lék
á um að salan hefði verið starfrækt ólöglega. Lög-
reglu hefur ekki borist beiðni um frekari rannsókn.
ANDRÉS PÉTUR RÚNARSSON, Hættur rekstri
Eign.is enda ekki með réttindi.
TÉKKLAND, AP Tvö þúsund og fimm
hundruð stjörnufræðingar sitja
nú á ráðstefnu í Prag í Tékklandi
og deila um hvernig skilgreina
beri plánetu og hvort Plútó teljist
í rauninni til þeirrar tegundar.
„Fólk verður að koma sér
saman um hugtakasafn sem skýr-
ir hluti í geimnum,“ sagði Ronald
D. Ekers, forseti Alþjóðlegu
stjarnfræðisamtakanna. „Við vilj-
um ekki hafa eina bandaríska
útgáfu, aðra evrópska og enn aðra
japanska.“
Áratugum saman hafa vísinda-
menn talið að pláneturnar í sól-
kerfi okkar væru níu, þó sumir
hafi efast um að Plútó ætti þar
heima vegna smæðar. En á síð-
asta ári fannst svo Xena, sem er
stærri en Plútó en lengra í burtu.
Óákveðið er hvort skilgreina beri
hana sem plánetu.
Niðurstöður stjarnfræðinganna,
sem tilkynntar verða við lok ráð-
stefnunnar, gætu fækkað plánet-
um sólkerfisins, eða fjölgað þeim
upp í 23, 39 eða jafnvel 53. - smk
Alþjóðleg ráðstefna stjörnufræðinga í Tékklandi:
Deilt um plánetur
MARAÞON Rúmlega þrjú þúsund
manns hafa skráð sig í Reykjavík-
urmaraþonið, sem fer fram á laug-
ardag, en í fyrra höfðu þrefalt
færri skráð sig þegar svona stutt
var í hlaupið. - sgj
Reykjavíkurmaraþonið:
Góð þátttaka
REYKJAVÍKURMARAÞONIÐ Glitnir hvetur
starfsmenn sína til að taka þátt.
SKÓLAMÁL Samkeppni grunnskóla í
opinberum rekstri við einkaskóla
eykur gæði í skólastarfi, sam-
kvæmt rannsókn menntamálayf-
irvalda í Svíþjóð (Skolverket) frá
2005. Því hærra sem hlutfall einka-
skólanna er í hverju sveitarfélagi,
því betri er námsárangur sænskra
nemenda í skólum í opinberum
rekstri innan sama svæðis. Náms-
árangur nemenda er betri í einka-
skólunum, einnig þegar tekið er
tillit til félagslegra þátta og efna-
hags. Gústaf Adolf Skúlason hjá
Samtökum atvinnulífsins segir að
svipuð áhrif einkaskólanna megi
sjá á háskólastiginu á Íslandi.
„Við sjáum framfarir hjá ríkis-
skólunum í samkeppni við einka-
skóla, hvað varðar nýjungar,
aukna þjónustu og svo framveg-
is,“ segir Gústaf. „Það er misjafnt
hvernig einkaskólar á grunn- og
framhaldsskólastigi hafa fengið
fjármagn frá sveitarfélögunum,
en við höfum verið að benda á að
það eigi að ríkja jafnræði, þeir
eigi að fá samsvarandi fjármagn,“
segir Gústaf, en sænsku einka-
skólarnir fá sömu greiðslur með
hverjum nemanda frá ríkinu og
skólar í opinberum rekstri. -rsg
Samkeppni í sænska skólakerfinu hefur haft jákvæð áhrif samkvæmt rannsókn:
Fjöldi einkaskóla eykur gæði
ÍSAKSSKÓLI Samkeppni við einkaskóla hefur jákvæð áhrif á gæði í skólum í opinberum
rekstri.
SVÍÞJÓÐ, AP Svíar hafa boðið ráða-
mönnum í 60 löndum og hjálpar-
stofnunum að taka þátt í ráðstefnu
þar sem safnað verði fé sem notað
á til uppbyggingar í Líbanon. Ráð-
stefnan mun fara fram í lok þessa
mánaðar í Stokkhólmi og njóta
Svíar stuðnings Sameinuðu þjóð-
anna og Líbanons við undirbúning
hennar.
Meðal ríkja sem boðið hefur
verið á ráðstefnuna eru Bandarík-
in, Frakkland, Bretland, Þýska-
land, Noregur, Japan og arabísku
Persaflóaríkin. Hins vegar hefur
Ísrael ekki verið boðið, að sögn
Carin Jamtin, þróunarmálaráð-
herra Svíþjóðar. - smk
Uppbygging í Líbanon:
Svíar efna til
fjársöfnunar
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað heitir utanríkisráðherra Noregs?
2Hvaða kona býður sig fram til ritara Framsóknarflokksins?
3Hvaða erlenda íþróttalandslið er statt hér á landi?
SVÖR ERU Á SÍÐU 42