Fréttablaðið - 16.08.2006, Síða 66

Fréttablaðið - 16.08.2006, Síða 66
 16. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR30 Skjöldur Mio, tískuráðgjafi Ég taldi mig vita flest allt um tísku og útlit áður en ég fór í skólann. En annað kom á daginn. Ég hef lært heilmikið um fatasamsetningu, textil, litafræði, líkamsbyggingu og flest allt um útlit. Námið nýtist mér frábærlega í því sem ég er að gera. Starfsmöguleikar: Innkaupastjóri Útlitsráðgjafi Stílisti Verslunarstjóri 1. Önn Litgreining Förðun út frá litgreiningu Litasamsetning 2. Önn Fatastíll Fatasamsetning Textill Stundaskrá The Academy of Colour and Style er alþjóðlegur skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars tekið fyrir litgreining, fatastíll og textill. Eftir nám fá nemendur alþjóðlegt diplóma í útlitsráðgjöf (fashion consultant). Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi og geta nýst á ýmsum sviðum og atvinnugreinum. Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn með náminu. Kennsla fer fram í Iðnskólanum í Reykjavík einu sinni í viku frá 18-22. UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101 INNRITUN ER HAFIN FYRIR HAUSTÖNN Kristín, ráðgjafi Ég hef mikin áhuga á að starfa með fólki, veita ráðgjöf varðandi fatnað, liti og förðun sem hentar hverjum og einum. Mér finnst námið bæði lifandi og skemmtilegt sem einnig hefur opnað margar dyr til frekari náms á þessu sviði. Birna, verslunareigandi - Stílistinn Það hefur alltaf verður draumur hjá mér að stofna verslun með fatnað. Námið gaf mér það sjálfstraust sem ég þurfti til að fara út í reksturinn. Einnig nýti ég námið til þess að ráðleggja viðskiptavinum mínum hvaða snið og litir hentar þeim í val á fatnaði. „Helstu viðskiptavinir okkar eru útlendingar og búðin er búin að vera stútfull síðan við opnuðum síðasta sumar. Því kemur þetta mér ekki á óvart,“ segir Katrín Kristj- ánsdóttir sölumaður í 66°North búðinni í Banka- stræti en búðin er talin vera nauðsynlegt stopp í sólar- hringsferð um landið í heil- síðu grein um Ísland í nýj- asta hefti tímaritsins GQ-Magasine. Þar er stiklað á stóru um hvað er skemmti- legast og mest spennandi að gera á Íslandi og ber nafnið „24 hours in Iceland“. Ísland er sagt vera land andstæðn- anna og er lesendum blaðsins ráðlagt að leggja leið sína hingað vegna þess að íslenska þjóðin getur drukkið, nætur- lífið sé frábært og íslenskar stúlkur eru með þeim fal- legri í heiminum og því gott að getað látið þær hlýja sér því ekki er meðalhitastigið á landinu hátt. Í skemmtanalífinu eru Nasa og Kaffibarinn nefndir sem heitustu staðirnir ef maður vill dansa og fá sér drykk í góðra vina hópi. Apó- tekið er nefnt sem góður matsölustaður ásamt Café Rósenberg sem virðist hafa heillað blaðamann tímarits- ins með góðum mat á ódýru verði. Bláa lónið er auðvitað nefnt sem staður til að sjá og er lesendum ráðlagt að skella Sigurrós og Hjálmum í spil- arann á meðan á dvöl stendur til að fá íslenska tónlist beint í æð. Af þessu má dæma að Ísland sé komið í hóp eftirsóttustu ferða- mannastaða í heiminum í dag. -áp- Sólarhringur á Íslandi SKEMMTILEGA ÍSLAND Greinin er stór í blaðinu og gefur hún les- endum blaðsins mynda af landinu ásamt því að ráð- leggja þeim hvert er best að fara og hvað ber að gera í stuttu stoppi á landinu. Rapparinn Sean Combs, sem er betur þekktur undir nafninu P Diddy. er að verða faðir í þriðja sinn. Kærasta hans, Kim Porter, er ólétt af öðru barni þeirra hjóna en fyrir eiga þau níu ára son. Combs á enn fremur úr fyrra sam- bandi 12 ára gamlan strák sem heitir Justin. Faðir í þriðja sinn P DIDDY Rapparinn Sean Combs ætti að breyta nafni sínu úr Diddy í „Daddy“ því nú á hann von á sínu þriðja barni. FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS Rokkarinn Pete Doherty og fyrir- sætan Kate Moss eru trúlofuð sam- kvæmt breska blaðinu The Sun. Skötuhjúin komu saman í sjón- varpsþátt á Channel 4 í Bretlandi þar sem þau kysstust opinberlega í fyrsta sinn og lýsti Doherty yfir ást sinni á Moss. Ofurfyrirsætan bar risastóran demantshring sem talinn er vera trúlofunarhringur. Parið hætti saman fyrir ári í kjölfar myndbirtingar af eitur- lyfjanotkun Moss í breskum blöð- um og virtust þær ætla að binda enda á hennar glæsta fyrirsætu- feril. Hún náði að snúa við blaðinu en ekki er það sama að segja um Doherty sem hefur verið mikið í fjölmiðlum vegna eiturlyjafíknar sinnar. Fjölmiðlar hafa farið mik- inn í umfjöllun sinni um Doherty. Virtust þeir leggja sig í líma við að hrekja hann út úr tónlistarbrans- anum en lengi vel var talið að Doherty væri ein bjartasta von Breta. Hann mun þó hafa náð að fullvissa Moss um ágæti sitt og segja nánir vinir skötuhjúanna þau vera ástfangin upp fyrir haus. Jade Jagger, fyrirsæta og góð vin- kona Kate, ætlar að halda trúlof- unarveislu til heiðurs parinu á Ibiza. Parið fékk á sínum tíma ekki frið fyrir ljósmyndurum sem kepptust við að ná af þeim mynd- um í annarlegu ástandi. Breskir fjölmiðlar hugsa sér því væntan- lega gott til glóðarinnar nú þegar parið hefur ákveðið að trúlofa sig. Kate Moss og Pete Doherty trúlofuð DOHERTY OG MOSS Skötuhjúin hafa gengið í gegnum súrt og sætt en hafa nú fundið hamingjuna á ný og eru trúlofuð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES SIGURJÓN SIG- HVATSSON Eigandi 66°North og að vonum ánægður með sinn hlut í greininni. Ísland og þá fyrst og fremst Reykja- vík er sögusvið bandarísku mynda- sögunnar Umbra sem fjallar um rannsókn lögreglunnar á dularfullu morðmáli. Sagan hefst árið 1999 þegar beinagrind finnst í helli úti á landi. Meinafræðingurinn Askja fær það verkefni að rannsaka beinin og kemst fljótlega að því að ekki er allt með felldu þar sem beinin virðast vera af einhvers konar frummanni sem hefur verið ráðinn bani með byssukúlu. Umbra er eftir myndasöguhöf- undinn Murphy sem hefur helst unnið sér það til frægðar að skrifa myndasögur um stökkbreyttu bar- dagaskjaldbökurnar Teenage Mut- ant Ninja Turtles en hann hefur heldur betur skipt um gír og yrkis- efni. Sagan skiptist í þrjá hluta og tvö fyrstu blöðin eru komin til landsins. Pétur Yngvi Yamagat hjá mynda- söguversluninni Nexus segist ekki þekkja vel til fyrri verka Murphys en hann hafi einfaldlega ekki getað stillt sig um að kaupa Umbra. „Það er eitthvað ómótstæðilegt við bandaríska sakamálasögu sem ger- ist á Íslandi.“ Askja vinnur náið með rann- sóknarlögreglukonunni Freyju að rannsókn málsins og samstarfið er svo farsælt að þær enda saman í eldheitum ástarleik í Bláa lóninu að næturlagi. Leikurinn æsist svo enn frekar þegar rannsóknarstofa Öskju er sprengd í loft upp og byssumaður sýnir henni banatilræði í kjölfarið. Freyja skerst þá í leikinn, skiptist á skotum við misindismanninn á götum Reykjavíkur þar til eltingar- leikur hennar við skúrkinn nær hámarki í Hallgrímskirkju. Það er því engin lognmolla í henni Reykjavík þegar Murphy leyfir hinni vösku Freyju að leika þar lausum hala og það er ljóst að höfundurinn þekkir ágætlega til staðhátta. Varla er þó hægt að segja að íslenskur raunveruleiki blasi við á síðum myndasögunnar þó að per- sónurnar sjáist drekka „brenevin“. Þessi hildarleikur sem hófst á götum Reykjavíkur verður til lykta leiddur í þriðja hefti Umbra en allt útlit er fyrir að lokauppgjörið muni fara fram á Grænlandi en Murphy segir skilið við Öskju innan um ísjakana við Grænlandsstrendur í lok annars hluta. Lesbískar löggur í Bláa lóninu ÁST Í LÓNINU Valkyrjan Freyja dregur hina hlédrægu og taugaveikluðu Öskju á tálar í kísilgumsinu. HALGRIMUR´S CHURCH Það hitnar heldur betur í kolunum í Hallgrímskirkju þegar Freyja króar skotglaðan morðingja af í turninum fræga.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.