Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 12
12 24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
SNIGLAFARALDUR Miklar rigningar í Suður-
Kína undanfarið hafa valdið sniglafaraldri,
sem er að gjöreyða hrísgrjónauppskeru
bænda á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NÁTTÚRUVERND „Ég get ekki tjáð
mig um þetta mál,“ segir Jón Sig-
urðsson, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, spurður um hvort hann taki
undir þau sjónarmið Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, formanns
Samfylkingarinnar, að nýta ekki
jarðhitasvæði í Brennisteinsfjöll-
um og Grændal á Reykjanesi til
orkuvinnslu, heldur að gera svæð-
in að friðlandi. Jón telur það ekki
viðeigandi að ráðherra tjái sig um
mál eins og þetta á meðan það er í
afgreiðslu og fyrr en að vissum
skilyrðum uppfylltum.
Ingibjörg Sólrún segir í grein í
Fréttablaðinu á mánudag að mikil-
vægt sé fyrir Íslendinga að eiga
aðgang að ósnortnum háhitasvæð-
um en minnir jafnframt á mikil-
vægi þeirra svæða sem nú séu
þegar nýtt. Ingibjörg vitnar í
greininni til umsagna Umhverfis-
stofnunar og Náttúrufræðistofn-
unar Íslands um verndargildi
svæðanna við Brennisteinsfjöll og
Grændal og vill að varlega sé stig-
ið til jarðar áður en rannsókna-
leyfi verða gefin enda sé það mat
Náttúrustofnunar að rannsókna-
leyfi jafngildi stefnumörkun um
framtíðarnýtingu. Slíkum rann-
sóknum fylgi einnig röskun sem
breyti ásýnd viðkomandi svæða
óháð nýtingu. Ingibjörg telur frek-
ar ástæðu til að flýta rannsókna-
verkefninu Djúpborun á Íslandi
sem „á næsta áratug gæti gefið
okkur vísbendingar um hvort
vinna megi þrisvar til fimm sinn-
um meiri orku úr háhitasvæðum
en hingað til hefur verið talið ger-
legt“.
Jón segir að af hálfu ráðuneyt-
isins sé það að segja að komið hafi
neikvæð umsögn um rannsóknir
við Brennisteinsfjöll frá Umhverf-
isstofnun. „Það eru sameiginleg
einkenni varðandi Brennisteins-
fjöll og Grændal að umsækjendur
um rannsóknaleyfi eru fleiri en
einn. Þá verður ekki aðhafst í þeim
málum fyrr en alþingi hefur sett
lög um verklag um umsóknir. Það
er í vinnslu í sérstakri nefnd og ég
vænti þess að fá tillögur þeirrar
nefndar núna með haustinu.“
Jón segir það ekki ljóst hvaða
verklag skuli viðhafa þegar velja
eigi úr hópi umsækjenda og finna
verði aðferð og aðila sem getur
tryggt jafnræði og rétta stjórn-
sýslu. „Ég sem ráðherra get ekki
tekið á þessu máli fyrr en það ligg-
ur fyrir. Fyrst þarf að semja frum-
varp, leggja það fyrir þingið og
afgreiða það og þá fyrst getur
afgreiðsla hafist.“ svavar@frettabladid.is
Kveðst ekki
geta tjáð sig
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, getur
ekki tjáð sig um hvort gera skuli jarðhitasvæði á
Reykjanesi að friðlandi.
NESJAVELLIR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill takmarka fjölda og umfang þeirra svæða sem
lögð eru undir jarðvarmavirkjanir. Iðnaðarráðherra segir óviðeigandi að tjá sig um nýtingu
svæða á Reykjanesi á meðan afgreiðsla rannsóknaleyfa stendur yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KAUPMANNAHÖFN Þrítugur Dani
var í gær dæmdur í sextán ára
fangelsi fyrir morðið á tveimur
dætrum sínum. Þetta kemur fram
á fréttavef Politiken.
Telpurnar voru tveggja og sjö
ára þegar faðir þeirra stakk þær
með hníf í desember í fyrra. Hann
tilkynnti sjálfur um atburðinn, en
hótaði að fleygja sér af Stórabelt-
isbrúnni þegar lögreglan reyndi
að handtaka hann.
Í réttarsal sagðist maðurinn
ekki vita hvað honum hefði gengið
til og bar fyrir sig minnisleysi.
Jafnframt sagðist hann gera sér
grein fyrir því að hann myndi
hljóta harða refsingu, en að hún
væri þó léttbær miðað við refsing-
una sem hann hefði sjálfur skapað
sér þegar hann banaði börnum
sínum. - smk
Þrítugur Dani dæmdur í sextán ára fangelsi:
Myrti dætur sínar
MENNTUN Framhald.is, upplýs-
ingavefur fyrir fólk sem hyggur
á framhaldsnám, var opnaður í
menntamálaráðuneytinu í gær.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra opnaði vef-
inn og tilkynnti á sama tíma um
hundrað þúsund króna styrk sem
menntamálaráðuneytið veitir til
verkefnisins.
Höfundar síðunnar eru fjórir
ungir drengir í Verslunarskóla
Íslands sem fengu þá hugmynd
að safna saman upplýsingum um
framhaldsnám á einn stað. Á
vefnum má meðal annars finna
upplýsingar um námsbrautir,
aðstöðu og félagslíf í framhalds-
og háskólum landsins.
„Það má segja að við höfum átt
hugmyndina að þessu en við feng-
um aðstoð við sjálfa hönnun síð-
unnar. Við sátum margar kvöld-
stundir og margar nætur við að
setja upp efnið, fínpússa það og
gera það aðgengilegt.
Það má segja að þetta sé nið-
urstaðan,“ segir Jón Davíð Dav-
íðsson, einn höfundanna. Ásamt
Jóni unnu Hanus Jakobsen, Elvar
Örn Þórmarsson og Eiðbergur
Daníel Hálfdánarson að gerð
vefsins.
Þeir segjast ekki enn búnir að
ákveða hvað taki við eftir Versl-
unarskólann en segja tölvunar-
fræðinám liggja frekar beint
við. - sþs
Framhald.is, kynningar- og upplýsingavefur fyrir nema, var opnaður í gær:
Skólaupplýsingar á einn stað
VEFURINN KYNNTUR Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fylgist
með Elvari Erni Þórmarssyni kynna vefinn
Framhald.is.
HOLLAND, AP Bandarísk flugvél,
sem var á leið til Indlands, fékk
leyfi til að lenda á Schiphol-flug-
velli í Hollandi í gær og fékk her-
þotufylgd eftir að starfsfólk vélar-
innar tilkynnti um undarlega
hegðun nokkurra farþega um borð.
Nokkrir farþegar voru teknir í
yfirheyrslu hjá lögreglu eftir að
vélin lenti og voru tólf manns
handteknir. Ekki fékkst staðfest í
gær hvort grunur flugþjónanna
væri á rökum reistur.
Fluginu var aflýst og var far-
þegunum komið fyrir á hótelum.
Mun vélin halda áfram til Ind-
lands í dag. - smk
Undarleg hegðun farþega olli ótta um hryðjuverk:
Bandarísk flugvél
fékk herþotufylgd
FLUGVÉL LENDIR Flugvélin sem fékk her-
þotufylgd til Schiphol-flugvallarins í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MENNTAMÁL Stúdentaráð Háskóla
Íslands hefur sent frá sér ályktun
þar sem það fagnar því hversu
mikil áhersla er lögð á menntamál
í nýrri stjórnmálaályktun Fram-
sóknarflokksins, þá sérstaklega
hvað varðar jafnrétti til náms.
Stúdentaráð tekur undir það að
menntun og vísindi sé undirstaða
framfara og nýsköpunar. Það segir
baráttuna gegn upptöku skóla-
gjalda vera mikilvægasta liðinn í
að tryggja jafnrétti til náms við
Háskóla Íslands, og fagnar því að
eiga bandamenn innan ríkisstjórn-
arinnar þegar raddir um slík gjöld
gerast æ háværari. - sh
Stúdentar við Háskóla Íslands:
Fagna ályktun
Framsóknar
LÖGREGLA Landssamband lögreglu-
manna telur undanfarna umfjöllun
um störf lögreglumanna, meðal ann-
ars við Kárahnjúka, einsleita. Hún
sé til þess fallin að draga úr trúverð-
ugleika lögreglumanna og fagstétt-
arinnar í heild sinni. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu frá sambandinu.
Þar segir að við framkvæmd
lögreglustarfa beri stundum við
að valdbeiting verði nauðsynleg.
Þess sé þá jafnan gætt að vand-
lega sé farið að reglum og í sam-
ræmi við valdheimildir sem lög-
reglumenn hafa. Óviðkunnanlegt
sé þegar menn leggi sig fram við
að gera störf lögreglumanna tor-
tryggileg við þær aðstæður. - sþs
Lögreglumenn svara:
Stundum þarf
að beita valdi