Fréttablaðið - 24.08.2006, Page 18
18 24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
OKTÓBERFEST Bjórhátíðin fræga hefst í
München í Þýskalandi um miðjan sept-
ember, en fjölmargir eru farnir að taka
örlítið forskot á sæluna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HREINSUN Ráðist verður í annan
áfanga fegrunarátaksins „Tökum
upp hanskann fyrir Reykjavík“ á
laugardaginn næstkomandi. Að
þessu sinni verður tekið til hend-
inni í Grundarhverfi á Kjalar-
nesi.
Til undirbúnings var haldinn
samráðsfundur með íbúum hverf-
isins síðastliðinn mánudag. Meðal
þeirra sem sátu fundinn fyrir
hönd Reykjavíkurborgar voru
Gísli Marteinn Baldursson, for-
maður umhverfisráðs, og Óskar
Bergsson, formaður fram-
kvæmdaráðs.
Á fundinum voru línurnar lagð-
ar um hvernig staðið verður að
hreinsuninni. Meðal verkefna er
að tína rusl í hverfinu og leggja
túnþökur. Þá verða fótboltamörk
lagfærð og girðingar lagaðar þar
sem þörf þykir. - æþe
Hreinsunarátak borgarinnar:
Tekið til hendi í
Grundarhverfi
DAGVISTUNARMÁL Stjórn Barnavist-
unar, félags dagforeldra, sendi frá
sér yfirlýsingu í gær þar sem stofn-
un nýs leikskólaráðs hjá Reykjavík-
urborg er fagnað.
„Núna eigum við von á að fá að
vera meira með í ráðum eins og var
í leikskólaráði fyrir nokkrum árum,“
segir Helga Kristín Sigurðardóttir
sem situr í stjórn Barnavistunar.
„Áður fengum við að sitja sam-
ráðsfundi en eftir að leikskólaráðið
var lagt af höfum við þurft að berj-
ast fyrir öllu sem við höfum viljað
koma á framfæri.
Helga Kristín segir að þegar leik-
skólaráð var fellt inn í menntaráð á
sínum tíma hafi dagforeldrar
gleymst. Hún segir að lítið hafi verið
hlustað á dagforeldra eftir samein-
inguna og erfitt hafi reynst að fá
skýr svör frá stjórnendum. „Enginn
gat lofað neinu og okkur var sagt að
málið yrði skoðað, svo heyrðist ekk-
ert frekar frá viðkomandi. Það var
erfitt að ná eyrum stjórnenda því
við vorum svo fá,“ segir Helga
Kristín.
Dagforeldrar eru vongóðir um
að meira tillit verði tekið til kjara
þeirra með endurvakningu leik-
skólaráðs, þegar gjaldskrá leikskól-
anna er til umræðu og niðurgreiðsla
til foreldra hækki sem nemur lækk-
un leikskólagjalda.
„Við höfum barist fyrir því að
foreldrar hafi val. Að þeir geti
ákveðið að senda barnið sitt til dag-
foreldra án þess að það kosti meira
en að hafa það í leikskóla,“ segir
Helga Kristín. „Sumum börnum
hæfir betur að vera vistuð hjá dag-
foreldrum.“ - æþe
Barnavistun, félag dagforeldra fagnar nýju leikskólaráði Reykjavíkurborgar:
Búast við auknu samráði
LAGAMÁL Útvarpsstöðin XFM braut
hugsanlega lög með því að gefa
boðsmiða á myndina Thank You
for Smoking og sígaretta fylgdi
með miðanum. Skilyrði fyrir því
að fá miðann var að reykja sígar-
ettuna.
Jakobína Árnadóttir, verkefnis-
stjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsu-
stöð, segist líta málið alvarlegum
augum. Leitað hafi verið álits lög-
fræðings sem benti á að samkvæmt
tóbaksvarnarlögum væru hvers
konar auglýsingar á tóbaki bannað-
ar. Álitaefni væri hins vegar hvort
umrædd háttsemi útvarpsstöðvar-
innar hafi falið í sér auglýsingu í
skilningi laganna. -hs
XFM braut hugsanlega lög:
Reykingamenn
fengu bíómiða
SAN FRANCISCO
MINNEAPOLIS – ST. PAUL
ORLANDO
BOSTON
ÍSLAND
GLASGOW
MANCHESTER
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLIN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓAMSTERDAM
ZÜRICH
MADRID
BARCELONA
LONDON
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
Theódór Elmar Bjarnason, atvinnumaður í knattspyrnu, segir frá Glasgow í
nýjum haust- og vetrarbæklingi Icelandair, Mín borg. Við bjóðum úrval pakka-
ferða, helgarferða til 19 áfangastaða austan hafs og vestan, golfferða og
sérferða. Kynnið ykkur málið og takið síðan ákvörðun. Ævintýrin liggja í loftinu.
FLUG OG GISTING Í 2 NÆTUR FRÁ 29.900 KR.
„ÞAÐ ER ALLTAF GAMAN
AÐ KÍKJA Á ASHTON LANE,
EINA FRÆGUSTU
PÖBBAGÖTU EVRÓPU“
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
I
C
E
3
37
1
5
0
6
/2
0
0
6
+ Bókaðu á www.icelandair.is
G
LA
S
G
O
W
MÍN
Safnaðu
Vildarpunktum
Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting á Jurys Inn Hotel*** í tvíbýli í 2 nætur, morgunverður og þjónustugjald.
Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna greiðslu upp í flugfargjald með áætlunarflugi Icelandair. Þetta flug gefur 3.000 - 7.600 Vildarpunkta.
HVALVEIÐAR Að sögn Bjarna Thor-
oddsen, framkvæmdastjóra hjá
Stálsmiðjunni í Reykjavíkurhöfn,
hefur Hvalur 9 vakið mikla athygli
eftir að hann var dreginn upp í
slipp í fyrsta sinn síðan 1989.
„Hingað hefur fólk streymt
nær látlaust frá því að það kom
upp til að berja skipið augum,
enda margir forvitnir um ástand
þess eftir allan þennan tíma í höfn-
inni,“ segir Bjarni. „Það er mikið
spurt enda eru margir spenntir
því fjöldi manna hefur beðið
spenntur í mörg ár eftir að þetta
myndi.“
Framkvæmdir við skipið eru
komnar á fullt. Nú er verið að
þrífa það með háþrýstidælu og
öxuldraga. „Það er orðið ljóst að
við þurfum að hreinsa alla máln-
ingu af botninum á bátnum því að
hrúðurkarlarnir voru komnir eig-
inlega alveg inn í stál,“ segir
Bjarni og hlær.
Bjarni segir að ef allt gangi að
óskum ætti skipið að vera tilbúið
til veiða eftir tvær vikur. Enn
hefur þó ekkert verið ákveðið hve-
nær eða hvort af þeim verður. „Ef
það er ekkert að legum í öxli eða
stýri ættu þetta ekki að vera nema
tvær vikur sem skipið þarf að vera
í slipp. Þá ætti skipið að vera klárt
í slaginn,“ segir Bjarni. - æþe
Hvalur 9 hefur vakið athygli eftir að skipið var tekið í slipp í fyrsta sinn í 17 ár:
Mikill áhugi fólks á skipinu
VINNA VIÐ HVAL 9 Í FULLUM GANGI Ef allt gengur að óskum gæti hvalveiðiskipið orðið til-
búið til veiða eftir tvær vikur. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína í slippinn við Reykjavíkurhöfn
til að skoða skipið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BIÐLISTAR Biðlistar heyra sögunni
til hjá Heyrnar- og talmeinastöð
Íslands. Um eða yfir tveggja mán-
aða bið er eftir
heyrnartækj-
um í dag. Guð-
rún Gísladóttir
framkvæmda-
stjóri segir að
biðin í dag sé
eðlileg.
Vorið 2003
hafi reglugerð
um greiðslu-
þátttöku ríkis-
ins í heyrnar-
tækjum orðið
til þess að þáttur einstaklingsins
hafi aukist og losnað um flösku-
hálsinn. Fjármagn hafi myndast
og hagræðing og endurskipulagn-
ing á rekstrinum hafi orðið til þess
að saxast hafi á biðlistann. - ghs
Heyrnar- og talmeinastöð:
Biðlistar heyra
sögunni til
BIÐLISTAR FYRIR BÍ
Það er af sem áður
var. Aðeins um eða
yfir tveggja mánaða
bið er eftir heyrnar-
tækjum í dag.
BARNAGÆSLA Helga Kristín Sigurðardóttir
segir lítið hafa verið hlustað á dagforeldra.