Fréttablaðið - 24.08.2006, Síða 31
FIMMTUDAGUR 24. ágúst 2006 31
Verslaðu aðeins hjá viðurkenndum HP söluaðila:
Offi ce 1 Superstore um land allt Sími 550 4100
Oddi skrifstofuvörur um land allt Sími 515 5000
HP Búðin, Reykjavík Sími 568 5400
Start, Kópavogi Sími 544 2350
Samhæfni, Reykjanesbæ Sími 421 7755
TRS, Selfossi Sími 480 3300
Kaupfélag Skagfi rðinga, Sauðarkróki Sími 550 4100
Tölvuþjónustan, Akranesi Sími 575 9200
Netheimar, Ísafi rði Sími 456 5006
Eyjatölvur, Vestmannaeyjar Sími 481 3930
Bókabúð Þórarins Stefánssonar, Húsavík Sími 464 1234
HP Compaq nx6325
• AMD Sempron 3500 örgjörvi
• 15” XGA skjár1024x768
• 512MB vinnsluminni
• 80GB harður diskur
• DVD+/-RW geislaskrifari
• ATI Mobility Radeon skjákort
með allt að 128MB
• Bíómetrískur fi ngrafaralesari
verð kr. 129.900
HP mælir með Windows XP Professional
www.fartolvur.is
Hámarksafköst – Hámarksframmistaða
HP Pavilion dv1599
• Intel Pentium M 760,
2GHz örgjörvi
• 14” skjár WXGA 1280x768
• 1024MB DDR vinnsluminni
• 100GB harður diskur
• DVD+/-RW geislaskrifari
• Intel skjákort með allt að 128MB
verð kr. 155.900
HP Compaq nc6320
• Intel Core Duo T2400 örgjörvi
• 15” TFT skjár 1400x1050
• 512MB DDR2 vinnsluminni
• 80GB harður diskur SMART SATA
• 16X LightScribe DVD+/-RW
Double Layer geislaskrifari
• Intel skjákort með allt að 128MB:
• Engar áhyggjur ábyrgð
verð kr. 199.900
HP Compaq nx9420
• Intel Core Duo T2400 örgjörvi
• Intel Core Duo T2400 örgjörvi
• 17” TFT WSXGA breiðtjaldsskjár
1680x1050
• 1024MB vinnsluminni
• 80GB harður diskur
• DVD+/-RW SuperMulti
Double Layer geislaskrifari
• ATI skjákort með allt að 256M
verð kr. 224.900
OK TAKTU FINAL 530x200.indd 1 23/08/06 15:52:51
Greiningardeild Landsbankans
verðleggur FL Group á 120 millj-
arða króna og mælir með sölu á
hlutabréfum í félaginu.
Samkvæmt verðmatinu metur
bankinn hlutinn í FL á 15,2 krónur
og sér gengið fara í sautján krón-
ur á næstu tólf mánuðum. Mark-
aðsgengi FL stóð í 17,9 krónum við
opnun markaða í gær.
Landsbankinn býst við að þriðji
ársfjórðungur verði erfiður en
þegar matið var unnið hafði orðið
talsvert gengistap á hlutabréfum
og gjaldeyriseign. - eþa
LÍ mælir með
sölu í FL Group
LEIÐRÉTTING Í forsíðugrein
Markaðarins sem út kom á miðvikudag
um endurfjármögnun bankanna fyrir
næsta ár er rangt farið með fjármögnun-
arþörf KB banka og Glitnis og hún talin
í krónum. Þar átti að standa 4 milljarðar
evra hjá KB banka og 2,7 milljarðar evra
hjá Glitni.
Væntingavísitalan í Þýskalandi
féll um 20,7 punkta frá júlí og
mælist mínus 5,6 stig í þessum
mánuði. Vísitalan hefur ekki verið
lægri í fimm ár og benda niður-
stöðurnar til að Þjóðverjar séu
svartsýnni nú en áður um horfur í
efnahagsmálum.
Verðhækkanir á olíu hafa komið
illa við buddu neytenda auk þess
sem búist er við að hækkun á virð-
isaukaskatti um þrjú prósentustig
um næstu áramót komi illa við
landsmenn.
Þá eru líkur taldar á að hátt
gengi evrunnar og hæging á hag-
vexti í Bandaríkjunum muni skila
sér í minni útflutningi vestur um
haf.
Fastlega var búist við því að
væntingavísitalan myndi lækka
en ekki var búist við jafnmikilli
lækkun og raunin varð.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, tók fréttum um aukinn hag-
vöxt fagnandi í fyrradag og sagði
Þýskaland ekki lengur „veika
manninn í Evrópu“. - jab
Þjóðverjar svartsýnir
ANGELA MERKEL Kanslarinn fagnar aukn-
um hagvexti í Þýskalandi.
Svissneski matvælarisinn Nestlé
skilaði rúmum 4,1 milljarði sviss-
neskra franka, jafnvirði tæpra
239 milljarða
íslenskra króna,
í hagnað á
fyrstu sex mán-
uðum ársins.
Aukningin
nemur 11,4 pró-
sentum sem er í
takt við vænt-
ingar greiningaraðila.
Hagnaðurinn er að mestu kom-
inn vegna hagræðingar í rekstri
fyrirtækisins og hærra vöruverðs
í kjölfar hækkana á hráefni.
Stjórn fyrirtækisins, sem er
eitt hið stærsta sinnar tegundar
og framleiðir meðal annars
skyndikaffið Nescafé og Smart-
ies-sælgæti, býst við hagnaði út
árið og reiknar með að hann verði
í hærri kantinum. - jab
VÖRUR FRÁ NESTLÉ
Nestlé græðir
á matvælum
Landsbankinn hefur gefið út
skuldabréf á bandaríska skulda-
bréfamarkaðnum fyrir 2,25 millj-
arða bandaríkjadala, eða sem
nemur tæpum 158 milljörðum
íslenskra króna. Um er að ræða
stærstu einstöku lántöku íslensks
banka á erlendum fjármálamörk-
uðum til þessa.
Lánið er í tveimur hlutum;
annars vegar 1,5 milljarðar dala
til fimm ára með föstum vöxtum
og hins vegar 750 milljónir dala
til þriggja ára með breytilegum
vöxtum. Lántakan var í
sameiginlegri umsjón
Bank of America, Citi-
group og Deutsche
Bank.
Í tilkynningu frá
Landsbankanum segir
að heildareftirspurn
beggja flokka hafi numið 3,6
milljörðum bandaríkjadala, eða
252,4 milljörðum króna, og því
hafi verið ákveðið að hækka lán-
tökufjárhæðina úr einum millj-
arði dala í 2,25 milljarða.
Landsbankinn hefur með lán-
tökunni lokið áttatíu og fimm
prósentum af þeim lántökum sem
koma á gjalddaga á árinu 2007.
Þá er allri endurfjármögn-
un vegna gjalddaga
ársins 2006 lokið.
Grein-
ingardeild Glitnis fjallar um lán-
tökuna í Morgunkornum sínum.
Þar segir að Landsbankinn hafi
með útgáfu skuldabréfanna svar-
að helstu gagnrýnisröddum
erlendra greiningaraðila á bank-
ann. -jsk
Endurfjármögnun að ljúka
Landsbankinn gefur út bandarísk skuldabréf fyrir 158 milljarða króna.
HÖFUÐSTÖÐVAR LANDS-
BANKA ÍSLANDS Lands-
bankinn hefur með útgáfu
bandarískra skuldabréfa
lokið áttatíu og fimm
prósentum endurfjár-
mögnunar sinnar vegna
ársins 2007.
„Evran er kannski eðlilegt skref
þessara stóru fyrirtækja sem eru
að gera sig gildandi á alþjóða-
markaði og þurfa á því að halda að
vera eftirsótt í augum fjárfesta
alls staðar,“ segir Bjarni Már
Gylfason, hagfræðingur Samtaka
iðnaðarins. Hann segir að hvort
sem fólki líki betur eða verr séu
fyrirtæki landsins smám saman
að verða evrópskari og um leið
hafi það áhrif á markaðinn hér.
Meðal fyrirtækja sem hér eru
skráð í kauphöll og hafa tekjur að
mestu erlendis frá ágerist þessa
dagana umræða um þann mögu-
leika að skrá hlutabréf sín í
erlendri mynt. „Þessi þróun byrj-
aði fyrir nokkrum árum þegar
skattalögum var breytt á þann
hátt að fyrir-
tæki máttu
gera upp í
hvaða gjald-
miðli sem
er,“ segir
hann og
bætir við að
ljóst sé að á
meðan hluta-
bréf séu
skráð í krón-
um séu þau ekki jafnálitlegur fjár-
festingarkostur. „Þeir sem kaupa
hlutabréf í krónum taka á sig mjög
mikla gengis-áhættu og það hlýtur
að fæla frá góða fjárfesta.“
Þá segir Bjarni áhugaverðar
hugmyndir sem hreyft hefur verið
við á vettvangi Alþýðusambands
Íslands um að greiða laun að hluta
í evrum. „Svo má ekki gleyma að
laun sjómanna, þótt þau séu ekki
beintengd við evru, eru tengd við
tekjur útgerðarinnar,“ segir hann
og bendir á að fyrir þá væri mjög
hagstætt að taka húsnæðislán í
evrum.
Aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu og upptaka evru sem
gjaldmiðils í stað krónu er eitt af
helstu stefnumálum Samtaka iðn-
aðarins. Bjarni segist ekki viss um
að Evrópusambandið og evrumál
verði hitamál í næstu Alþingis-
kosningum. „Ég óttast að menn
forðist að ræða þetta, þrátt fyrir
að brýn þörf sé á því. En sterkur
þrýstingur frá fyrirtækjum og
atvinnulífi gæti breytt því.“ - óká
BJARNI MÁR GYLFASON
Sumum er evran eðlilegt skref