Fréttablaðið - 24.08.2006, Qupperneq 36
24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR4
Í versluninni Tribal á Laugavegi 60 er gott
úrval af fatnaði og fylgihlutum
sem kenndir er við goth-
lífstíl.
„Pokabuxur, hettupeysur,
svitabönd, skartgripir og bak-
pokar njóta töluverðra vinsælda,“
segir Vilbergur Gestson, annar eig-
enda Tribal.
„Þá eru hauskúpubolir eftirsóttir,
sömuleiðis tónlistarbolir sem við stefn-
um á að fjölga og viðburðatengdir bolir
með skemmtilegum orðatiltækjum,
sumum hverjum nokkuð tvíræðum,“
heldur hann áfram. „Fatnaðurinn er
vinsæll hjá öllum aldurshópum þótt
unglingarnir séu líklegast dyggustu
kúnnarnir.“
Vilbergur segir ákveðinn hluta
fatnaðarins vera í goth-stíl, en
með heitinu er skírskotað í
ákveðinn lífsmáta sem fræg-
ir einstaklingar eins og söngv-
arinn Marilyn Manson aðhyll-
ast. „Goth-lífstíll birtist til að
mynda í klæðaburði, þar sem hring-
ir, pinnar, keðjur, ólar, leður og lit-
irnir svart, hvítt og rautt eru alls-
ráðandi ásamt hári í fríkuðum litum
og andlitsfarða, sem samanstendur
af hvítu púðri og svörtum varalit,
augnblýanti og -skugga.“
Vilbergur segir hugmyndina með
versluninni þó fyrst og fremst vera að
bjóða upp á gott úrval bola, þar
sem goth-línan kemur inn
í. „Við erum líka smám
saman að fara út í svokall-
aða „ættflokka-línu“, sem
tengist húðflúrum, og á eftir
að verða meira áberandi í versluninni
í framtíðinni, og vísar nafn verslunar-
innar einmitt til þess.“
roald@frettabladid.is
Keðjur, pinnar og ólar
Buxur í svörtu og rauðu
sem eru eftirsóttir litir hjá
kúnnahópnum.
Bob Marley og aðrir
tónlistarmenn eru vinsælt
myndefni.
Vilbergur Guðnason stefnir á að fjölga bolum og
fara yfir í ættflokkastílinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Pils í goth-stíl.Snoopy-bolur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Coca Cola-bolur.
Svartar pokabuxur
sem njóta vinsælda.
Gott úrval veskja er í búð-
inni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Veski og skartgripir fást í búðinni.
Gay Pride-bolur.
Skóreimar af ýmsum
gerðum fást í búðinni.
Þægilegur, saumlaus og fallegur fatnaður. S. Gunnbjörnsson ehf.
Nýtt á Íslandi! NO STRESS
Loksins á Íslandi! - Komnar aftur!
5 ára ábyrgð
15% kynningarafsláttur út ágúst
Pantanir óskast sóttar.
Smáralind,
sími 5288800,
www.drangey.is
„Bjútý“ taska
algjör snilld
Allar nýjustu upplýsingar
og fréttir á ensku á
vefnum reykjavik.com og
í blaðinu Reykjavikmag.
Upplýsingar, viðburðir,
afþreying og fréttir