Fréttablaðið - 24.08.2006, Síða 37
FIMMTUDAGUR 24. ágúst 2006 5
Zúúber alla virka
morgna frá 7-10.
OFURFYRIRSÆTAN LILY COLE
SETTIST Á DÖGUNUM Á SKÓLABEKK
OG Í LJÓS KOM AÐ SITTHVAÐ ER
SPUNNIÐ Í STELPUNA.
Cole, sem er 18 ára, stundar nú nám
við háskólann í Cambridge. Í fyrstu
prófum sínum fékk hún alltaf A,
en fögin sem um ræðir eru enska,
heimspek, siðfræði, og stjórnmála-
fræði.
Cole er nú í fríi en talið er að hún
muni fresta skólagöngunni fram til
næsta árs og einbeita sér að fyrir-
sætustörfunum. - tg
Cole dúxar
VILTU LÍTA ÚT EINS OG MICK JAGGER Í FRAMAN Í
ELLINNI?
Snyrtisérfræðingar og húðsjúkdómalæknar hafa á
undanförnum árum hamrað á því að fólk eigi að bera
á sig sólarvörn jafnvel þó að ekki sé sólskin og sumar-
ylur úti. Flest öll góð rakakrem í dag innihalda þannig
einhverja sólarvörn og eru rakakrem fyrir karlmenn þar
engin undantekning.
Nýjasta viðbótin við þessa sólarvarnarþróun er nýtt
hreinsikrem frá snyrtivöruframleiðandanum Freeze 24-
7. Hreinsikremið heitir Ice Shield og er hið fyrsta sinnar
tegundar en það ekki einungis hreinsar húðina heldur
skilur það einnig eftir sólarvörn sem verndar húðina
bæði fyrir UVA- og UVB-sólargeislum. Hreinsikremið
kemur á markaðinn í september og verður meðal
annars fáanlegt á heimasíðunni www.freeze247.com
en ekki ætti að líða á löngu áður en fleiri snyrtivöru-
framleiðendur fylgja á eftir. -sha
Byltingarkennt hreinsikrem
Kauptilboð FL Group í House
of Fraser gæti reynst stjórn-
endum fyrirtækisins afar
arðbært.
Með kaupunum verður Baugur
orðinn að algjörum risa í háklassa
tískuverslunum í London. En
Baugsmenn eru ekki þeir einu
sem grætt geta á kaupunum. Sam-
kvæmt fréttavef Vogue gæti John
Coleman, stjórnarformaður, feng-
ið 224 milljónir í vasann auk rúm-
lega 600 milljóna sem hann fengi
fyrir hlut sinn í fyrirtækinu.
Hver segir svo að það borgi sig
ekki að fylgja tískunni? - tg
House of Fraser bætist
við eignir Baugs
FL Group keypti House of Fraser.
Nýjunga er að vænta frá
Topshop á næstunni.
Eins og fram hefur komið hér í
Fréttablaðinu er Topshop-versl-
anakeðjan að stækka við sig en
Topshop mun brátt opna sína
fyrstu verslun í Bandaríkjunum.
Eigendur Topshop eru greinilega
stórhuga og hafa einnig aukið
úrvalið af fínni tískuvöru og aukið
þannig við fataúrvalið í verslun-
um sínum.
Nýjasta viðbótin, ef marka má
heimasíðu Vogue, er ný fatalína
sem verður eingöngu framleidd
úr 100% kasmírull. Topshop hefur
reyndar áður notað kasmírull en
aldrei eingöngu. Nýja kasmírlínan
er væntanleg núna í haust og því
verður gaman að fylgjast með
hvað rætist úr henni.
Topshop með
kasmírlínu
Brátt mun Topshop selja föt úr 100%
kasmírull í verslunum sínum.
Freeze 24-7 Ice Shield,
hreinsikrem með sólarvörn.
Cole er fögur og
gáfuð stúlka.
NORDICPHOTO/GETTY
IMAGES
Sumarlínan frá Helenu Rubenstein
í ár kallast Cruise Collection og er
náttúran í hávegum höfð. Tindrandi
húð og sólkysstar varir eru aðal-
málið.
Í línunni er sólarpúður í tveimur
litum, litaspjald með sumarlegum
litum þar sem gyllti tónninn er áber-
andi, vatnsheldur maskari í svörtu,
sólartónn á húðina í tveimur litum,
gloss, varalitir og naglalakk.
Gylltur, brons og súkkulaðilitur er
það sem einkennir línuna út í gegn
og er mikið lagt upp úr náttúrulegri
förðun. -lkg
Gyllt, brons og
súkkulaði
NÁTTÚRAN ER ÞEMAÐ Í SUMARLÍNU
HELENU RUBENSTEIN.
Naglalakk og varalitur frá Rubenstein.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM