Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 41
FIMMTUDAGUR 24. ágúst 2006 9
FYRIRTÆKIÐ MERKT Í FAXAFENI
MERKIR OG SKREYTIR MUNI FYRIR
HVERN OG EINN.
Hlutir verða óneitanlega persónulegri
við það að vera merktir eigendum
sínum og margir hafa gaman af að
fá gjafir með eigin nafni eða jafnvel
mynd. Það er nokkuð sem Merkt
sérhæfir sig í. Þar er saumað út,
málað og prentað á tauvörur eins og
handklæði, rúmföt, teppi og fatnað,
bæði nöfn og munstur eftir óskum
hvers og eins. Einnig er þar skorið í
gler og brennt í við. Því er hægt að fá
þar merktar glervörur, leir- og trém-
uni, svo sem glös, könnur, penna,
ramma og fleira. Myndir eru settar
á púsluspil úr pappa og almanök úr
taui. Hvort tveggja er vinsælt til gjafa,
að sögn afgreiðslufólks.
Fyrirtækið Merkt var stofnað fyrir
þremur árum og hóf starfsemina
uppi í Mjódd en flutti síðan í Faxafen
12. Guðmunda Óskarsdóttir heitir
eigandinn og rekur líka verslunina
Merkt á sama stað. Heimasíðan er
www.merkt.is
Hver hefur sitt
Drykkjarílát sem er tryggilega merkt
eiganda sínum.
Kokkurinn verður enn ábúðarmeiri með
sérmerkta svuntu.
Hlýlegt teppi verður enn hlýlegri gjöf
með ísaumuðum upphafsstöfum.
Gaman er að eiga sitt eigið handklæði.
Huggulegt á baðið.
Útskorinn trérammi eykur gildi myndar-
innar.
Egon Eiermann er einhver
áhrifaríkasti arkitekt tuttugustu
aldarinnar, að minnsta kosti
í Þýskalandi. Hann átti
þátt í því að skapa þann
anda sem einkenndi alla
hönnun á árunum eftir síðari
heimstyrjöldina. Stóllinn SE
18 er einn þekktasti hluturinn
sem Eiermann hannaði.
Stóllinn var hannaður árið
1953 og hefur alla tíð
síðan átt miklum vinsæld-
um að fagna. Um er að
ræða fallega og klassíska
hönnun sem stenst svo
sannarlega tímans tönn.
Stólinn er fellistóll, sem
er afar hentugt þar sem húsrými
er lítið.
stóllinn }
Sígild hönnun
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Lille Collection
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI