Fréttablaðið - 24.08.2006, Síða 64
24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR40
menning@frettabladid.is
! Kl. 22.00Hljómsveitin Ask the Slave heldur
tónleika ásamt sveitinni Plastic
Gods á Bar 11.
Frakkinn Thomas Bangalter, annar meðlima dans-
hljómsveitarinnar Daft Punk, verður gestur Alþjóð-
legrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík í haust. Mun
hann svara spurningum áhorfenda við frumsýningu
kvikmyndarinnar Electroma auk þess að þeyta skíf-
um á skemmtistaðnum Nasa.
Bangalter gerði myndina Electroma í félagi við hinn
helming dansdúósins, Guy-Manuel de Homem-
Christo, en myndinni er lýst sem afbrigði af vega-
mynd um tvö vélmenni sem þrá að verða mennsk.
Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í maí við góðar undirtektir.
Hljómsveitin Daft Punk er íslenskum hlustendum
að góðu kunn því ófáir hafa dillað sér duglega við
smelli á borð við „Around the World“ og „One more
Time“.
Thomas Bangalter hefur einnig gert tónlist einn síns
liðs og er lagið „Music Sounds Better With You“,
sem hann samdi undir nafninu Stardust, líklega
þekktast þeirra. Í tilefni af heimsókninni ætlar Bang-
alter að smella sér í dansgallann í október en hann
hefur ekki komið fram sem plötusnúður í tæpan
áratug og segir í fréttatilkynningu frá Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni að því sé um stórviðburð að
ræða.
GÓÐIR GESTIR Á KVIKMYNDAHÁTÍÐ Daft Punk spreyta
sig á kvikmyndalistinni.
Vélmenni í vegamynd > Ekki missa af...
síðustu sumartónunum um
helgina. Tónlistarmaðurinn
KK flytur ljúfsára tónlist Chets
Baker á Jómfrúnni á laugar-
daginn og á sunnudaginn leikur
Jónas Ingimundarson á Stofu-
tónleikum á Gljúfrasteini.
útgáfutónleikum Péturs Ben í
Iðnó í kvöld kl. 22.
sýningu á verkum þeim sem til-
nefnd voru til norrænu Carneg-
ie Art Awards listverðlaunanna.
Verk liðlega tuttugu listamanna
eru nú til sýnis í Hafnarhús-
inu, þar á meðal verk fjögurra
íslenskra listamanna.
Sigurður Harðarsson, þýð-
andi, útgefandi, hjúkrunar-
fræðingur og einn þekktasti
anarkisti íslensku þjóðar-
innar, segir að byltingin
byrji í bakgarði hvers og
eins. Ritið „Dansað á ösku
daganna“ er yfirlýst sjálfs-
hjálparbók fyrir þá sem eru
nógu raunsæir til að krefj-
ast hins ómögulega.
Flestir þekkja forleggjarann betur
sem Sigga pönk en hann hóf hug-
sjónastarf sitt í bókaútgáfu fyrir
þremur árum. „Þetta byrjaði með
dreifingu, ég fékk ýmiss konar
anarkista- og pönktímarit að utan
og dreifði þeim og seldi á tónleik-
um. Ég safnaði eintökum fyrir
sjálfan mig og stofnaði síðan bóka-
safn fyrir ári síðan sem nú er stað-
sett í Friðarhúsinu við Snorra-
braut og í Kaffi Hljómalind,“
útskýrir Sigurður. „Svo fór ég að
vera með eigin bæklinga, keypti
mér ljósritunarvél og loks færði
ég mig upp á skaftið og hóf að
þýða bækur og nú hef ég gefið út
eitt smárit, ritgerðina „Um anark-
isma“ sem kom út í fyrra og nú
þessa bók.“
Sigurður útskýrir að bókin sé
byggð á velþekktri neðanjarð-
arklassík, Days of War, Nights of
Love, sem kom út fyrir um fimm
árum síðan. „Þetta er svona
skemmtilega hrokafull og rómant-
ísk bók um byltingarpælingar,
með gagnrýni á það hvernig við
lifum í okkar vestræna samfélagi.
Ég þýddi megnið af bókinni með
góðri aðstoð en breytti henni líka,“
segir Sigurður en ritið er nú aðlag-
að að íslenskum aðstæðum. „Ég
breytti henni til að hún hefði meira
notagildi hér. Þetta er bók sem
veitir innblástur, svo að fólk sjái
að það er hægt að lifa öðruvísi en
við lifum í dag.“
Hann segir að víða sé komið við
í þessu riti. „Þar er meðal annars
fjallað um hvernig mótmæla-
hreyfingar geti breyst í nokkurs
konar risaeðlur og orðið óhreyfan-
legar, það er þær gera ekkert gagn
nema að halda fundi fyrir sjálfar
sig.“ Á milli kafla bókarinnar eru
líka stuttar klausur úr andspyrnu-
sagnfræði sem Sigurður bendir á
að sé lítt rannsakað fræðasvið hér-
lendis en hann skrifar sjálfur
dæmin sem tekin eru úr íslenskri
andspyrnusögu. „Það hefur sitt-
hvað verið skrifað hér á landi, eins
og um atvikið þegar bændur
sprengdu upp virkjunina við Laxá
árið 1970. Herstöðvarandstæðing-
ar hafa gefið út bækur um sína
baráttu og það hefur verið skrifað
um Helga Hóseasson en það hefur
ekki verið gefin út bók sem tekur
á þessu öllu saman – það væri
spennandi verkefni,“ segir hann
og áréttar að saga sú sé ef til vill
auðugri en margir vilja vera að
láta.
Sigurður merkir mikla vakn-
ingu í samfélaginu sem hvetur til
virkari þátttöku meðal borgar-
anna og nefnir þar til dæmis and-
stöðuna við Íraksstríðið, meðferð
stjórnvalda á meðlimum Falun
Gong og deilurnar um virkjana-
mál og stóriðjustefnu. Hann segir
því að bókin komi út á mjög góðum
tímapunkti.
Bókin vísar þó ekki aðeins til
andófs og andspyrnu heldur
útskýrir Sigurður að titillinn skýr-
ist af því að nauðsynlegt sé að
brjóta upp hversdaginn og hugsa
öðruvísi. „Þegar maður brýtur
upp daglega lífið þá áttar maður
sig á því að lífið er stutt, því verð-
ur bara lifað einu sinni og það er
mikil synd að sóa því í kapphlaup
og neysluhyggju.“ Hann segir
enn fremur að byltingarhugmynd-
ir verði ávallt svolítið rómantísk-
ar en sú rómantík sé innblástur.
„Hver einstaklingur þarf að gera
byltingu fyrir sjálfan sig og þess
vegna snýst þetta ekki um að
stofna til fjöldahreyfinga heldur
að hver og einn átti sig á því um
hvað lífið snýst og taki ákvörðun
um hvort viðkomandi vilji lifa því
áfram eins og það er, eða hvort
hann vilji breyta einhverju.“
Byltingin byrjaði mjög
snemma hjá Sigurði en hann
rekur áhuga sinn aftur til ungl-
ingsáranna þegar hann horfði á
fréttirnar og sá alltaf stríð. „Ég
hugsaði hvort þetta væri eðlilegt
ástand og hef verið að lesa mér til
síðan ég var tólf ára. Nú er ég að
verða fertugur en er alltaf að
læra meira, það er það besta – að
hætta aldrei að læra og þessi bók
er hluti af því ferli.“
Hvorki íslenska bókin né enska
fyrirmyndin er gefin út undir sér-
stöku höfundarnafni enda útskýr-
ir Sigurður að hún innihaldi texta
sem er fyrir hvern sem er að til-
einka sér eða taka. Bókin er til
sölu í Hljómalind, í Hljóðhúsinu á
Selfossi og í verslunum Iðu,
Smekkleysu og Bóksölu stúd-
enta. kristrun@frettabladid.is
RÓMANTÍSKAR BYLTINGARHUGMYNDIR Sigurður Harðarson gefur út bók um byltingarhugmyndir og andspyrnusagnfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Dansandi á ösku daganna
gleðigleði
glaumur
glaumur
[Lystigarður] rómantík í rökkrinu
[Ráðhústorg] Gjörningar, glíma og heilgrillað naut,
línudansarar og Benni Hemm Hemm
[Listagilið] Óperutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
undir berum himni
[Svartfugl og Hvítspói] grafík í glugga: Mono print frá Grænlandi
eftir Sean Steniko
[Ketilhús] „Bitið í skjaldarrendur“:
Syning á verðlaunagripum´
[Listasafnið á AK] Íslensku sjónlistaverðlaunin: Tilnefndir syna´
göslagangur
göslagangur
gjörningar
gjörningar
[Hlíðarfjall] fjallahjólabrun
[Gallerí +]
[Jónas Viðar Gallery]
[Frúin í Hamborg]
[Opnar vinnustofur…]
[…og margt margt fleira]
[Gallerí BOX]
[Populus Tremula]
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI