Fréttablaðið - 24.08.2006, Qupperneq 67
FIMMTUDAGUR 24. ágúst 2006 43
Útsölulok í Eddufelli
Verð; 500 - 1000 - 2000 kr.
Eddufelli 2 - s. 557-1730.
Skjöldur Mio,
tískuráðgjafi
Ég taldi mig vita flest
allt um tísku og útlit
áður en ég fór í skólann.
En annað kom á daginn.
Ég hef lært heilmikið um fatasamsetningu,
textil, litafræði, líkamsbyggingu og flest allt um
útlit. Námið nýtist mér frábærlega í því sem ég
er að gera.
Starfsmöguleikar:
Innkaupastjóri
Útlitsráðgjafi
Stílisti
Verslunarstjóri
1. Önn
Litgreining
Förðun út frá litgreiningu
Litasamsetning
2. Önn
Fatastíll
Fatasamsetning
Textill
Stundaskrá
The Academy of Colour and Style er alþjóðlegur
skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á
helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars
tekið fyrir litgreining, fatastíll og textill. Eftir nám
fá nemendur alþjóðlegt diplóma í útlitsráðgjöf
(fashion consultant).
Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi
og geta nýst á ýmsum sviðum og atvinnugreinum.
Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn
með náminu. Kennsla fer fram í Iðnskólanum í
Reykjavík einu sinni í viku frá 18-22.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101 INNRITUN ER HAFIN FYRIR HAUSTÖNN
Kristín, ráðgjafi
Ég hef mikin áhuga á að
starfa með fólki, veita
ráðgjöf varðandi fatnað,
liti og förðun sem hentar
hverjum og einum. Mér
finnst námið bæði lifandi
og skemmtilegt sem einnig hefur opnað margar
dyr til frekari náms á þessu sviði.
Birna,
verslunareigandi -
Stílistinn
Það hefur alltaf verður
draumur hjá mér að
stofna verslun með
fatnað. Námið gaf mér það sjálfstraust sem ég
þurfti til að fara út í reksturinn. Einnig nýti ég
námið til þess að ráðleggja viðskiptavinum mínum
hvaða snið og litir hentar þeim í val á fatnaði.
Breski leikarinn og háðfuglinn
Stephen Fry leggur lag sitt við
fleiri en eina listgyðju því hann
er liðtækur penni með mikinn
ljóðaáhuga. Fry hefur þegar
gefið út nokkrar skáldsögur og
sjálfsævisögu en á dögunum
kom út bókin The Ode Less
Travelled: Unlocking the Poet
Within sem er nokkurs konar
ljóðahandbók sem Fry hefur
tekið saman. Í nýlegum dómi í
dagblaðinu The New York Times
er Fry hampað fyrir framtakið
og einkum þá ástríðu sem hann
hefur augljóslega fyrir bragar-
háttum og formi en í bókinni
leggur hann áherslu á að öll
skáld, hvort sem þau yrkja í
hefðbundnum eða óhefðbundum
anda, þurfi að kunna skil á þeim
reglum og lögmálum.
Fry kveðst einungis leikmað-
ur í ljóðagerðinni og undirstrik-
ar það til dæmis með því að taka
engin dæmi af sínum eigin skrif-
um í bókinni heldur vitnar hann
einvörðungu til viðurkenndra
meistara. Hann fær nokkrar
ákúrur fyrir það meinta hug-
leysi sitt í gagnrýni um bókina
og er þessum hæverska ljóða-
unnanda líka legið á hálsi að ná
ekki fyllilega að gera grein fyrir
ást sinni á orðum og ljóðum þrátt
fyrir ítrekuð spakleg ummæli
um efnið.
Í heildina litið fær bókin þó
jákvæða gagnrýni sem hug-
sjónaverk hagmælts manns og
verðugt framlag til ljóðlistarinn-
ar almennt. - khh
BROSMILDUR LJÓÐAUNNANDI
Leikarinn og rithöfundurinn Stephen Fry
leggur línurnar fyrir skáldin.
Lífleg ljóðahandbók
Tæpt ár er liðið síðan
Hafþór Yngvason tók við
lyklavöldum í Listasafni
Reykjavíkur en eins og sagt
er fylgja nýir siðir nýjum
herrum og nú boðar safnið
stefnubreytingar.
Hafþór er forstöðumaður Lista-
safns Reykjavíkur sem hefur starf-
semi í þremur húsum, í Hafnarhúsi
við Tryggvagötu, á Kjarvalsstöðum
og í Ásmundarsafni við Sigtún en
hann útskýrir að breytingarnar feli
meðal annars í sér aukna aðgrein-
ingu milli starfsemi húsanna. „Í
Hafnarhúsinu verður stefnt að því
að kynna nýjustu strauma og stefn-
ur í myndlist og því verður húsið
opnað til dæmis fyrir ungu fólki og
öðrum þeim sem eru að gera til-
raunir með ný tjáningarform í list
sinni,“ segir Hafþór.
Um næstu helgi opnar þar sýn-
ing sem markar upphaf þessarar
áherslubreytingar. Á sýningunni
„Pakkhús postulanna“ sýna ellefu
listamenn innsetningar og gjörn-
inga en allir eru þeir fæddir eftir
1968. Titillinn vísar til samnefndra
reifkvölda sem haldin voru á níunda
áratugnum en markmiðið með sýn-
ingunni er að ná fram þeim upp-
reisnaranda og krafti sem ein-
kenndi þann tíma – og ganga um
leið þvert á viðteknar venjur í
starfsemi safnsins. Sýningarstjór-
arnir Daníel Karl Björnsson og
Huginn Þór Arason eru fremur
ungir að árum miðað við marga þá
sem unnið hafa slík störf fyrir
Listasafn Reykjavíkur undanfarin
ár en Hafþór bendir á að það hafi
verið lykilatriði þegar kom að því
að setja saman sýninguna. Þeir hafi
nauðsynlega yfirsýn og tengsl við
tíðarandann sem safnið vill fanga
og því hafi þeir valið listamenn á
sýninguna. Vegleg sýningarskrá
mun einnig koma út í tengslum við
sýninguna. „Hún verður þó meira í
ætt við samtalsbók en eiginlega
sýningarskrá,“ segir Hafþór enda
er henni ætlað að vekja frekari
umræðu um málefni listarinnar.
Að fyrrgreindri sýningu lokinni
segir Hafþór að önnur tímamóta-
sýning verði sett upp í Hafnarhús-
inu en hún ber yfirskriftina
„Uncertain States of America“.
„Þar sýna ungir bandarískir mynd-
listarmenn það sem efst er á baugi
þar í landi,“ segir Hafþór en tildrög
þeirrar sýningar má rekja til Gunn-
ars Kvaran, safnstjóra samtíma-
listasafnsins Astrup Fearnley í
Ósló, og samstarfs hans við tvo af
fremstu sýningarstjórum Evrópu,
Daniel Birnbaum og Hans Obrist,
sem ferðuðust um Bandaríkin í tvö
ár og söfnuðu upplýsingum um
nálega þúsund listamenn fædda
eftir 1970. Sýningin birtir síðan
afrakstur þeirrar vinnu og fangar
þær hræringar sem eiga sér stað
hjá myndlistarfólki í Bandaríkjun-
um.
Hafþór segir að á Kjarvalsstöð-
um verði einnig breytinga að vænta
því þar verði nú lögð frekari áhersla
á málverkið. „Það eru mjög spenn-
andi hlutir að gerast í málverkinu,“
áréttar hann. Hin fyrsta verður
sýning á málverkum ungrar lista-
konu, Þórdísar Aðalsteinsdóttur,
sem hefur getið sér gott orð á
erlendri grund fyrir einföld en
harla óvenjuleg verk sín en sýning
hennar verður opnið í lok septemb-
er. Aukinheldur verður einnig sett
upp hönnunarsýning á Kjarvals-
stöðum á komandi vetri.
Hlutverk Ásmundarsafn helst
að mestu óbreytt að sögn Hafþórs.
„Þar verða áfram sýningar á verk-
um hans og sem fyrr verður lista-
mönnum boðið að sýna í salnum en
þær sýningar hafa jafnan kallast á
við verk Ásmundar.“
Nánari upplýsingar um sýning-
arhald vetrarins er að finna á
heimasíðu safnins, www.listasafn-
reykjavikur.is.
- khh
STUNGIÐ Í SAMBAND VIÐ SAMTÍMANN Ungir og kraftmikilir listamenn munu opna sýningu
sem markar upphaf nýrrar sýningarstefnu í Hafnarhúsinu um næstu helgi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HAFÞÓR YNGVASON, FORSTÖÐUMAÐUR LISTASAFNS REYKJAVÍKUR Rýmir fyrir nýjum stefn-
um og straumum í Hafnarhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Meiri kraftur og aukinn uppreisnarandi