Fréttablaðið - 24.08.2006, Side 68

Fréttablaðið - 24.08.2006, Side 68
 24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR44 bio@frettabladid.is ÚR VERINU > Ekki missa af Miami Vice á hvíta tjaldinu. Stórkostleg- ar tökur Óskarsverðlaunahafans Dion Beebe njóta sín langbest á stóru tjaldi og Michael Mann er þarna í essinu sínu. Skemmtilegast er samt hversu svalur Jamie Foxx er í myndinni og skyggir algjörlega á ólátabelginn Colin Farrell sem hingað til hefur gengist upp í að vera mesti töffarinn á svæðinuþ Þetta er ákveðin breyting frá sjónvarpsþáttunum þar sem Don Johnson var aðalmaðurinn en Philip Michael Thomas var hálfgerð hækja fyrir hann. GOTT GLÁP Constant Gardener: Pólitískur tryllir af bestu gerð. Rachel Weisz fékk Óskarinn Good Night and Good Luck: George Clooney stendur sig vel í leikstjórahlutverkinu. Ekki meira framhald Leikstjórinn Steven Soderbergh segir að þriðja myndin um Danny Ocean og félaga hans í Ocean- genginu verði sú síðasta í röðinni. Soderbergh lýsti þessu yfir á kvik- myndahátíðinni í Edinborg sem nú stendur yfir en myndirnar um ræn- ingjana í Las Vegas hafa notið mik- illar velgengni í miðasölu. Athygli vekur að þessi yfirlýsing Soder- berghs kemur aðeins nokkrum dögum eftir að framleiðandi mynd- anna, Jerry Weintraub, sagðist vilja gera mynd númer fjögur. Lék áhættu- atriðin sjálfur Daniel Craig lék nánast öll á h æ t t u a t r i ð - in í nýjustu Bond-mynd- inni, Casino Royal, enda segir hann að hluti af því að leika leyni- þjónustumanninn sé að meiðast og fá nokkrar skrámur. Hinn nýi 007 vill að myndin verði sem raun- verulegust og vildi ekki leggja allt sitt traust á áhættu- l e i k a r a . „Ég vildi að andlitið á mér væri sem mest í mynd og öðlast þannig trúverðug- leika áhorfenda,“ sagði Craig í sam- tali við kvikmyndatímaritið Empire. „Auðvitað get ég ekki tekið vissar áhættur því tryggingarfyrirtækið myndi aldrei leyfa mér það. Hins vegar tefli ég á tæpasta vað því ef þú færð ekki nokkrar skrámur þá ertu ekki að sinna þínu starfi.“ Ebert enn á sjúkrahúsi Kvikmyndagagnrýnandinn Roger Ebert getur ekki talað eftir að hafa farið í aðgerð á kjálka vegna krabbameins sem hann greindist með. Hinn 64 ára gamli gagnrýnandi hefur verið tvo mánuði á sjúkrahúsi og þurft að fara í nokkrar aðgerð- ir vegna krabbameinsins. Ebert er einhver virtasti kvikmyndarýnir Bandaríkjanna og hefur um árabil stjórnað vin- sælum kvik- myndaþætti í sjónvarp- inu. Rýnir- inn skrifar á heimasíðu sinni að hann hafi ekki gert sér í hugarlund hversu langur og strangur tími þetta yrði á sjúkra- húsinu. Mikil tíðindi urðu í nótt í Holly- wood þegar stjórnendur kvik- myndafyrirtækisins Paramount Pictures ákváðu að endurnýja ekki samning sinn við stórleikarann Tom Cruise. Samkvæmt blaðinu Wall Street Journal var ákvörðun- in tekin vegna þess að fyrirtækið er ekki ánægt með framkomu Cruise í fjölmiðlum og við almenn- ing síðasta árið. „Hegðun hans síð- asta árið er ósæmileg og þótt okkur þyki vænt um hann þá gengur þetta samstarf hreinlega ekki upp. Áhorfendur hafa snúið við honum baki,“ segir Summer Redstone, forstjóri Paramount Pictures. Tom Cruise hefur verið mikið í fjölmiðlum síðan hann kynntist unnustu sinni, leikkonunni Katie Holmes, og hefur hagað sér ein- kennilega gagnvart fjölmiðlum og gefið út ýmsar umdeilanlegar yfirlýsingar. Atvikið í þætti Opruh Winfrey þegar hann hoppaði upp og niður í sófanum í sjónvarpsal og lýsir yfir ást sinni á Holmes vakti gríðarlega mikil viðbrögð og einnig þegar hann gagnrýndi leik- konuna Brooke Shields fyrir að nota verkjalyf við barnsburð. Þessi atvik ásamt öðrum valda því að stjórnendur Paramount vilja ekki hafa leikarann á sínum snær- um lengur og verður forvitnilegt að fylgjast með framvindu þess- ara mála á næstunni enda ekki á hverjum degi sem Hollywood- stjarna á borð við Tom Cruise atvinnulaus. Stjarnan rekin TOM CRUISE Rekinn eftir 14 ára samstarf við kvikmyndafyrirtækið Paramount Pictures. Kvikmyndin Zidane: Andlit 21. aldarinnar, sem Sigurjón Sig- hvatsson framleiðir, hefur verið valin til sýningar á Toronto-kvik- myndahátíðinni í Vision-flokkn- um. Myndin hefur verið á ferða- lagi um Evrópu að undanförnu og verður meðal annars ein af helstu myndunum á Edinborgar-kvik- myndahátíðinni sem nú stendur yfir. Zidane til Toronto ZIDANE Heimildarkvikmyndin um Zidane hefur verið valin til sýningar á Toronto-kvik- myndahátíðina. Eftirlætis kvikmynd: Kill Bill-myndirnar, listrænar “splatter” myndir. Ég tók meira að segja senu úr Kill Bill á lokaprófinu í leiklistardeildinni. Eftirminnilegasta atriðið: Þegar Edward Norton brýt- ur hauskúpuna á svertingjanum í American History X. Ógeðslegt en kallaði fram réttar tilfinningar. Uppáhaldsleikstjóri: Quentin Tarantino, mikill listamaður. Mesta hetja hvíta tjaldsins: Marilyn Monroe, hún var rosaleg bomba, hafði mikla töfra og var ótrúlega misskilinn listamaður. Mesti skúrkurinn: James Bond, hann slær konur utan undir, þvílíkur skúrkur. Hvaða persóna fer mest í taugarnar á þér? Hver persóna sem Jennifer Lopez leikur hverju sinni. Maid in Manhattan er besta dæmið. Ef þú fengir að velja þér kvikmynd til að leika í, hvernig væri söguþráð- urinn, hver væri leikstjóri og hver myndi leika á móti þér? Kill Bill III, Ég myndi myrða J. Lo og berjast við Bruce Lee í mjög listrænum sverð- bardaga. Tarantino myndi að sjálfsögðu leikstýra. KVIKMYNDANJÖRÐURINN HALLA VILHJÁLMSDÓTTIR LEIKKONA J.Lo er mest pirrandi Á næstu mánuðum verða kvikmyndahúsin laus við alla Hollywood-stælana og markaðsetningu því á haustmánuðum gefst borg- arbúum tækifæri til sækja tvær ólíkar kvikmynda- hátíðir sem báðar náðu að festa sig í sessi á síðasta ári. Reykjavik Film Festival og Ice- land International Festival hafa ákaflega ólík markmið. Hinn fyrr- nefnda sækir í listrænar myndir og hugsar kvikmyndina eins og listaverk. IFF-hátíðin, með Ísleif B. Þórhallsson í fararbroddi, fékk metfjölda gesta á hátíðina hjá sér í fyrra og þekktir leikarar og leik- stjórar á borð við Walter Salles og Gael Garcia Bernal komu hingað til lands á vegum IFF. Einstakar kvikmyndir Í fyrstu leit allt út fyrir að þessar tvær hátíðir yrðu í samkeppni hvor við aðra en þær voru báðar haldnar á haustmánuðum í fyrra. Nú hefur hins vegar því verið lýst yfir að þetta sé í síðasta skipti sem þessi háttur verður hafður á; IFF verður framvegis á vorin og Reykjavík Film Festival á haust- in. Að sögn Hrannar er hlutverk Reykjavik Film Festival að bjóða Íslendingum upp á það besta og ferskasta úr alþjóðlegri kvik- myndagerð. „Sannleikur- inn er sá að hundruð frá- bærra mynda eru aldrei sýnd hérlendis og alþjóð- leg kvikmyndahátíð í Reykjavík vill verða vettvangur fyrir þess- ar myndir,“ útskýrir Hrönn. „Enn fremur er ætlunin að koma Reykjavík á kort- ið sem alþjóð- legri kvikmynda- hátíðarborg þar sem kvikmyndaunnendur frá öllum heimshornum geta gengið að vandaðri dagskrá,“ segir Hrönn. Reykjavik Film Festival kaupir ekki sínar myndir heldur fær þær að láni. „Kvikmyndahátíðin er því eina tækifærið sem gefst til þess að sjá þessar myndir því fæstar þeirra munu halda áfram í bíó eða birtast á myndbandaleigum,“ segir Hrönn. Gestum kvikmyndahátíðarinn- ar gefst kostur á að gera meira en að fara bara í bíó því boðið verður upp á námskeið í kvikmyndalestri, málþing um mannréttindi en hápunktur hátíðarinnar verður þó eflaust þegar Reykjavík verður myrkvuð á opnunarkvöldið. Viljum bæta bíómenninguna Að sögn Ísleifs B. Þórhallssonar er meginmarkmið IFF-hátíðarinn- ar að auka úrval kvikmyndahús- anna og bæta bíómenningu land- ans. „Við viljum skemmta fólki og ná til breiðari hóps en stundar bíóin venjulega,“ útskýrir Ísleifur. Hann segir að úrval- ið á IFF-hátíðinni sé mjög breitt og hátíðin sýni í raun hvað sem er, svo lengi sem myndin sé góð og áhugaverð. „Við höfum enga fyrir- fram ákveðna formúlu til að velja inn myndirnar og tökum bara það besta sem er í boði á hverjum tíma,“ útskýrir hann. Eitt aðalsmerki IFF í fyrra voru hinir góðu gestir sem sóttu landið heim. Árið í ár er engin undan- tekning. „Matt Dillon og Marisa Tomei koma bæði vegna opnunar- myndarinnar og þá reiknum við einnig með því að fleiri góðir gest- ir komi á vegum hátíðarinnar,“ segir Ísleifur. „Í kringum allar gestakomur verða glæsilegar galasýningar með tilheyrandi veisluhöldum en auk þess verður um nokkrar íslenskar frumsýn- ingar að ræða,“ útskýrir Ísleifur og segir að jafnframt verði boðið upp á námskeið í handritagerð og fyrirlestra með kvikmyndasafn- aranum og grúskaranum Jack Stevens. - fgg Kvikmyndaveislurnar hefjast HRÖNN MARÍNÓSDÓTTIR Segir hlutverk Reykjavík Film Festival að kynna myndir sem aldrei myndu koma í íslensk kvik- myndahús. ÍSLEIFUR B. ÞÓRHALLSSON IFF hefur staðið fyrir komu stórra stjarna úr heimi kvikmyndanna og árið í ár verður engin undan- tekning. MÁLÞING UM MANNRÉTTINDI Sérstakt málþing verður haldið um mannréttindi og kvik- myndir á vegum Reykjavík Film Festival.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.