Fréttablaðið - 24.08.2006, Blaðsíða 80
56 24. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Sigurður Ingimundar-
son hefur valið þrettán leikmenn í
íslenska landsliðið í körfubolta
sem heldur í æfingaferð til Hol-
lands og Írlands nú í vikunni. Leik-
ið verður gegn fimm þjóðum á
jafnmörgum dögum. Í Hollandi
mætir íslenska liðið heimamönn-
um í kvöld, á morgun gegn Belgíu
og að síðustu gegn Svíum á laugar-
dag. Þá heldur liðið til Írlands og
mætir Norðmönnum á sunnudag
og Írum á mánudag.
Liðið hélt utan fyrst í morgun
og því ljóst að mikið álag verður á
liðinu næstu daga. „Þetta veður líf
og fjör,“ sagði Sigurður Ingimund-
arson landsliðsþjálfari þegar
Fréttablaðið hafði samband við
hann í gær. „Í þessum leikjum
fáum við tækifæri til að leggja
lokahönd á undirbúninginn fyrir
EM í september. Við verðum með
þrettán leikmenn og munum velja
tólf af þeim í EM-hópinn.“
Fyrsti leikur Íslands í B-deild
Evrópumótsins verður þann 6.
september gegn Finnum hér á
heimavelli. Næstu þrettán daga á
eftir verður leikið gegn Georgíu
og Austurríki ytra sem og Lúxem-
borg hér heima í millitíðinni.
„Þetta er góður undirbúningur
fyrir leikjaálagið í EM, bæði hvað
varðar ferðalög og hvað er stutt á
milli leikja. Þetta er einmitt það
sem við þurfum í þessum undir-
búningi.“
Markmiðið með ferðinni segir
Sigurður vera að fínpússa nokkur
atriði í leik liðsins, sér í lagi í sókn-
inni. „Vörnin hefur verið ágæt og
við höldum áfram að vinna með
hana líka. Við ætlum svo auðvitað
að reyna að vinna alla leiki.“
Leikur Hollands og Íslands
hefst í kvöld klukkan 19 að staðar-
tíma. - esá
HANDBOLTI Valsmenn boðuðu til
mjög svo veglegs blaðamanna-
fundar í húsakynnum Frjálsa fjár-
festingabankans í gær þar sem
farið var yfir stöðu mála bæði hjá
meistaraflokki karla og kvenna.
Markmið Vals er mjög einfalt,
sigur í öllum keppnum sem í boði
eru.
Nýjasti leikmaður meistara-
flokks karla var kynntur til sög-
unnar en það er Arnór Gunnars-
son, sem gengur til liðs við Val frá
Þór á Akureyri. Arnór, sem er
hægri hornamaður, er unglinga-
landsliðsmaður og skoraði 172
mörk í DHL-deildinni á síðustu
leiktíð. Hjá konunum er nýjasti
leikmaðurinn Hildigunnur Einars-
dóttir sem lék með Fram á síðustu
leiktíð og er ein efnilegasta hand-
boltakona landsins og þá mun
Brynja Steinsen mæta til leiks á
ný eftir barnsburðarleyfi.
Einnig var það tilkynnt á fund-
inum að samningar hafa nú verið
endurnýjaðir við u.þ.b. 30 leik-
menn í meistaraflokkum félagsins
en langflestir samningar þeirra
eru til þriggja ára og ljóst er að
Valsmenn ætla sér stóra hluti í
handboltanum á Íslandi á næstu
árum. Þá hefur Kristinn Guð-
mundsson verið ráðinn yfirþjálf-
ari yngri flokka félagsins en Krist-
inn þjálfaði meistaraflokk ÍBV á
síðustu leiktíð.
„Við erum með mjög ungt og
skemmtilegt lið og þetta er drauma-
lið fyrir þjálfara að vinna með,“
sagði Óskar Bjarni Óskarsson,
þjálfari karlaliðs Vals. Óskar tal-
aði um að Valur myndi mæta með
sterkara lið til leiks nú heldur en í
fyrra og bætti því við að breiddin
í liðinu nú væri meiri. „Ég held að
við séum með eitt skemmtilegasta
lið sem Valur hefur stillt upp síðan
Dagur og Óli og þeir komu á
fjalirnar árið 1993,“ sagði kok-
hraustur þjálfari karlaliðs Vals.
- dsd
Framtíðin er björt í handboltanum á Hlíðarenda:
Valsmenn eru stórhuga
fyrir komandi leiktíð
VALSMENN Eru brattir fyrir komandi vetur og ætla sér stóra hluti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SIGURÐUR INGIMUNDARSON Ætlar að nota æfingaleikina vel. FRÉTTABLAÐIÐ
Æfingaferð til Hollands og Írlands hefst í dag hjá karlalandsliði Íslands í körfubolta:
Fimm æfingaleikir á fimm dögum
ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ
MAGNÚS ÞÓR GUNNARSSON KEFLAVÍK
FRIÐRIK E. STEFÁNSSON NJARÐVÍK
JAKOB SIGURÐARSON CIUDAD DE VIGO
JÓN NORDAL HAFSTEINSSON KEFLAVÍK
KRISTINN JÓNSSON HAUKUM
JÓN ARNÓR STEFÁNSSON VALENCIA
PÁLL AXEL VILBERGSSON GRINDAVÍK
FANNAR ÓLAFSSON KR
HELGI MAGNÚSSON BONCOURT
HLYNUR BÆRINGSSON SNÆFELLI
LOGI GUNNARSSON BBC BAYREUTH
EGILL JÓNASSON NJARÐVÍK
BRENTON BIRMINGHAM NJARÐVÍK
KÖRFUBOLTI Hlynur Bæringsson
mun í vetur spila með Snæfelli í
Iceland Express-deild karla en
hann var síðasta vetur á mála hjá
hollenska liðinu Woon! Aris.
Hann hefur verið hér á landi í
sumar og ætlar að fresta því um
sinn að fara aftur í atvinnu-
mennskuna.
„Ég verð hér heima í eitt ár að
minnsta kosti og verð með Snæ-
felli í vetur,“ sagði Hlynur við
Fréttablaðið í gær en hann átti þó
reyndar enn eftir að ganga frá
samningum við liðið. „Það er bara
hið besta mál. Stefnan er svo sett
á að fara aftur út í atvinnu-
mennskuna eftir ár en mér liggur
ekkert á,“ sagði Hlynur sem er
uppalinn Grundfirðingur en býr
nú í Stykkishólmi.
Félagi hans hjá Woon! Aris
síðastliðinn vetur, Sigurður Þor-
valdsson, mun einnig leika með
Snæfelli í vetur en þar eru þeir
báðir á heimaslóðum. Snæfell
verður því með sterkan hóp leik-
manna í vetur en aðeins Lýður
Vignisson hefur farið frá liðinu
frá síðasta tímabili fyrir utan
erlenda leikmenn. Þá tók þjálfari
liðsins til síðustu ára, Bárður
Eyþórsson, við ÍR-ingum.
Sá sem tekur við Bárði heitir
Geof Kotila og er bandarískur
þjálfari sem hefur náð góðum
árangri í Danmörku þar sem
hann þjálfaði meðal annars Hor-
sens IC og Bakken Bears.
„Við erum með ágætis lið og
ætlum okkur að vera með í topp-
slagnum. Ég gæti reyndar trúað
því að deildin yrði sterk í vetur
enda hafa mörg lið styrkt sig
mikið.“ - esá
Hlynur Bæringsson spilar á heimaslóðum í Iceland Express-deildinni:
Hlynur spilar með Snæfelli í vetur
HLYNUR BÆRINGSSON Verður með Snæ-
felli í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Alþjóðaknattspyrnusam-
bandið, FIFA, sagði frá því í gær
að Ítalir gætu misst sæti sitt í und-
ankeppni Evrópukeppni landsliða
ef Juventus fer með mál sitt fyrir
almennan dómstóla. Það stríðir
gegn reglum FIFA og gæti leitt til
þess að ítalska landsliðið yrði sett
í bann. Ítalska knattspyrnusam-
bandið er alfarið á móti því að
Juventus fari svo langt með málið
og hefur sent Juventus bréf þess
efnis að ef félagið ákveði að fara
með málið úr íþróttadómstólum
yfir í almennan dómstól muni
sambandið einfaldlega herða refs-
ingarnar á liðinu.
Ítalska knattspyrnusambandið
hefur einnig sent bréf til Alþjóða-
knattspyrnusambandsins þar sem
aðferðir þeirra til að fá stjórnar-
menn Juventus ofan af þessum
áformum sínum er lýst. - dsd
Áfrýjunarmál Juventus:
FIFA gæti sett
Ítali í bann
JUVENTUS Þetta fornfræga félag er í slæm-
um málum þessa dagana.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Tryggðu þér miða á betra verði
á landsbankadeildin.is eða ksi.is
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
38
80
08
/2
00
6
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
38
80
08
/2
00
6
KR - ÍBV
ÍA - Keflavík
Grindavík - Víkingur
FH - Breiðablik
Fylkir - Valur
Keflavík - Valur
KR - Þór/KA
Breiðablik - Fylkir
FH - Stjarnan
fim. 24. ágúst kl. 18:00
fim. 24. ágúst kl. 18:00
fim. 24. ágúst kl. 18:00
sun. 27. ágúst kl. 17:00
sun. 27. ágúst kl. 18:00
mið. 30. ágúst kl. 18:30
mið. 30. ágúst kl. 18:30
mið. 30. ágúst kl. 18:30
mið. 30. ágúst kl. 18:30
13. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA
15. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA