Fréttablaðið - 15.09.2006, Side 4
4 15. september 2006 FÖSTUDAGUR
GENGIÐ 15.9.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
122,155
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
69,6 69,94
131,15 131,79
88,45 88,95
11,854 11,924
10,599 10,661
9,563 9,619
0,5912 0,5946
102,93 103,55
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
EFNAHAGSMÁL Með stýrivaxta-
hækkun Seðlabankans hefur
íslenskt efnahagslíf verið læst inni
í vítahring óstöðugleika, að mati
Gylfa Arnbjörnssonar, fram-
kvæmdastjóra ASÍ. Hann segir að
verkalýðshreyfingunni beri nú
skylda til að skoða hvaða kostir séu
fyrir hendi til að draga úr neikvæð-
um áhrifum vaxtahækkunarinnar
á launafólk.
„Sú umræða þarf að fara í gang
og þar er æði margt sem kemur til
greina. Menn hafa skoðað ýmsar
leiðir og það þarf að setja meiri
alvöru í að skoða hvaða valkosti við
höfum,“ segir hann og vill ekki til-
greina nánar hvaða kostir þetta
eru.
Gylfi segir stýrivaxtahækkun-
ina „öfgakennd viðbrögð í peninga-
málastefnu, alveg sama hvar í
heiminum það er. Í þriðja sinn á
fáum mánuðum bregst Seðlabank-
inn mjög harkalega gegn því sam-
starfi sem náðist milli aðila vinnu-
markaðarins og ríkisstjórnarinnar
í sumar,“ segir hann.
Gylfi telur líklegt að stýrivaxta-
hækkunin verði til þess að harka-
leg lending verði í efnahagsmálun-
um á næsta og þarnæsta ári.
Seðlabankinn framkalli samdrátt á
árinu 2008 og ögri fjármálamark-
aðnum til að veðja á þann mikla
vaxtamun sem kominn sé. Hann
telur að nú muni krónan styrkjast
enn frekar og að hér verði „útsala á
innfluttum vörum“ á næstunni.
Viðskiptahallinn ógni stöðugleika
krónunnar.
Magnús Árni Skúlason, dósent á
Bifröst, telur að vaxtahækkunin
komi niður á smáfyrirtækjum sem
ekki hafa aðgang að erlendu lánsfé
og einstaklingum og fjölskyldum,
sérstaklega þeim sem séu að kaupa
sér húsnæði í fyrsta skipti. Láns-
hlutfall fari lækkandi og því þurfi
íbúðakaupendur að brúa bilið með
dýru lánsfé. „Þetta kemur líka
niður á litlum verktökum sem eru
að byggja. Þeir finna fljótlega fyrir
vöxtunum og þurfa að losa um þær
byggingar sem þeir eru með.“
Einar Oddur Kristjánsson, vara-
formaður fjárlaganefndar Alþing-
is, segir: „Þetta er hörmulega sorg-
legt en við höfum vitað lengi af
þessari hækkun og það þýðir ekk-
ert að ræða þetta. Þeir bara keyra
þjóðarbúið í strand ef þeir sjá ekki
að sér. Gagnrýni aðila vinnumark-
aðarins er alveg hárrétt. Þetta er
bara hörmulegt.“
ghs@frettabladid.is
HARKALEG LENDING? Búast
má við harkalegri lendingu í
efnahagsmálunum á næsta og
þarnæsta ári, að mati ASÍ, en
bankastjórar Seðlabankans eru
ekki sammála því. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stýrivextirnir eru
öfgakennd viðbrögð
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans kemur niður á smáfyrirtækjum, til dæmis
verktökum, einstaklingum og fjölskyldum. Þeir þurfa að brúa stærra bil en
áður með dýru lánsfé. Til lengdar kemur hækkunin niður á atvinnustiginu.
STÝRIVEXTIR HÆKKA
Bankastjórar Seðlabank-
ans tilkynntu hækkun
stýrivaxta í gærmorgun.
Framkvæmdastjóri ASÍ
telur Seðlabankann
bregðast harkalega
gegn því samstarfi sem
hafi náðst milli aðila
vinnumarkaðarins
og ríkisstjórnarinnar í
sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þrívegis ekið á hæðarslár
Þrisvar var ekið á hæðarslár við gatna-
mót Suðurlands- og Vesturlandsvegar
í fyrradag. Að sögn lögreglu hefur
slíkt gerst ítrekað undanfarnar vikur
og mánuði og vill hún brýna fyrir
ökumönnum að hæðartakmark fyrir
farm er 4,2 metrar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
KALÍNINGRAD Ný upplýsingaskrif-
stofa Norrænu ráðherranefndar-
innar var opnuð í Kalíningrad í
gær. Af því tilefni var efnt til ráð-
stefnu í borginni þar sem Heidi
Grande Røys, norræni sam-
starfsráðherrann í norsku ríkis-
stjórninni, og Per Unckel,
framkvæmdastjóri Norrænu ráð-
herranefndarinnar, voru meðal
gesta.
Lengi hafði verið unnið að
opnun skrifstofunnar, en hún
markar nýjan áfanga að nánari
tengslum þessarar rússnesku
hólmlendu við Eystrasaltið við
nágranna sína á Norðurlöndum.
Á ráðstefnunni voru kynntir
hinir ýmsu samstarfsmöguleikar
sem fólki og fyrirtækjum í Kalín-
ingrad og Norðvestur-Rússlandi
bjóðast við Norðurlönd. - aa
Ný upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar opnuð í Kalíningrad:
Býður upp á nýja möguleika
FRÁ RÁÐSTEFNUNNI Í GÆR Per Unckel framkvæmdastjóri, Heidi Grande Røys sam-
starfsráðherra, Babinovska varahéraðsstjóri, Arne Grove, fulltrúi rússneska utanríkis-
ráðuneytisins, og Boris Batalyn, fulltrúi héraðsdúmunnar í Kalíningrad. Í pontu er
Gabriel Romanus, sænskur þingmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Opnum í dag
nýtt og glæsilegt apótek í
Álftamýri, þar sem áður var
Borgarapótek.
Líttu við í kaffi og kleinur og
kynntu þér opnunartilboðin!
Lyfjaval
STJÓRNMÁL Magnús Már Guð-
mundsson er einn í kjöri til
embættis formanns Ungra
jafnaðarmanna,
ungliðahreyfing-
ar Samfylkingar-
innar.
Landsþing Ungra
jafnaðarmanna
er haldið í
safnaðarheimili
Lágafellskirkju í
Mosfellsbæ um
helgina.
Dagskrá
þingsins er
hefðbundin og verða ályktanir
afgreiddar á sunnudag.
Magnús Már tekur við
formennsku af Andrési Jónssyni
sem gefur ekki kost á sér til
endurkjörs. - bþs
Ungir jafnaðarmenn:
Magnús Már
einn í kjöri
MAGNÚS MÁR
GUÐMUNDSSON
UMFERÐARMÁL Átaksverkefninu
„Nú segjum við stopp“ var hleypt
af stokkunum í gær og höfðu
þúsundir Íslendinga skrifað undir
hvatningaryfirlýsingu um að fara
að lögum í umferðinni síðdegis í
gær. Tilefni átaksins er fjöldi
dauðaslysa í umferðinni á þessu
ári en alls hafa 19 einstaklingar
látið lífið eða jafn margir og allt
árið í fyrra.
Átakið er samstarfsverkefni
ráðuneyta, stofnana og félagasam-
taka sem láta sig umferðaröryggi
varða. Haldnir voru sjö borgara-
fundir í gær um allt land þar sem
umferðaröryggi var rætt. - shá
Nú segjum við stopp:
Umferðarátak
fer vel af stað
BORGARAFUNDUR Í HALLGRÍMSKIRKJU
Fjölmennt var á fundinum í gær. Meðal
viðstaddra voru Ólafur Ragnar Grímsson
forseti, Geir Haarde forsætisráðherra og
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra.
BANDARÍKIN Alþjóðakjarnorku-
málastofnunin, IAEA, segir
skýrslu Bandaríkjastjórnar um
kjarnorkuáætlun Írana vera
„ósanna“ og „blekkjandi“. Þetta
kemur fram í bréfi IAEA sem
var ætlað bandarísku ríkisstjórn-
inni, og lekið var til fréttamanna
og fjallað er um á BBC.
Í bréfinu segir að Bandaríkja-
stjórn hafi brenglað alvarlega
niðurstöður IAEA um kjarnorku-
áætlun Írana í skýrslu þingsins;
IAEA hafi eingöngu fundið örfá
ummerki um auðgun úrans á afar
lágu stigi, en ekki víðtæk
ummerki á vopnaframleiðslu-
stigi.
Talsmenn Hvíta hússins hafa
neitað að svara spurningum
fréttamanna um málið.
Stjórnmálaskýrendur segja
málið óneitanlega minna á
upphaf Íraksstríðsins. - smk
Kjarnorkumál Írana:
Bandaríkin sögð
óheiðarleg
BRUSSEL, AP Viktor Janúkóvitsj,
sem nýverið tók við embætti
forsætisráðherra í Úkraínu,
skýrði frá því í gær að stjórn
landsins sæktist ekki lengur eftir
því að fá aðild að Atlantshafs-
bandalaginu. Hann sagðist þó
eftir sem áður vilja að Úkraína
fengi aðild að ESB. Fyrri ríkis-
stjórn landsins hafði sótt það stíft
að fá aðild bæði að NATO og ESB,
en Janúkóvitsj hefur jafnan sagst
vera hliðhollari Rússum en
Vestur-Evrópuríkjum.
Fyrri stjórnin hafði gert sér
vonir um að fá vilyrði fyrir
aðildarundirbúningi á leiðtoga-
fundi Nató í nóvember. - gb
Stjórnvöld í Úkraínu:
Vilja ekki fá
aðild að NATO
Milljón heitið
Einni milljón íslenskra króna hefur
verið heitið til þess sem kemur með
ábendingu sem leiðir til handtöku
brennuvargsins, sem hefur kveikt
í leikskólum og barnaheimilum í
Svíþjóð upp á síðkastið.
SVÍÞJÓÐ