Fréttablaðið - 15.09.2006, Qupperneq 16
15. september 2006 FÖSTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Hryðjuverk bitna
á veiðisportinu
„Ég var aldrei á móti hernum og ég
held að þeir sem það voru hljóti að
vera á bömmer yfir því núna að hafa
ekkert til að mótmæla lengur,“ segir
Jóhann Vilhjálmsson, byssusmiður.
„Þó ég sé í þessum bransa er ég
alfarið á móti hernaði. Við þurfum
engan her hérna, það er nóg að
hafa góða gæslu og gott upplýs-
ingaflæði. Við erum miðsvæðis og
það er mikil umferð svo við verðum
að vera viðbúin þegar og ef eitthvað
gerist. Við gætum alveg eins orðið
fyrir hryðjuverkaárásum eins og
aðrir.“
Jóhann segir hryðjuverkin undan-
farin ár hafa bitnað á veiðsportinu.
„Fyrir nokkrum árum gat maður,
liggur við tekið riffil með sér í
flugvélina en nú mega tollverðir
varla sjá riffilsjónauka án þess að
ganga af göflunum. Það er mikil
skriffinnska við innflutning, svo
mikil reyndar að maður þarf að vera
með módelin frá því í fyrra því þetta
tekur svo rosalegan tíma.“
SJÓNARHÓLL
VARNIR LANDSINS
JÓHANN VILHJÁLMSSON
BYSSUSMIÐUR
„Það er allt gott að frétta af mér, haustið að byrja og
brjáluð vinna fram undan,“ segir Arnar Gauti Sverr-
isson, framkvæmdastjóri og ein helsta tískulögga
landsins. „Við erum nýbúin að opna GK búðina aftur
eftir breytingar. Bættum við gasarni svo búðin er
orðin eins og alvöru búð í útlöndum. Þetta var ein
fallegasta búð landsins en er orðin ennþá flottari.
Búðin vekur mikla athygli, til dæmis hjá birgjum og
fólki í þessum bransa.“
Arnar Gauti er sem kunnugt er einn af þremur
stjórnendum Innlits/útlits og segir nýja þáttaröð
hefjast þriðjudaginn 26. þessa mánaðar. „Við ætlum
að vera á svipuðum nótum en bara gera enn betur
en í fyrra. Eftir áramót verða svo gerðar svaðalegar
áherslubreytingar á þættinum.“ Arnar fékkst ekki til
að upplýsa nánar um breytingarnar en segir að til-
kynnt verði um þær bráðlega.
Fjölskyldan fór í tveggja vikna sumarfrí til Playa
del Carmen í Mexíkó, sem Arnar segir að hafi verið
æðislegt. „Stærsti viðburðurinn
í mínu lífi er þó sá að dóttir
mín var að byrja í leikskóla og
er ennþá í aðlögun. Maður er
ótrúlega stoltur og spennt-
ur. Hvernig verður þetta
eiginlega þegar hún byrjar í
skóla?“
Dóttir Arnars Gauta er
tveggja og hálfs og heitir Natalía
París. Arnar segist hafa átt góð
samskipti við Mannanafnanefnd,
ekkert mál hafi verið að fá Parísar-
nafnið samþykkt því í sjálfu sér beyg-
ist það eins og Íris. „Hún var fyrsta
Parísin á Íslandi en nú er þetta
orðið hálfgert trend því ég held
að núna séu þær orðnar átta
sem heita París.“
Tískuheimurinn er
kvenna
„Þeir fáu karlmenn sem lifa
og hrærast í tískuheiminum
eru yfirleitt hommar.“
JÓN GNARR SKRIFAÐI BAKÞANKA
Í FRÉTTABLAÐINU Í GÆR ÞAR SEM
HANN TÓK UPP HÖNDINA FYRIR
KYNBRÆÐUR SÍNA. ÞAR SEGIR
HANN TÍSKUHEIMINN Í HÖNDUM
KVENNA OG ÖRFÁRRA SAMKYN-
HNEIGÐRA KARLMANNA.
Mannréttindi ekki
túlkunaratriði
„Hún (stjórn Orkuveitunnar)
getur ekki hunsað tilmæli
frá stjórnvöldum bara af því
að hún er ekki sammála.
Mannréttindi eru ekki túlk-
unaratriði.“
SÓLEY TÓMASDÓTTIR, FULLTRÚI VG
Í MANNRÉTTINDANEFND REYKJA-
VÍKUR, ER ÓSÁTT VIÐ UMMÆLI
FORSTJÓRA ORKUVEITUNNAR SEM
SEGIR NEFNDINA HAFA MISSKILIÐ
NÝJU SJÓNVARPSAUGLÝSINGUNA
FRÁ ORKUVEITUNNI.
Í DV árið 1995 mátti lesa
um „ótrúlega hressan“
65 ára gamlan mann, Jón
William Sewell, sem hljóp
til vinnu sinnar á hverjum
degi, 11 km leið. Jón er
enn ótrúlega hress, orðinn
77 ára gamall og hleypur
nú 14 km á hverjum ein-
asta degi. „Ég er kominn á
eftirlaun svo ég get hlaup-
ið meira,“ segir hann.
Jón hleypur alltaf sama hring-
inn: Heiman að frá sér í Hafnar-
firði, gegnum Álftanesið fram
hjá Sólvangi og félagsheimilinu,
að Bessastaðar-afleggjaranum
og þaðan hring til baka. „Þetta
tekur sirka 80 mínútur en aðeins
meira í mótvindi,“ segir hann.
„Þetta er ekkert spretthlaup hjá
mér. Ég mæti yfirleitt ekki
mörgum en það eru fjórir hestar
í girðingu á leiðinni sem ég gef
alltaf brauð. Þeir eru farnir að
bíða eftir mér.“
Jón er mjög ósáttur við gatna-
málin á Álftanesi. „Það eru
hættulegir vegkantar á leiðinni
frá Reykjavíkurvegi til Bessa-
staða sem veita ökumönnum
falskt öryggi. Fólk keyrir eins
og það sé í Formúlunni og útaf-
keyrsla er algeng þarna. Því
fylgir að möl og glerbrotum
rignir yfir göngustíginn, sem
gerir mér erfitt fyrir. Það er
ekki enn búið að sópa eftir síð-
asta slys, sem varð fyrir nokkr-
um vikum.“
Jón segist ekki finna mun á
sér þótt hann sé orðinn þetta
gamall. „Ég hef alltaf hlaupið
mikið. Í gamla daga vildi ég spila
fótbolta lengur en aðrir krakkar.
Eftir klukkutíma vildu hinir
kannski fara heim að borða og
ég var einn eftir á vellinum. Þess
vegna byrjaði ég bara að
hlaupa.“
Jón vill nota hlaupin til góðs
og er að skipuleggja hlaup í
kringum landið. Hann langar til
að hlaupa til styrktar samtökum
gegn umskurði kvenna.
„Það er algjör villimennska
og ævilangt ofbeldi sem þarf að
stöðva. Ég las það einhvers stað-
ar að 6.000 stúlkur væru
umskornar á dag svo þörfin er
brýn,“ segir hann. „Nú leita ég
að samstarfsaðilum og húsbíl.“
gunnarh@frettabladid.is
Hleypur meira á eftirlaunum
JÓN GEFUR HESTUM BRAUÐ Á
LEIÐINNI „Þeir eru farnir að bíða
eftir mér.“ FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ARNAR GAUTI SVERRISSON FRAMKVÆMDASTJÓRI
Dóttirin startaði Parísartrendinu
JÓN WILLIAM SEWELL 77 ÁRA
SKOKKARI Hleypur 14 km daglega
en segist ósáttur við aðstæður á
Álftanesi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA