Fréttablaðið - 15.09.2006, Side 28

Fréttablaðið - 15.09.2006, Side 28
 15. september 2006 FÖSTUDAGUR4 George Holmes rekur veit- ingastaðinn Indian Mango á Frakkastíg. Á Indian Mango eldar George ekta indverskan mat og leggur mikla áherslu á að stytta sér ekki leið í þeim efnum. Eini munurinn á því sem hann eldar hér og austurfrá er hráefnið, en það er íslenskt eins langt og það nær. George var svo rausnarlegur að láta Fréttablaðinu í té uppskrift að þriggja rétta máltíð þar sem aðalrétturinn er svartfugl að hætti hússins. CALAMARIE PIRI PIRI 15 litlir calamarie salt eftir smekk 1 msk. edik 2 tsk. sykur 1 tsk. chili-mauk ( maukað ferskt chili) olía til steikingar Blandið öllum hráefnum saman, látið standa í 10 mínútur. Pönnu- steikið og berið fram með fersku mangósalati sem kryddað er með salti, svörtum pipar og mangódufti (fæst hjá Nings eða í Filippseyja- búðinni). TANDOORI-SVARTFUGL - FYRIR FIMM 1 kg svartfuglsbringur salt eftir smekk KRYDDLÖGUR: 1 msk. hvítlaukur og engifer saxað mjög smátt 1 msk. tandoori-duft 250 ml AB mjólk 1 msk. sítrónusafi GRÆNMETI, 1 gulrót 1 lítið eggaldin 1 lítil sæt kartafla 1 lítil rófa 1 lítil kartafla Marinerið svartfuglsbringurnar í kryddleginum í 24 klukkustundir. Bakið í ofni í 10 mínútur við 180°C eða eftir smekk. Berið fram með hrísgrjónum, grænmeti og grænu chutney. Skerið grænmetið í strimla, steikið á pönnu, kryddið með salti, svörtum pipar og aðvitað mangó- dufti. GRÆNT CHUTNEY MEÐ SVARTFUGLI 2 langir grænir chili 1 bolli fersk mintulauf 2–3 bollar söxuð fersk kóríanderlauf 3 msk. sítrónusafi 1 tsk. sykur salt eftir smekk ½ tsk. nýmulinn svartur pipar Blandið öllu saman í matvinnslu- vél og berið fram ferskt með svart- fuglinum. SHIRA (KESARIBHATH) - UPPÁHALD INDVERJA OG ER BÆÐI MORGUNMATUR OG EFTIRRÉTTUR. 1 bolli semolína mjöl 1 bolli mjólk ¾ bolli ghee (má nota ósalt smjör) ¾ bolli sykur 8 – 10 cashew-hnetur nokkrar rúsínur grænar kardimommur, malaðar Hitið pönnu, bræðið ghee (eða ósalt smjör) á pönnunni. Bætið semolínamjölinu á pönnuna og steikið í 10 mínútur á lágum hita. Þegar mjölið er gullinbrúnt er mjólk blandað saman við. Hrærið varlega, Setjið lok á pönnuna og sjóðið í 4-5 mínútur. Bætið nú sykri, rúsínum og hnetum og kardimommuduftinu út í blönduna. Setjið lokið á aftur, slökkvið undir hitanum og látið bíða í 3-4 mínútur. Þegar sykrinum er bætt út í gæti blandan litið út fyrir að vera of blaut, látið bíða smástund og mjölið drekkur í sig vökvann. tryggvi@frettabladid.is Maturinn hans George Shira er bæði morgunmatur og eftirréttur. Tandoori svartfugl með grænu chutney Calamarie piri piri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA George Holmes rekur veitingastaðinn Indian Mango. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Um helgina verður efnt til viðamikillar hátíðar, Fiskirís, um allt land. Henni er ætlað að minna fólk á fiskinn okkar, hversu góður hann er, hollur, og auðveldur í matreiðslu. „Ætlunin er að vekja athygli á fiskinum sem ákjósanlegu hráefni til matargerðar. Bæði með hlið- sjón af því að hér er um mikið hollustufæði að ræða og hinu, sem okkur langar að undirstrika, að fiskur er í rauninni skyndibiti í þeim jákvæða skilningi að hann er gott hráefni í skyndimatargerð,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra. Yfirvöld hafa ákveðnar áhyggj- ur af fiskneyslu þjóðarinnar en hún hefur minnkað og þá sérstak- lega hjá yngra fólki. „Við teljum að það sé þörf á því að vekja fólk til vitundar um mikilvægi fisks- ins. Við erum fiskframleiðsluþjóð og fiskútflutningsþjóð og það er mikilvægt að slík þjóð kunni skil á þessu góða hráefni,“ segir Einar. Minntur á hátt fiskverð hér- lendis og spurður hvort það spili inn í minni neyslu játar Einar að vissulega hafi verð hækkað. „Fisk- ur er hins vegar ekki jafn dýrt hráefni og af er látið. Hann nýtist afskaplega vel. Hann er seldur beinhreinsaður og flakaður og því er hinn raunverulegi kostnaður til matargerðar lægri,“ segir Einar. „Niðurstöður þeirra athugana sem gerðar hafa verið segja að það sé ekki hátt verð sem sé ástæða minnkandi neyslu, heldur að í huga fólks er fiskur ekki jafn aðgengilegt hráefni og raun er á.“ Um áttatíu veitingastaðir taka þátt í hátíðinni með því að hafa fiskmeti og sjávarfang í öndvegi á matseðlum sínum. Hverjum stað er það í sjálfsvald sett hvernig þetta er framkvæmt og er því um gríðarlega fjölbreytni að ræða, bæði hvað varðar hráefni og eld- unaraðferðir sem og verð. Hátíðinni verður fylgt eftir með upplýsingum og fræðslu frá Lýðheilsustöð, Rannsóknastofu fiskiðnaðarins og Rannsóknastofu í næringarfræði. Öllum nemend- um í útskriftarárgöngum fram- haldsskólanna verður færð mat- reiðslubók að gjöf, sem full er af fljótlegum og gómsætum sjávar- réttum sem auðvelt er að töfra fram. tryggvi@frettabladid.is Rífandi fiskirí á öllum miðum Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra vill auka fiskneyslu ungs fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.