Fréttablaðið - 15.09.2006, Side 36
SIRKUS15.09.06
4 viðtalið
K
lukkan er ellefu að íslenskum
tíma og lokaþátturinn af Rock
Star Supernova er að fara í loft-
ið. Blaðamaður situr spenntur
við símann, sem skyndilega
hringir. „Blessaður Breki, hvað
segja bændur?“ heyrist með vinalegri en
þreyttri röddu á hinum enda línunnar. Rokk-
stjarna Íslands hringir beint frá Los Angeles.
Fjórir tímar eru síðan þátturinn var tekinn upp
og úrslitin eru ljós. Íslendingar hafa hins vegar
ekki hugmynd um sigur Lukasar, halda enn í
vonina að okkar maður sigri. Maðurinn sem
allir hafa talað um síðustu þrjá mánuðina situr
uppi á hótelherbergi með konu sinni og er
gjörsamlega uppgefinn. Hann gefur sér þó
tíma til þess að ræða við Sirkus um ævintýrið
sem loks hefur tekið enda.
Hvað segir strákurinn „okkar“ þá?
„Alveg ljómandi.“
Hvernig er tilfinningin nú þegar þetta er loksins
búið?
„Það eru bara nokkrar mínútur þangað til ég
sofna held ég. Ég vaknaði klukkan þrjú í morg-
un og nú er klukkan fjögur eitthvað. Ég er
búinn að vera í viðtölum í þrjá eða fjóra tíma
eftir að þessu lauk. En það eru samt mjög
blendnar tilfinningar í gangi. Mestmegnis er
þetta ólýsanleg gleði og frelsistilfinning. Við
erum öll orðnir rosalega góðir vinir og ég hef
kynnst mörgu fólki. Ég mun samt sakna þess
mest að fá ekki að vera á sviðinu en þetta er
mikill léttir.“
Gerirðu þér grein fyrir hvað þú ert orðinn mikil
stjarna hérna heima?
„Nei, ég veit ekkert hvað þú ert að tala um. Ég
hef ekki einu sinni kveikt á tölvu og veit því ekk-
ert hvað er í gangi á Íslandi.“
Ætlarðu að túra með húsbandinu?
„Ég fer líklega í það núna í janúar, já. Það er nú
ekki búið að ganga frá því en þeir hljóta að
leyfa mér að koma með á Supernova-túrinn.“
Spenntur fyrir því?
„Að sjálfsögðu. Þetta húsband er líklega besta
hljómsveit í heiminum. Trommarinn er ótrúleg-
ur og einhver besti drengur sem ég hef hitt.“
Magni er greinilega mjög feginn að hitta
Eyrúnu konu sína og er alveg með á hreinu
hvað sé fram undan.
„Planið er að fara heim og leika við soninn í
svona tvær vikur og kannski konuna líka. Síðan
höldum við í Á móti sól áfram að taka upp nýja
plötu. Svo veit ég ekkert meira. Það eru nú
bara fjórir klukkutímar síðan þetta kláraðist
þannig að ég er ekkert farinn að pæla í
þessu.“
Hverjir voru nettastir þarna í hópnum?
„Sko, Josh var besti vinur minn og við náðum
mjög vel saman. Síðan þegar hann fór voru
það Dilana og Toby sem voru mínir bestu vinir.
Það þurfti tvo til þess að fylla skarðið hans
Josh, því hann var svo skemmtilegur.“
Var ekkert á milli keppenda? Var enginn af
ykkur að tékka eitthvað á stelpunum?
„Ertu að tala um serðingar? Málið var að Toby
var eini gæinn sem var á lausu í húsinu. Og
hún Dana var eina „single“ gellan. Málið var
bara að þau fíluðu ekki hvort annað. Við vorum
alltaf að reyna að koma þeim saman en það
gekk ekki neitt. Við litum svolítið á þetta þannig
að ef þau myndu gera eitthvað gætum við haft
Rokkstjarna Íslands segir íslensku þjóðina hafa komið sér í lokaþáttinn
„Hann er svolítið hress gaur
og fær sér hvítvín annað
slagið. Reynar er hann yfir-
leitt með flösku á sér.“
[Magni um Tommy Lee]
Sami Magni og áður –
bara aðeins brúnni