Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 38
www.bluelagoon.is Líf 6 gaman af því og kannski klappað. En það gekk bara eitthvað illa að koma henni upp á hann. Toby var svosem alveg til í þetta en það var voðalega lítið action í þessu húsi.“ Hvernig var rokkaralífið í rokkhöllinni? Var þetta bara hundleiðinlegt? „Þetta var nú ekki leiðinlegt en vissulega komu leiðinlegir tímar inn á milli en ekkert yfir- þyrmandi. Fyrst voru náttúrlega fimmtán manns þarna og þetta var eins og að búa á heimavist. Ef þér leiddist fórstu bara og spjallaðir við ein- hvern en í lokin var alveg brjálað að gera. Við vorum til dæmis ekkert í þessu húsi síðustu tvær vikurnar. Þegar það voru átta eftir kom smá millibilsástand því allir voru búnir að tala um allt sem hægt var að tala um. Einn eða tveir fóru í taugarnar á öllum, sem var svolítið þreyt- andi. Síðan vaknaði þetta aftur þegar fimm voru eftir.“ Stíft prógramm? „Já, það var margt sem kom ekki fram í þáttun- um. Til dæmis þegar við fórum til Vegas þá vöknuðum við klukkan hálf fjögur, tókum upp heilan þátt og sendum tvo heim. Fórum svo aftur heim, pökkuðum og fórum svo til Vegas. Þá var bara einn dagur búinn og við ekki byrjuð í ruglinu enda sofnuðu allir bara um tíuleytið.“ Er Tommy Lee jafn rosalegur og maður heldur? „Hann er svolítið hress gaur og fær sér hvítvín annað slagið. Reynar er hann yfir- leitt með flösku á sér. Hinir eru rólyndisdrengir og ég sá þá til dæmis ekkert í partíinu þarna í Vegas. Tommy heldur uppi rokk- merkjum hljómsveitarinnar en nú er komin samkeppni því Lukasi finnst bjór góður. Þeir voru alla vega mjög hressir saman í vélinni á leiðinni til Vegas, get ég sagt þér.“ Ekkert eitt sem stendur upp úr? „Jú þegar Jason [Newsted, bassa- leikari SN] kom yfir á setrið fyrir fjórum eða fimm dögum. Hann býr nefnilega bara hinum megin við götuna og rölti yfir. Við fórum inn í æfingarhúsnæðið og djömmuðum í fimm og hálfan tíma án þess að stoppa. Ég tók bassann í einhverja þrjá tíma og gat varla hreyft á mér hendina. Þetta var mikill hápunktur því hann er í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Einhver ÁMS -ög? „Nei, við vorum mestmegnis bara að djamma. Sömdum einhver tvö lög þarna. Dilana kíkti reyndar líka en gafst fljótlega upp. Lukas sat svo bara úti í horni með bjór og brosti.“ Þessi kosningaherferð sem þú fórst í í einum þættinum. Heldurðu að hún hafi hjálpað þér? „Þessi „herferð“ var nú bara þannig að ég var að grínast við gaurinn sem var að taka viðtalið. Þeir notuðu þetta svo skemmtilega og ég hló mig máttlausan þegar ég sá þetta. Kaldhæðnis- húmorinn kom sterkur inn. Bandaríkjamenn skilja ekki kaldhæðni en þetta svínvirkaði samt.“ Hvert var minnisstæðasta atriðið í keppninni? „Það voru nú bara öll lögin sem Zayra tók. Sér- staklega þegar hún fór upp á svið klædd eins og óskarsverðlaunastytta.“ Hvernig týpa er Zayra? „Hún er alveg æðisleg. I don´t know what you´re saying. Ég get svarið það að hún kunni ekki eitt einasta lag. Ég þurfti að byrja á því að spila hvert einasta lag fyrir hana þegar við vorum að velja lögin og kenna henni öll helvítis lögin áður en hún valdi. Hún er samt frá Puerto Rico og er ekkert alin upp við þessi lög. Það er reyndar það flottasta við hana því hún hefur enga áhrifavalda. Músík- in vellur bara upp úr henni.“ Þú varst mikið að aðstoða fólk með lögin. Kanntu bara öll lög og texta? „Þau kölluðu mig „The human jukebox“. Fyrir mér er þessi tegund tón- listar ekkert mál og hefur aldrei verið.“ Eru hinir krakkarnir á leiðinni til islands? „Planið er að halda tón- leika með húsbandinu í byrjun desember á Íslandi. Þá myndu Toby, Dilana og Storm koma. Við sjáum hvað gerist en það eru allavega allir geim.“ Er poppstjarnan Magni orðinn rokkstjarnan Magni? „Hver er munurinn á poppi og rokki?“ Alltaf svona mikill rokkari? „Já, ég hef alltaf verið meiri rokkari en flestir halda. Þetta er samt bara spurning um að hafa gaman að því sem maður er að gera, þá skiptir engu máli hvað músíkin heitir. Ef mig misminnir ekki er orðið popmúsík, popular músík, og það er ekkert að því að vera vinsæll. Þú getur verið eins langt og þú getur úti á vinstri kantinum grenjandi heima hjá mömmu, þetta er bara spurningin um að gera eitthvað.“ Grunaði þig einhverntíma að þú myndir ná svona langt? „Nei, blessaður vertu. Ég ætlaði bara að vera hérna í svona tvær vikur. Ætlaði meira að segja að taka Eyjar um verslunarmannahelgina með Á móti sól.“ Hvenær fær maður að sjá þig næst á balli með Á móti sól? „Ég er nú bara ekki viss. Ætli það verði ekki bara í lok mánaðarins örugglega.“ Viltu segja eitthvað að lokum við alla sem hafa stutt þig í gegnum þetta? „Ég vil bara koma þökkum til íslensku þjóðar- innar eins og hún leggur sig fyrir að leyfa mér að vera strákurinn þeirra í smástund eins og handboltalandsliðið. Sérstaklega þar sem þetta er búið og ég er ennþá strákurinn þeirra. Svo vil ég þakka Flugleiðum fyrir að fljúga fjöl- skyldunni minni hingað út og bara þjóðinni fyrir að hafa komið mér í lokaþáttinn. Það er ótrúlegt hvað þessi litla þjóð getur gert.“ Ætlaðirðu nokkuð að vinna þetta? „Ég hefði nú ekki haft neitt á móti því. En ég vildi meira að Lukas myndi vinna. Hann þarf meira á því að halda. Eftir þessa dvöl hérna hef ég komist að því að ég lifi gjörsamlega full- komnu lífi. Við Toby vorum allavega mjög ánægðir með Lukas.“ Ertu ennþá sami Magni núna og þegar þú fórst út? „Já, ég held það, bara aðeins brúnni.“ Við þökkum Magna kærlega fyrir að hafa gefið sér tíma til þess að tala við okkur og bjóðum honum góða nótt í LA. Ætli það sé ekki við hæfi að enda þetta á sömu orðum og rokkararnir í Supernova notuðu þegar þeir kvöddu Magna: „You are heading on to be the king of Iceland.“ „Eftir þessa dvöl hérna hef ég komist að því að ég lifi gjörsamlega fullkomnu lífi.“ viðtalið Aðdáendur spyrja Magna Rakarðu bara hárið af hausnum eða af fleiri stöðum? [Þórhallur Þórhallsson] „Svarið við þessari spurningu er eftirfarandi. Er ekki í lagi heima hjá þér?“ Heldurðu að það hafi verið ákveðið næstum frá upphafi hver ætti að vinna? [Anna Safy] „Nei, ég held að það hafi nú ekki verið ákveðið. Ég vissi samt strax hver væri í uppáhaldi hjá Tommy og hann vann. Þeir áttu allir þrír sitt uppáhald. Jason var með mig, Gilby með Dilönu og Tommy með Lukas, hann er bara frekastur hann Tommy.“ Hvernig er Lukas án make-up? [Guðjón Örn Helgason] „Þetta er Lúkas ómálaður. Hann fæddist svona enda hef ég aldrei séð hann ómálaðan. Ég henti honum fjórum sinnum í sundlaugina og hann kom alltaf svona upp úr.“ Veistu eitthvað hvort Tommy Lee eða Dave Navarro hafi sofið hjá einhverjum kven- kyns keppendum Rockstar? Þá aðallega Storm? [Ragnar Másson] „Nei, það er langt því frá. Það gerðist ekkert svoleiðis.“ Uxu rokkgoðin í áliti hjá þér eftir dvölina í US? [Bára Brynjólfsdóttir] „Já, að vissu leyti. Þeir eru mun skemmtilegri en ég hélt.“ Telur þú að einhvern tíma muni fæðast maður sem getur synt hraðar en hákarl? [Arnfríður Arnmundsdóttir] „Uuuuu... jaaaa... nei, það held ég ekki.“ Notendur www. minnsirkus.is gátu farið inn á vef blaðsins og sent okkur spurningar. Fjödlinn allur kom af spurn- ingum og svar- aði Magni nokkr- um laufléttum. „Lúkas sat svo bara úti í horni með bjór og brosti.“ „Þau kölluðu mig „The human jukebox“.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.