Fréttablaðið - 15.09.2006, Qupperneq 46
Það verður að segjast
eins og er að United
93 er án efa með betri myndum sem ég hef
séð á árinu. Hún segir frá og sýnir að miklu
leyti allar hliðar þess skelfilega atburðar sem
átti sér stað 11. september 2001 þegar fjór-
um farþegaþotum var rænt af hryðjuverka-
mönnum. Þessi mynd fjallar um það flug þegar
farþegar náðu að yfirbuga hryðjuverkamennina
svo aðgerðirnar náðu ekki til áætluðum árangri.
Áður en ég fór á myndina bjóst ég við því að
þetta yrði þessi týpiska klisja þar sem ,,God
bless America“ bragurinn væri yfir um og allt í
kring en raunin varð allt önnur. Í aðalhlutverk-
um eru engar Hollywood hetjur til að bjarga
málunum heldur eingöngu venjulegt fólk í
venjulegum aðstæðum sem gerir
myndina mjög raunverulega. Unit-
ed 93 fókusar aðalega á hvernig
hlutirnir voru í raun og veru sem
dregur mann ósjálfrátt inn í mynd-
ina svo að myndin nær til manns
á mjög tilfinningalegan hátt. Fram-
leiðendum myndarinnar tókst afar-
vel til að framleiða mynd um jafn við-
kvæmt mál og þetta án þess að misnota
sér þessa atburði. Myndin fer frekar hægt af
stað og fjallar fyrri hluti myndarinnar að stóru
leiti um hvernig málin þróuðust innan flugmála-
stjórnar sem gefur manni víðari sín á það
hvernig hlutirnir voru í raun og veru. Ef einhver
hefur áhuga á að kynna sér þá atburði sem
áttu sér stað þennan dag talsvert betur mæli
ég hiklaust með United 93.
steinaro.minnsirkus.is
SIRKUS15.09.06
14
1
2
3
Hvernig fannst þér myndin?
MINNSIRKUS -
MEÐLIMIR GAGNRÝNA
Þú getur sagt álit þitt á
kvikmyndum í Sirkus.
Það eina sem þú þarft
að gera er að vera
meðlimur í samfélaginu
okkar á www.minnsirk-
us.is/sirkus og fylgjast
með kvikmynd vikunnar.
Vertu bíógagnrýnandi og
segðu það sem þér
finnst.
1
FM957
2
3
Minnsirkus.is blogg vikunnar Vertu þarna ...Horfðu á þetta ...
um helgina
UNITED 93
Aðalhlutverk: Christian Clemenson / Trish Gates / Polly Adams
Leikstjóri: Paul Greengrass
Myndin í einni setningu: Hetjudáð í háloftunum
7.9/10 á imdb.com
ÞORKELL MÁNI
MÆLIR MEÐ
STONE SOUR
Through Glass
„Hér eru á ferðinni gæjar úr
hljómsveitinni Slipknot. Þeir
eru með þessa hljómsveit
svona til hliðar við Slippið,
með óhemju góðar melód-
íur, öflugan söng, og kraft-
mikinn hljóm.“
BASS HUNTER
Boten Anna
Þetta er sænskur plötu-
snúður og skemmtikraftur.
Sprenghlægilegt danslag
og melódía sem límist á
heilann á manni.“
PINK
U + UR Hands
Pink hefur alltaf
verið stór-
skemmtileg stelpa og talar
hér um að þú farir ekki heim
með henni þótt þú bjóðir
henni upp á drykk. Flott pía
og músíkkant.
Síðasta 90´s kvöld Curvers er á Bar 11 á laugardaginn. Strákurinn er að fara á túr
með Ghostigital í Ameríkunni og svo ætlar hann
að einbeita sér að myndlistinni þegar heim er
komið. Þessi kvöld hafa verið gríðarlega vinsæl
í allt sumar og hefur 90´s tískan ráðið ríkjum
samhliða því. Staðurinn verður skreyttur með
glowsticks og er um að gera að hrista sig
aðeins við No limit og fleiri slagara. Mættu á
miðnætti. Frítt inn.
Fjórði þátturinn af Búbbunum fer í loftið annað kvöld klukkan átta. Sirkus mælir
mikið með þessum þáttum, sem ná til allra
í fjölskyldunni. Fimm ára frændinn hlær
jafnmikið og amman því aulahúmor kætir
alla. Strax á eftir þessu er nýr dagskrárliður
sem heitir Grín, djók og spaug. Þar á að
bjóða upp á úrval grínþátta sem hafa verið
framleiddir fyrir sjónvarp. Byrjað verður á
Fóstbræðrum. Snilld.
DEFTONES
Hole in the earth
„Ein allra besta rokkgrúbba í
veröldinni. Loksins komnir
með nýtt lag.“
BRAIN POLICE
Nýja platan eins og hún
leggur sig
„Beyond the wasteland,
Feitari en andskotinn.
Íslenskar rokkplötur gerast
ekki betri.“
JOHN B
I´ve been
stalking you
on myspace
„Joi B er á
leiðinni á
klakann í lok mánaðarins að
spila á klikkuðu breakbeat
kvöldi. Þetta lag gefur góð
fyrirheit.“
„Þetta er verk eftir skáldsögu Svövu
Jakobsdóttur sem kom út árið 1987.
Okkur finnst þetta allavega mjög
mögnuð sýning, djörf og óvenjuleg,“
segir Maríanna Klara Lúthersdótti-
r, einn af aðstandendum sýningarinn-
ar en hún leikur einnig í verkinu. Kven-
félagið Garpur setur upp verkið en
það er félagsskapur sem nokkrar
stelpur stofnuðu eftir útskrift úr Leik-
listarskólanum. „Við stofnuðum þetta
nú bara á Kaffibarnum eina kvöld-
stund yfir bjórglasi. Þetta erum ég,
María Heba, Esther Talía og Sólveig
Guðmundsdóttir vinkona okkar sem
lærði í London,“ segir Maríanna en
hópurinn fékk styrki til þess að setja
upp Gunnlaðarsögu. „Við vorum ein-
mitt að ræða að þetta byrjaði bara yfir
einhverju spjalli en nú erum við með
tuttugu manns í vinnu og frumsýning
framundan,“ segir Maríanna og viður-
kennir að ferlið hafi verið erfitt en
skemmtilegt.
Hún segir boðskap sýningarinnar
liggja stelpunum í Garpi mikið á
hjarta. „Þetta snýst svolítið um að
ábyrgðin um að bjarga heiminum
liggur hjá okkur sjálfum. Það gerir
það enginn fyrir okkur
og við verðum að vera
þáttakendur. Það þýðir
ekkert að fussa bara yfir
sjónvarpinu með
rauðvínsglas í
hendi.“
Sýningin er
frumsýnd
klukkan
20:00 í kvöld
en uppselt
er á þá sýn-
ingu. „Það er
önnur sýning
á laugardags-
kvöldið og svo
stefnum við á
fimmtán sýn-
ingar á verk-
inu,“ segir
Maríanna að
lokum en sýn-
ingin er sýnd
í Hafnarfjarð-
arleikhús-
inu. Bak við
Fjöru-
kránna.
MARÍANNA KLARA OG KVENFÉLAGIÐ GARPUR FRUMSÝNIR GUNNLAÐARSÖGU Í KVÖLD
Þýðir ekki að fussa
yfir sjónvarpinu
með rauðvínsglas
í hendi
UNITED 93
12 ástæður þess að banani er betri en
KARLMAÐUR!
1. Bananar haldast stinnir í
heila viku.
2. Meðalbanani er að
minnsta kosti 18
cm langur og banani
færi aldrei að segja
þér að stærðin skipti
ekki máli.
3. Banani reynir aldrei að
eiga við þig þýðingarmikl-
ar samræður.
4. Banani getur haldið sér uppi alla nóttina
og þú þarft ekki að sofa á blauta blettin-
um.
5. Banani spyr aldrei „ertu tilbúin?“.
6. Þú getur fengið þér eins marga banana
og þú ræður við.
7. Banani heimtar ekki að horfa á leikinn
þegar þú ert að horfa á uppáhaldssjón-
varpsþáttinn þinn.
8. Banani reynir aldrei að koma þér til þegar
þú ert með blautt naglalakk.
9. Þú kemst ekki að því síðar að bananinn
þinn er kvæntur.
10. Þú þarft ekki að bíða með að tala við
bananann þinn þangað til í hálfleik.
11. Banani skilur þig ekki eftir í nístandi
óvissu í heilan mánuð.
12. Banani hefur ekki ofnæmi fyrir kett-
inum þínum.
LadyPink.minnsirkus.is
Niður með ríkissjón-
varpið
„Hvaða mann-
vonska og illgirni
er það að stofna
rúv og neyða
okkur öll til þess
að borga af
þessu, mar horfir
ekki einusinni á þessa
stöð? Þetta er nátla bara rugl. Við þurfum að
taka okkur saman og mótmæla. Það á að
leggja þessa stöð niður, hún er hvort sem er
rekin með tapi. Allavega neita ég að borga
þetta rugl.“
finnsi.minnsirkus.is
BRYNJAR MÁR
MÆLIR MEÐ