Fréttablaðið - 15.09.2006, Side 60

Fréttablaðið - 15.09.2006, Side 60
 15. september 2006 FÖSTUDAGUR28 timamot@frettabladid.is MERKISATBURÐIR 1916 Skriðdrekar eru notaðir í fyrsta sinn í styrjöld í átökum milli Breta og Þjóðverja. 1935 Nasistar byrja að nota hakakrossinn sem tákn fyrir Þriðja ríkið. 1940 Konunglegur flugher Breta gersigrar þýska flugherinn í bardaga við strendur Bretlands. Þýsku flugvélarnar voru fjórum sinnum fleiri en þær bresku. 1967 Útsendingar sjónvarps- stöðvar Varnarliðsins eru takmarkaðar við Keflavíkurflugvöll og næsta nágrenni hans en stöðin fékk starfsleyfi í mars 1955. 1984 Harry prins, annar sonur Díönu prinsessu og Karls Bretaprins, fæðist. Á þessum degi fyrir 42 árum kom breska dagblaðið The Sun út í fyrsta sinn. Útgáfufyrirtæk- ið Mirror Group gaf The Sun út, en blaðið leysti The Daily Herald af hólmi, en það hafði verið rekið með halla um hríð. Fyrsta tölublaðið kom út aðeins mánuði fyrir þing- kosningar, en ritstjórnarstefnu blaðsins var lýst sem „róttækri og óháðri“, og ekki yrði gengið erinda sérstakra stjórnmálaafla, ólíkt forveranum sem hafði sterk tengsl við Verkamanna- flokkinn. Fyrsti ritstjóri blaðsins var Sidney Jacobsen. Fimm árum eftir að fyrsta tölublaðið kom út var The Sun boðið til sölu, en ekki hafði tekist að losna við skulda- súpuna sem fylgdi taprekstri The Daily Herald. Um það bil milljón manns lásu blaðið að staðaldri. Fjölmiðlakóngurinn Rubert Murdoch festi kaup á blaðinu en hann átti News of the World fyrir. Murdoch breytti ritstjórnarstefnunni og gerði blaðið að götublaði og þeirri stefnu hefur það fylgt allar götur síðan. Árið 1978 fór The Sun fram úr sínum helsta andstæðingi, The Mirror, hvað lestur varðar. Blaðið var að jafnaði hlutlaust í kosningum fram til ársins 1997 þegar það lýsti yfir stuðningi við Tony Blair. Upplag blaðsins í dag er tæpar fjórar milljónir. ÞETTA GERÐIST: 15. SEPTEMBER 1942 Slúðurblað fæðist Þökkum innilegan hlýhug og samúð vegna andláts elskulegrar eiginkonu minnar, Kristínar Aðalsteinsdóttur Heiðmörk 28h, Hveragerði. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Svanholt Björgvinsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Tryggvi Ingvarsson Hrafnistu, Hafnarfirði, lést á heimili sínu sunnudaginn 10. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Óskar Tryggvason Sigurrós Ríkharðsdóttir Elínborg Tryggvadóttir Guðrún Tryggvadóttir Gunnar Guðnason Jóhanna Tryggvadóttir Ferdinand Hansen Ingveldur Tryggvadóttir Guðmundur H. Valtýsson Guðmundur Tryggvason Ingvar Júlíus Tryggvason Magnea Guðrún Karlsdóttir Ragnhildur Tryggvadóttir Sigurjón Mikael Badeur barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar Magnús Ólafur Kjartansson myndlistarmaður lést á gjörgæsludeild LSH við Hringbraut þriðjudaginn 12. september. Útför auglýst síðar. Kolbrún Björgólfsdóttir, Elsa Björg og Guðbrandur. Yndislega dóttir okkar og barnabarn Bryndís Eva Hjörleifsdóttir Heiðarbóli 10, Keflavík, lést á Barnaspítala Hringsins miðvikudaginn 6. september. Útför verður gerð frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 18. september kl. 12.00. Bergþóra Ólöf Björnsdóttir Hjörleifur Már Jóhannsson Björn Viðar Björnsson Birna Oddný Björnsdóttir Jóhann Guðnason Sóley Vaka Hjörleifsdóttir Eyjólfur Örn Gunnarsson. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast Bryndísar Evu er bent á Barnaspítala Hringsins. 90 ára afmæli 18. september nk. verður níræður Símon Kristjánsson Neðri-Brunnastöðum, Vatnsleysuströnd. Af því tilefni tekur hann og fjölskylda hans á móti gestum í Tjarnarsal í Stóru-Vogaskóla sunnudaginn 17. september milli kl. 15 og 18. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Sólrún Þorbjörnsdóttir Sóltúni 2, Reykjavík lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn 12. september. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstu- daginn 22. september kl. 15.00. Gísli Ferdinandsson Guðríður Valva Gísladóttir Kolbeinn Gíslason Ólafur Haukur Gíslason Magnea Auður Gísladóttir Þorbjörn Reynir Gíslason Gísli Gíslason Matthías Rúnar Gíslason tengdabörn og barnabörn. ROBERT PENN WARREN (1905-1989) LÉST Á ÞESSUM DEGI Hvað er ljóð annað en hættu- leg tilraun til að skilja sjálfið? Bandaríska skáldið Robert Penn Warren vann Pulitzer-verðlaunin í þrígang, þar á meðal fyrir bókina Allir kóngsins menn. „Okkur bauðst bara tækifæri til að taka við staðnum og stukkum á það,“ segir Arinbjörn Þórarinsson en hann og kona hans, Hugrún Helga Guð- mundsdóttir, taka við rekstri veit- ingastaðarins Greifans norður á Akureyri um mánaðamótin. Hugrún er lærður framreiðslu- maður og Arinbjörn er matvælafram- leiðslufræðingur frá Háskólanum á Akureyri en þau unnu áður um nokk- urra ára skeið á Greifanum, hún sem þjónn og hann í eldhúsinu, og þekkja því vel til staðarins og bera til hans sterkar taugar. „Við kynntumst meira segja þar á sínum tíma. Ég vann þarna í sjö ár og hún fimm og við höfum haldið góðum tengslum við staðinn eftir að við fórum. Þegar vinir okkar og fyrrver- andi vinnuveitendur ákváðu að selja staðinn, var það áhersluatriði að þeir gætu treyst þeim sem tækju við til að halda uppi merki Greifans.“ Fráfar- andi eigendur hyggjast nú einbeita sér að hótelrekstri en þeir eiga og reka sex KEA-hótel. Arinbjörn segir að engar áherslu- breytingar séu framundan, enda óþarfi að breyta því sem vel er gert. „Við ætlum fyrst og fremst að halda áfram að bjóða upp á góða vöru og þjónustu. Höldum sem sagt áfram á sömu braut og stefnum á að gera ennþá betur,“ segir Arinbjörn en hjónin njóta liðsinnis rekstrarfélags American Style sem á hlut í rekstrin- um. - bs VEITINGASTAÐURINN GREIFINN: FÆR NÝJA EIGENDUR Urðu ástfangin á Greifanum ARINBJÖRN ÞÓRARINSSON OG HUGRÚN HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR Ætla að halda rekstrinum á sömu braut. GREIFINN AKUREYRI Hjónin unnu þar árum saman.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.