Fréttablaðið - 15.09.2006, Page 62
15. september 2006 FÖSTUDAGUR30
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
JÓI
LAGAR
MAT
Í dag: Brauð með
mæjónesi og spægipylsu.
Það sem þarf:
1 brauðsneið
1 sneið spægipylsa
smjör og mæjónes
Það fyrsta sem gera skal er
að smyrja fínu lagi af smjöri á
brauðið og setja pylsu á það.
Þá toppar maður með átta-
lagaðri mæjónesrönd og
köldum bjór.
Næst: Brauð
með sultu og
banana.
Fylgist með!
Frábært
eftir
kynlíf.
Flott
pabbi...
A!
Gefðu á mig
gamlingi! Úff!
Svona á
að gera
það!
Tognaður
aftur!
Þetta fer að
komast í vana!
Burs
ti-bu
rsti-b
urst! Það besta
við að
bursta er
að spýta!
Jamm!
KRAKKAR!!
Sjálf-hreinsandi
Hæ Sigga...
Vilt þú koma
út í kvöld?
Ég er
upptekin í
kvöld!
Fótbolti er nokkuð
sem ég hef aldrei
skilið. Ég hef auðvit-
að ákveðna hug-
mynd um grunn-
reglur leiksins en ég
hef aldrei skilið
skemmtanagildi hans. Ég botna
bara ekkert í því hvernig fólk nenn-
ir að hlaupa fram og til baka á eftir
bolta og enn furðulegra finnst mér
að nenna að horfa á aðra gera það.
Þrátt fyrir áhugaleysið hef ég
samt aldrei vanmetið félagslegt
gildi fótbolta sem svona „male
bonding thing“. Um daginn ákvað
ég því að fara með son minn á fót-
boltaæfingar þar sem hann var að
byrja í skóla og ég veit að leikni
með boltann er eini öruggi aðgöngu-
miðinn inn í strákasamfélagið.
Pjakkurinn hefur alltaf verið
duglegur að leika sér með bolta og
getur auðveldlega sparkað honum
sæmilega fast í rétta átt svo ég hélt
að þetta yrði ekki mikið mál. Það
var ekki fyrr en búið var að skipta
í lið á fyrstu æfingunni að ég fatt-
aði að ég hef aldrei útskýrt regl-
urnar fyrir honum og í okkar sjón-
varpi er ekki sýndur fótbolti. Ég
kallaði hann því út af og sagði
honum í stuttu máli frá grunnhug-
mynd leiksins. Þrátt fyrir skyndi-
námskeiðið sá ég samt fljótt aug-
ljósan mun á einbeitni sonar míns á
vellinum og hinna, sem höfðu
greinilega setið löngum stundum í
sófanum með sér eldri karldýrum
og öskrað bolta uppáhaldsliðsins í
netið. Hinir vissu strax á hvort
markið þeir áttu að skjóta og annað
slagið heyrðust öskur eins og
„útaf!“, „hendi!“ og „víti!“.
Ég skildi þarna að til þess að
sonur minn áttaði sig almennilega
á öllum reglunum yrði ég senni-
lega að endurskoða afstöðu mína
til fótboltasýninga í sjónvarpi. Við
byrjuðum þess vegna á því þegar
við komum heim að velja okkur
uppáhaldslið í enska boltanum og
ætlum að fara að fylgjast með því.
Ég er búin að átta mig á því að það
eru engin takmörk fyrir því hvað
maður er tilbúinn að gera fyrir
börnin sín og ef það er syni mínum
fyrir bestu að ég öskri annað slagið
á sjónvarpið okkar með honum þá
geri ég það bara.
STUÐ MILLI STRÍÐA Skora svo!
EMILÍA ÖRLYGSDÓTTIR ÆTLAR AÐ FARA AÐ HORFA Á FÓTBOLTA
Borgartúni 37 | 105 Reykjavík | s: 569 7700 | f: 569 7799 | nyherji@nyherji.is
www.lenovo.is
1981
1982
1983
1984
1985
1986
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
Nýherji stofnaður með
samruna IBM á Íslandi og
Skrifstofuvéla og verður
umboðsaðili IBM.
IBM kynnir fyrstu
fartölvuna sem
vegur minna en 2kg.
IBM hefur selt
100 milljón tölvur
út um allan heim.
Einkatölvuhluti IBM og
tölvuframleiðandinn Lenovo
renna saman í eitt fyrirtæki
undir nafninu Lenovo.
IBM kynnir fyrstu
einkatölvuna til sögunnar.
Hún var með 4,7MHz
örgjörva og 16K í minni.
Fyrsta færanlega tölva IBM
kemur á markað, hún var
aðeins 14 kg.
Fyrsta fartölvan
frá IBM kemur á markaðinn.
Þetta er fyrsta fartölvan á
markaðnum með litaskjá
og pinnamús.
25 árum síðar víkkar
Lenovo út vörulínuna. Auk
Lenovo ThinkPad kemur
Lenovo 3000 fartölvulínan
á markað sem setur nýja
staðla í gæðum og verðum.
Í tilefni 25
ára afmæl
isins
bjóðum við
25.000 kr
óna
afslátt af
Lenovo
ThinkPad
T60 fartöl
vu
Tilboðsve
rð:
239.900 k
r.
Verð áður:
264.900 k
r.
Nýherji fagnar því að í ár eru
25 ár síðan hóf
tölvubyltinguna með því að
setja fyrstu einkatölvuna á
markaðinn.
Kíktu í verslun Nýherja og
skoðaðu afmælistilboðin.