Fréttablaðið - 15.09.2006, Síða 64

Fréttablaðið - 15.09.2006, Síða 64
 15. september 2006 FÖSTUDAGUR32 menning@frettabladid.is ! Kl. 13.30Ráðstefna á vegum Djákna- félags Íslands verður haldin í hátíðarsal í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Yfirskrift hennar er „Kærleiksþjón- ustan og kirkjan í dag“. Að loknum erindum verður boðið upp á pallborðsumræður. > Dustaðu rykið af... Fyrstu plötu kanadíska söngvaskáldsins Leonards Cohen, The Songs of Leon- ard Cohen. Þar má til dæmis heyra lögin So long Marianne og Sisters of Mercy. Stjörnuprýdd heimildamynd um Cohen er sýnd á kvikmyndahátíð sem nú stendur yfir en þar flytur tónlistarfólk á borð við Beth Orton, Jarvis Cocker, Nick Cave og systkinin Rufus og Mart- ha Wainright lög hans. Kvenfélagið Garpur frumsýnir leikrit byggt á Gunnlaðarsögu eftir Svövu Jakobsdóttur í Hafnarfjarð- arleikhúsinu í kvöld. Sveinn Ólafur Gunnarsson leikari útskýrir að verkið fjalli um margar af stærstu spurn- ingum lífsins og skáldskap- arins enda er ferðast víða í verkinu. Gunnlaðarsaga kom út árið 1987 og var önnur skáldsaga Svövu Jak- obsdóttur og af mörgum álitin eitt merkasta verk hennar. Þar greinir frá mægðum og leið þeirra til auk- ins sjálfsskilnings en í sögunni varpar Svava jafnframt nýju ljósi á stöðu kvenna í norrænum forn- bókmenntum. Gunnlaðarsaga en þroskasaga, goðsaga og glæpa- saga og því vandi að ákvarða hvar bera skuli fyrst niður. „Þetta er býsna alvöruþrungið verk,“ segir Sveinn Ólafur, „eins og aðrar góðar sögur er hægt að lesa þetta verk frá mörgum hliðum. Í grunn- inn er þetta saga af móður og dótt- ur. Hvernig móðirin lærir að sýna dóttur sinni skilning en skilja um leið uppruna hins íslenska menn- ingarsöguheims.“ Móðir ungu stúlkunnar fer til Kaupmanna- hafnar að vitja dóttur sinnar sem hefur verið handtekin fyrir ráns- tilraun á gullkeri úr Þjóðminja- safni Dana. Móðirin dregst inn í óvenjulega atburðarás bæði í Kaupmannahöfn samtímans og í hugarheimi Dísar þar sem skáld- skapur verður að veruleika og goðsagan um Gunnlöðu – hofgyðj- una sem gætir skáldskaparmjað- arins – rennur saman við sögu mæðgnanna. „Stóra spurning verksins að mínu mati snýr að því hvort maður geti svikið skáldskap sinn,“ segir Sveinn og vitnar þar til orða móð- urinnar í verkinu. „Þá spurningu er hægt að túlka á marga vegu, til dæmis hvort móðir geti svikið það sem barnið hennar stendur fyrir. Það er líka hægt að sjá skáldskap- inn sem þann veruleika sem þú býrð til sjálfur, einskonar per- sónulega túlkun á raunveruleikan- um,“ segir hann. Áhorfendum er síðan látið eftir að leggja dóm á sekt, sakleysi og mátt skáldskap- arins. Sveinn Ólafur leikur sjálfan Loka Laufeyjarson í verkinu en hann er þó ljúfari persóna en það ólíkindatól sem flestir kannast við. „Þetta er áður en hann gerist þessi brellni karakter. Hann sér til margra heima en sagan gerist áður en hann tekur ákvörðun um að vera myrkranna megin.“ Loki og Gunnlöð eiga í kærleiksríku sam- bandi en geta ekki ást og vitanlega dregur til tíðinda þegar stúlkan Dís dúkkar upp í goðheimum. Leikstjóri sýningarinnar er Þórhildur Þorleifsdóttir en leik- gerðin var í höndum Sigurbjargar Þrastardóttur. „Það hefur án efa verið krefjandi að vinna leikgerð úr þessari sögu og eins að setja það á svið. Bæði Þórhildur og Sigur- björg hafa mjög skýra sýn á verk- ið og maður varð hreinlega að treysta þeim þó maður hefði sjálf- ur ekki yfirsýn alveg strax.“ Aðrir leikarar eru Arndís Hrönn Egilsdóttir, Erling Jóhannesson, Ívar Örn Sverrisson, María Heba Þorkelsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Sóley Elíasdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir en aðrir aðstandendur eru Lára Stefáns- dóttir sem sér um dans- og sviðs- hreyfingar og Filippía Elísdóttir búningahönnður, um lýsingu sér Björn Bergsteinn Guðmundsson og tónlistina semja Giedrius Pusk- unigis og Hlynur Aðils Vilmars- son. Þetta er fyrsta stóra verkefni Sveins eftir útskrift en að hans sögn er enginn frumsýningar- skjálfti hlaupinn í hann enn. „Ég er í svo góðum höndum að það er alveg óþarfi. Hann á samt mögu- lega eftir að hellast yfir.“ Gunnlaðarsaga verður frum- sýnd kl. 20 í Hafnarfirði í kvöld. kristrun@frettabladid.is STÚLKAN DÍS FERÐAST TIL GOÐHEIMA Sólveig Guðmundsdóttir í hlutverki sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR SVEINN ÓLAFUR GUNNARSSON LEIKARI Leikur Loka Laufeyjarson í Gunnlaðarsögu sem frumsýnd er í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Að svíkja ekki skáldskap sinn Kvikmyndirnar Blóðbönd og A Little Trip to Heaven eru framlag Íslands til Kvik- myndaverðlauna Norður- landaráðs árið 2006. Norska myndin Den brysomme mannen keppir einnig um verðlaunin en Kvikmyndafélag Íslands með þá Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson inn- anborðs framleiðir hana ásamt öðrum. Dómnefnd, sem er skip- uð fulltrúum allra norrænu landanna, valdi tvær myndir frá hverju landi og mun kveða upp sinn dóm þann 11. október og verðlaunin verða svo afhent 1. nóvember á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn. Blóðbönd er einnig í hópi þeirra 49 kvikmynda sem Evrópska kvikmyndaakademían hefur valið í forval til Evrópsku kvik- myndaverðlaunanna. Þessi keppni er eðlilega öllu viðameiri en Norðurlanda- keppnin og á næstu vikum munu 1.700 meðlimir akademíunnar fá tilnefnd- ar myndir til skoðunar en þeim er gert að velja fimm myndir sem fá tilnefningu í ýmsum flokkum. Almenningur getur haft sitt að segja í flokknum „People‘s Choice“ en þar eru danska myndin Adams æbler og Volver eftir Pedro Almodóvar meðal tilnefndra mynda. Kosn- ingin fer fram á netslóðinni www.peopleschoic- eaward.org. Lokatilnefningarnar verða kynntar 4. nóvem- ber en verðlaunaafhendingin fer fram í Varsjá í Póllandi þann 2. desember. BLÓÐBÖND Var sýnd á kvikmyndahátíð- inni í Toronto í vikunni og var vel tekið af áhorfendum. Blóðbönd á tveimur vígstöðvum Sýning á þrívíðum verkum eftir Hallstein Sigurðsson verður opnuð í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi á morgun. Sýningin ber heitið „Hjól – Plógur – Vængir“ og eru verkin unnin úr málmi. Borgar- stjórinn í Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, opnar sýninguna formlega kl. 15. Listfræðingurinn Jón Proppé hefur tekið saman sýningarskrá um verk Hallsteins og lýsir hann þeim svo að þau hafi framan af borið sterk einkenni módernism- ans en nýrri verk hans séu gjarn- an léttar formstúdíur þar sem hann noti granna teina og kúpta fleti til að teikna upp form og hreyfingar í rýminu. „Léttleiki og tær myndhugsun eru aðall Halls- teins og innra rými verkanna er opið, afmarkað með fáum en skýr- um dráttum.“ Hallsteinn hefur haldið á annan tug einkasýninga, tekið þátt í fjöl- mörgum samsýningum og verið virkur í starfi myndlistarmanna, einkum í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík. Verk Hallsteins er víða að finna en gott safn þeirra má þó ávallt skoða í höggmyndagarði sem hann hefur sett upp í Gufunesi. Sýningin stendur til 26. nóvem- ber en safnið opið daglega, utan mánudaga, milli 14-17, en í október og nóvember verður safnið aðeins opið um helgar. - khh Hjól, plógur og vængir MYNDLIST HALLSTEINS SIGURÐSSONAR Léttleiki og tær myndhugsun er aðall Hallsteins. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 6 5 7 Miðasala 568 8000 www.borgarleikhusid.is „ÞAKIÐ ÆTLAÐI AÐ RIFNA AF HÚSINU.“ VILTU FINNA MILLJÓN? EFTIR RAY COONEY DV

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.