Fréttablaðið - 15.09.2006, Side 68
15. september 2006 FÖSTUDAGUR36
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
FRUMSÝND 15·09·06
SENDU SMS SKEYTIÐ JA NLF Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA FYRIR TVO.
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
> Plata vikunnar
Tiga: Sexor
„Tiga veit upp á hár hvað hann þarf að gera til
þess að fá þig út á dansgólfið. Sexor inniheld-
ur flott elektrópopp, undir „næntís“ áhrifum,
fyrir þá sem vilja hrista á sér beinagrindina.”
BÖS
> Í SPILARANUM
Bonnie „Prince“ Billy: The Letting Go
Brain Police: Beyond the Wasteland
James Yorkston: The Year of the Leopard
Justin Timberlake: FutureSex/LoveSounds
Yo La Tengo: I Am Not Afraid of You and I Will Beat Your Ass
BONNIE „PRINCE“ BILLY JUSTIN TIMBERLAKE
Gríðarlega margar áhuga-
verðar hljómsveitir hafa
komið frá næstvíðfeðmasta
landi heims, Kanada, á
undanförnum misserum.
Steinþór Helgi Arnsteins-
son gluggaði aðeins betur í
þessa sterku senu.
Ef farið er yfir tónlistarsöguna
kemur í ljós að Kanada hefur alið
af sér marga misgóða tónlistar-
menn, alveg eins og öll önnur lönd.
Margir eru þó meira en vel þekkt-
ir og má þar kannski helst nefna
tónlistarmenn á borð við Leonard
Cohen, Bryan Adams, Alanis Mor-
issette, Neil Young, Shaniu Twain
og síðan auðvitað Paul Anka.
Undanfarin tvö til þrjú ár
hefur hins vegar mikið gengið á í
kanadísku tónlistarlífi. Í vikunni
kom til dæmis út platan So This Is
Goodbye með hljómsveitinni Jun-
ior Boys og hefur hún fengið frá-
bæra dóma nánast alls staðar. Er
þetta enn ein kanadíska sveitin
sem hefur hlotið gríðarlega
athygli innan tónlistarheimsins
en frambærilegar hljómsveitir
frá þessu ágæta landi virðast
spretta upp eins og gorkúlur um
þessar mundir.
Bylgjan magnast og kemst upp í
þurrt land
Bylgjan mikla má segja að hafi
hafist árið 2003 þegar hljómsveit-
irnar Broken Social Scene og The
Unicorns stigu fram í dagsljósið.
Báðar þessar hljómsveitir vöktu
aðdáun tónlistargagnrýnanda og
sýndu fram á að eitthvað væri að
gerjast í þessu norðlæga landi.
Árið 2004 má síðan segja að aldan
hafi náð upp að landi. Það ár gaf
hljómsveitin The Arcade Fire út
frumburð sinn, Funeral. Sú plata
barst eins og eldur í sinu um allan
heiminn og varð meðal annars til
þess að hljómsveitin fékk að spila
með David Bowie. Í dag er Funer-
al orðin mest selda kanadíska
plata seinni ára, sem stríðir gegn
öllum nútíma plötusölulögmálum.
Í kjölfarið komu fram á sjónar-
sviðið enn fleiri sveitir frá landinu
sem South Park gerði svo eftir-
minnilega grín að í kvikmynd
fyrir nokkrum árum síðan.
Hefur alltaf verið til staðar
En hvað veldur eiginlega? Af
hverju koma öll þessi ósköp af
gæðatónlist frá Kanada akkúrat
þessa stundina? Flestir tala um að
mikil gróska hafi ávallt verið í
kanadísku tónlistarlífi og að hún
sé einungis núna að koma almenni-
lega fram á sjónarsviðið. Í nýlegu
viðtali sem birtist hér í Fréttablað-
inu sagði Aaron Harris, trommu-
leikari hljómsveitarinnar Islands
(sem er afsprengi hinnar fyrr-
nefndu The Unicorns), að „á
ákveðnum fresti verða alltaf
ákveðnar borgir mjög vinsælar og
hljómsveitir frá þeirri borg fá
meiri athygli og Kanada er ekkert
annað en borg í augum Banda-
ríkjamanna“.
Grípandi poppmelódíur, fram-
sækið indí-rokk, geislandi spila-
gleði og sterkar lagasmíðar virðast
því einfaldlega vera Kanadamönn-
um í blóð borin. Reyndar eru marg-
ar af þessum kanadísku hljómsveit-
um skipaðar Bandaríkjamönnum
sem búa og starfa í Kanada. Það
sem er einnig heillandi við kanad-
ísku senuna er að hljómsveitirnar
virðast allar tengjast vinaböndum
og vinna þær margar mikið saman
að ýmsum hliðarverkefnum.
Kátir Kanadabúar á Airwaves
Kraftur kanadísku tónlistaröld-
unnar virðist hvergi nærri vera að
minnka og sannar nýjasta skífa
Junior Boys það svo um munar.
Svo má einnig benda á að The
Arcade Fire mun senda frá sér
sína aðra breiðskífu seinna á
árinu. Fyrir okkur Íslendinga eru
það einnig mikil gleðitíðindi að á
komandi Airwaves-hátíð munu
fjórir af heitustu listamönnum
Kanada gleðja okkur með nær-
veru sinni en það eru Wolf Parade,
Patrick Watson, Islands og síðan
hin skemmtilega Metric. Því verð-
ur virkilega gaman að fá smá
slettu af kanadísku bylgjunnni
næstkomandi október. Hvenær
þessari stóru bylgju linnir verður
hins vegar látið liggja á milli hluta
en ef gæðin og sköpunargleðin
halda áfram að vera söm vona
væntanlega flestir að hún geri það
einfaldlega ekki.
Kanada í sviðsljósinu
TODMOBILE - ÓPERA
Þetta er fyrsti geisladiskurinn sem ég eignaðist. Bróðir
minn gaf mér hann í jólagjöf og hann hefur alltaf verið
í uppáhaldi hjá mér. Á þess-
um tíma átti ég reyndar ekki
geislaspilara svo ég þurfti að
hlusta á diskinn frammi.
UPPÁHALDSLÖG: Það er eitt
lag sem alltaf hefur verið
í miklu uppáhaldi en
ég get ómögulega
munað hvað það heitir. Þetta er rólegt lag
sem Eyþór og Andrea syngja saman og var
alls ekkert vinsælt, það var alla vega ekki
spilað mikið í útvarpi. Svo er annað sem
fólk ætti nú að þekkja, Stopp.
MICHAEL BUBLÉ - IT‘S TIME
Ég keypti mér báðar plöturnar með Michael
Bublé. Þær eru bókstaflega búnar að vera
í spilaranum hjá mér í allt sumar. Michael
Bublé er gömul sál að því er mér virðist því
hann er mestmegnis að taka Sinatra-lög og fleiri lög frá
því tímabili.
UPPÁHALDSLÖG: Það er
erfitt að velja á milli lag-
anna hans Michael
Bublé. En það er eitt
lag á seinni plötunni
sem hann á sjálfur.
Það heitir Home og
er alveg frábært.
AÐRAR GÓÐAR: Ég keypti mér diskinn með
You‘re Beautiful-söngvaranum James Blunt.
Þegar ég ætlaði að fara að hlusta á hann
komst ég að því að það var búið að eyðileggja
hann fyrir mér. Ég var hreinlega komin með
leið á öllum lögunum af því hann hefur
verið spilaður svo mikið. Þarna sést máttur
útvarpsstöðvanna vel. Ég varð allavega fyrir
miklum vonbrigðum með Blunt. Ætli það
sé ekki best að ég hvíli diskinn í svona tvö
ár og prófi að hlusta á hann þá.
FYRST OG SÍÐAST BIRGITTA HAUKDAL
Nú í vikunni kom í verslanir önnur plata frönsku söngkonunnar Charlot-
te Gainsbourg. Hún heitir 5:55 og er síðbúið framhald plötunnar Char-
lotte Forever sem kom út fyrir tuttugu árum.
Charlotte, sem er þekkt leikkona í Frakklandi, er dóttir Serge heitins
Gainsbourg og Jane Birkin. Serge var ein skærasta stjarna Frakka í tón-
list á síðustu öld og einn af merkustu popptónlistarmönnum sögunnar.
Ég öfunda hvern þann sem á eftir að uppgötva hans fjölmörgu meistara-
verk. Jane er bæði leikkona og söngkona. Þau fluttu saman „stunulagið“
alræmda Je t’aime ... moi non plus og þau eignuðust Charlotte.
Serge dáði dóttur sína. Hann
söng með henni lagið Lemon Incest
sem eins og fleira sem karlinn tók
sér fyrir hendur fór fyrir brjóstið á
mörgum og hann gerði um hana
kvikmynd í fullri lengd og með
henni plötuna Charlotte Forever
þegar hún var fimmtán ára.
Serge féll frá árið 1991 og Char-
lotte valdi leiklistina fram yfir tón-
listina. En nú er tónlistin farin að
kalla á hana og hennar fyrsta full-
orðinsplata komin út. Og það eru engir aukvisar sem vinna með henni.
Tónlistin er að mestu í höndum félaganna í Air, Nigel Godrich stjórnar
upptökum, Parísarbúinn Jarvis Cocker semur flesta textana og pabbi
Beck, David Campbell, sér um strengjaútsetningar.
Útkoman er eftir því. Þetta er alvöru plata, engin „leikkonu sem lang-
ar að verða poppstjörnu“-hörmung. Charlotte hefur mjúka og sæta rödd
og hvíslar stundum textana eins og móðir hennar. Tónlistin minnir oft
mikið á tónlist Serge og vísar jafnvel í hana í nokkrum tilfellum. Þetta
er líka mikil Air-plata. Svo mikil að það hefði eins mátt skrifa hana á
Charlotte Gainsbourg & Air. Það rennur upp fyrir manni hvað tónlistin
þeirra er undir miklum áhrifum frá Gainsbourg.
Það er greinilegt að Charlotte hefur tónlistina í sér eins og pabbi
hennar. Vonandi er þetta bara fyrsta platan af mörgum. Maður fær
aldrei nóg af Gainsbourg.
Aldrei nóg af Gainsbourg
WOLF PARADE Ein þeirra frábæru
kanadísku sveita sem slegið hafa
í gegn undanfarið. Wolf Parade
spilar á Airwaves í næsta mánuði.
Tónlistarmaðurinn Hermigervill,
sem heitir réttu nafni Sveinbjörn
Thorarensen, flytur á næstunni
til Amsterdam í Hollandi þar
sem hann hyggur á upptökunám.
Til að framfleyta sér með
náminu ætlar hann að þeyta skíf-
um á hinum ýmsu stöðum. Hermi-
gervill mun engu að síður spila á
Iceland Airwaves-hátíðinni í
næsta mánuði en fyrir utan þá
tónleika mun lítið sem ekkert
heyrast í honum hér á landi á
næstunni.
Hermigervill gaf út sína
fyrstu plötu, Lausnin, árið 2003.
Á síðasta ári kom út önnur plat-
an, Sleepwork, og fékk hún góðar
viðtökur gagnrýnenda rétt eins
og sú fyrri. - fb
Flytur til Amsterdam
HERMIGERVILL Tónlistarmaðurinn Hermigervill er á leiðinni til
Amsterdam.