Fréttablaðið - 15.09.2006, Qupperneq 70
15. september 2006 FÖSTUDAGUR38
Fræga fólkið lætur sig sjaldan vanta á tískuvikuna í New York enda er algjörlega nauð-
synlegt að það klæðist samkvæmt
nýjustu tísku. Að venju fær það
pláss í fremstu röð á sýningunum
ásamt blaðamönnum helstu tísku-
tímarita. Stjörnurnar punkta niður
hvað þeim finnst flott og panta það
svo fyrirfram hjá hönnuðum enda
er það stór plús fyrir fatamerki ef
fræga fólkið vill klæðast flíkum
hönnuðum af þeim.
Við skulum sjá
hverjir létu sig
ekki vanta í hóp
helstu tískuspek-
úlanta heimsins
og nutu þess að
hafa puttana á púlsi
sumarsins 2007.
Ég sagði það áður og ég segi það enn að ég er mjög
ósátt með háttarlag karlmanna, já og kvenna hér á
landi. Þetta er einfalt; hvernig stendur á því að hér ríkir
ekki deitmenning? Ég er svo óendanlega hlessa á því
að enginn hafi sig upp í það að bjóða konum á deit. Er
þetta svona hrikalega hræðilegt, erum við svona fárán-
lega lokuð og köld eða hreint út sagt skræfur?
Víðast hvar í heiminum er það til siðs að bjóða
konu á deit. Á síðustu áratugum hafa konur í auknum
mæli mannað sig upp í það að bjóða karlmönnum
út. Það er sennilega partur af jafnréttisáróðri þeirra. En
hvað sem öðru líður virðumst við ekki vera hæf til að
taka þennan sið upp hjá okkur. Þetta er eiginlega hálf
fyndið þar sem íslenskir karlmenn eru þekktir fyrir að
vera sterkbyggðir, þolmiklir og að öllu leyti miklir vík-
ingar. En þegar kemur að því að spyrja einnar lítillar
spurningar sem væri eitthvað á þessa leið: „Fyrirgefðu,
en mætti ég bjóða þér út að borða eða í kaffi eitthvert
kvöldið“, þá „att í einu veðða þeið baða litli sgðágað og
hlauba baða heim“. Mér finnst þetta bara ferlega fynd-
ið og eiginlega alveg úr karakter við það sem maður á
að þekkja frá þessum annars miklu heljarmennum.
Samhengið er hreinlega ekkert.
Ég var hins vegar svo lánsöm um daginn að fá
boð á stefnumót! Einn af afar fáum karlmönnum
hér á landi sem ég var svo heppin að hitta á. Ég
held að hann hafi varið miklum tíma í Ameríku og
kunni því nokkuð vel til verka í þessum bransa.
Hann kom mér allavega á óvart með því að
spyrja mig hvort hann mætti bjóða mér út.
Ég varð náttúrlega eins og kleina og vissi
ekki hvernig ég átti að haga mér eða snúa
og gat eiginlega ekki svarað. Svo áttaði ég
mig á því hvað ég var að verða hallæris-
leg og ákvað að svara honum hreint út. Ég
sagði barasta „jább, ég er til í það!“
Svo auðvitað þegar fór að líða að kvöldinu tók ég
upp á því að sannfæra sjálfa mig að þetta væri kannski
pínu kjánalegt og var komin með símann í hend-
ina nokkrum sinnum en hætti þó alltaf við... að
hætta við. Ég vildi einhvern veginn ekki vera
eins og allir hinir og beila á deiti. Einn vinur
minn sagði mér það að hann hefði þrisvar
verið settur á deit með stelpu, tvisvar sinnum
hætti hún sjálf við og einu sinni guggnaði hann
sjálfur. Í það skiptið hafði hann aldrei séð stúlk-
una. Maður getur svo sem skilið það að vera feim-
inn við hið óþekkta. En einhvern veginn virðast
allflestir Íslendingar vera skíthræddir við að fara
á deit. Og á meðan enginn gerir neitt í því og
reynir að halda einhverjum deitum gangandi
þá gerist ekki neitt. Þess vegna verðum við að
leggjast á eitt öllsömul, sem erum ein þarna
úti, og deita!
REYKJAVÍKURNÆTUR HÖRPU PÉTURSDÓTTUR FINNST AÐ ÍSLENSKIR KARLMENN MÆTTU VERA ÁKVEÐNARI
Vér mótmælum öll!
Bandaríska söngkonan Whitney
Houston hefur sótt um skilnað við
eiginmann sinn til fjórtán ára,
söngvarann Bobby Brown.
Samband þeirra hjóna hefur
alla tíð þótt ansi stormasamt auk
þess sem þau hafa bæði átt við
vímuefnavandamál að stríða. Þau
eiga saman 13 ára dóttur, Bobbi
Kristina.
Whitney giftist Bobby Brown,
sem er 37 ára, árið 1992. Hann
varð frægur með hljómsveitinni
New Edition og árið 1988 gaf hann
síðan út sólóplötuna Don´t Be
Cruel, sem naut mikilla vinsælda.
Whitney, sem er 43 ára, hefur
unnið sex Grammy-verðlaun á
ferli sínum og átt fjölda topplaga á
vinsældalistum, þar á meðal
Saving All My Love For You. Fer-
ill hennar hefur þó dalað mikið
undanfarin ár, sérstaklega vegna
vímuefnanna. Hefur hún farið
nokkrum sinnum í meðferð, en
árið 2002 viðurkenndi hún í sjón-
varpsviðtali að hafa misnotað
vímuefni. Sagðist hún jafnframt
hafa komist í gegnum vandræðin
með því að biðja bænirnar. Síðasta
plata Whitney kom út árið 2002 og
hefur hún haft afar hægt um sig
síðan þá.
Whitney sækir um skilnað
Á GÓÐRI STUNDU Whitney Houston og Bobby Brown eru að skilja eftir fjórtán ára
hjónaband.
Með puttana á
púlsinum
LEIKARAPARIÐ Ashton Kutcher og Demi
Moore voru sæt saman á sýningu Nar-
ciso Rodriguez. Ætli Kutcher sé að skrifa
niður óskalista fyrir unnustu sína.
HARÐORÐUR RITSTJÓRI Anna Wintour,
ritstjóri ameríska Vogue, er ávallt í
fremstu röð á sýningum og hér er hún á
sýningu Narciso Rodriguez ásamt dóttur
sinni, Bee Schaffer.
TÍSKULEGAR SYSTUR Að sjálfsögðu voru Hilton-systurnar mættar á tískuvikuna þar
sem partíin eru fjöldamörg. Hér eru þær mættar í fremstu röð á sýningu Luca Luca.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
JANET JACKSSON Lét lítið fyrir sér fara á
sýningu Bill Blass en fylgdist þó grannt
með um leið og hún leitaði að fallegum
fatnaði.
ÍSLANDS-
VINUR Sean
Lennon
var hress á
leið sinni á
sýningu í
fötum frá
Imitation of
Christ.
��������������������������������������� ������������� ������������
���������� ��������
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
�����������������������������
���������� ����
��������������������
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
� ���������������������������������
�����������������������
����������������������������������������
���������������������������� �����������
��������������������������������������
��������������������
�������������������������
������������������������������������������������������� ���
�������������������� �������������������������������������������
���������������������������������������� �������� ���������
���������� ������������� ��������������������������
AFSLÁTTUR
35%
��
��
��
��
�
��
�
��
�
�
���
CARMEN ELECTRA Er hér ásamt vinkonu
sinni Thaliu og var ánægð með sýningu
Luca Luca á fatnaði fyrir sumarið 2007.