Fréttablaðið - 20.09.2006, Síða 16

Fréttablaðið - 20.09.2006, Síða 16
 20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Kántrýbær er nú bara búinn vera lok- aður í mánuð. Það fór að verða svo lítið að gera hjá okkur þegar sumri tók að halla að það tók því ekki að hafa þetta opið. Bara fáeinar hræður sem læddust inn á dag. Ég veit því ekkert hvort hann verður opinn í vetur, það verður bara að koma í ljós,“ segir Hallbjörn Hjartarson, kántrýkóng- ur Íslands, þungmáll. Hann segir rólegheitin þó nota- leg, nóg sé alltaf að gera hjá honum við útvarpsstöðina og því ekki yfir neinu að kvarta. „Já, lífið hérna á Skaga- strönd er sæmilegt og hér gengur allt sinn vanagang. Nú er smalamennskan búin að vera í fullum gangi og ég hefði nú getað tekið þátt í henni. Það gerði ég þó ekki enda orð- inn gamall og latur,“ segir Hall- björn. Spurður hvort hann hafi farið í berjamó í sumar þver- tekur hann fyrir hafa nokk- uð gaman af því. „Í berjamó hef ég aldrei farið og fer varla að taka upp á því núna á gamals aldri. Ég held bara áfram að spila kántrý í hæsta gæðaflokki og bíð spenntur eftir næsta pósti með tónlist frá Bandaríkjunum.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: HALLBJÖRN HJARTARSON KÚREKI NORÐURSINS Rólegheitin alltaf notaleg Þetta er heimsfrétt „Mér finnst þetta bara alveg frábær- ar fréttir,“ segir Andrea Jónsdóttir, tónlistarfræðingur og útvarpskona á Rás 2, um þær óvæntu fréttir að Sykurmol- arnir ætli að koma saman aftur og spila á einum tónleikum í Laugardalshöll 17. nóvem- ber í tilefni af 20 ára afmæli fyrstu plötunnar þeirra. „Ég var búin að liggja í flensu og þessar fréttir hreinlega lyftu mér upp úr veikindunum. Þetta er tónlistarfrétt árins og hreinlega heimsfrétt.“ Andrea var með þeim fyrstu sem kveiktu á Sykurmolunum. „Ég mætti á útgáfutónleika fyrstu plötunnar í Duus-húsi árið 1986 og það voru bara örfáar hræður þarna. Ég var með næturvakt á Rás 2 á þessum tíma og spilaði lagið Ammæli mikið. Ég man að Illugi Jökulsson hringdi oft og bað um lagið á B-hliðinni, Köttur. Það var uppáhaldslagið hans.“ Andrea ætlar að mæta í Höllina. „Það verður húsfyllir. Fólk er alvarlega úti að aka ef það missir af þessu.“ SJÓNARHÓLL ENDURKOMA SYKURMOLANNA ANDREA JÓNSDÓTTIR TÓNLISTARFRÆÐINGUR Undir hvað? „Við teljum að vaxtartæki- færi félagsins liggi víða og munum við halda áfram að efla góða undirliggjandi starfsemi félagsins.“ RÓBERT WESSMAN, FORSTJÓRI ACTAVIS, UM VIÐSKIPTI Í FRÉTTA- BLAÐINU. Er ekki kominn tími til að hætta? „...fyrir utan mína nánustu fjölskyldu er það ekkert sem hrærir eins strengi væntum- þykju í brjósti mínu og þessi hreyfing...“ ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON ÞING- MAÐUR UM SAMFYLKINGUNA Í MORGUNBLAÐINU. ■ Sykurmolarnir hafa nú boðað kombakk 17. nóvember. Molarnir spiluðu síðast fyrir fjórtán árum í Tunglinu en lognuðust svo út af. Skömmu síðar varð Björk stærsta stjarna Íslandssögunnar. Jackson Five lognaðist út af á fyrri hluta níunda áratugarins en kom saman aftur árið 1989 og gerði síðustu plöt- una sína. Hún fékk litla athygli enda skyggðu ofurvinsældir Michaels á allt. Eins og dæmin sanna hætta hljóm- sveitir aldrei því alltaf má kýla á kommbakk. Þó má telja vonlítið að Bítlarnir og ABBA komi saman aftur, en Dátar eru ólíklegasta íslenska sveitin til að eiga kombakk, enda aðeins einn meðlimur á lífi. SAMANBURÐUR SYKURMOLARNIR OG JACKSON FIVE Lundinn og Laxness vinsælir hjá túristum Bræðurnir Gísli og Úlfur Úlfarssynir festu nýlega kaup á gömlu húsi í miðbæ Ísafjarðar sem gengur undir nafninu Hæsti- kaupstaður. Húsið hefur um tíðina hýst alls konar starfs- semi, síðast vídeóleigu og líkkistusmíði. Þegar verið var að hreinsa til á háaloft- inu fundust fjórar æva- gamlar flöskur milli þilja, sem Úlfur telur líklegast að hafi endað þar fyrir slysni. „Merkilegasta flaskan er hindberja límonaði frá verslun Leonhard Tang,“ segir hann. „Tang var danskur og lét reisa þetta hús árið 1855 sem verslun. Þessi flaska gæti því verið hátt í 150 ára gömul og miðinn er ein- staklega skýr ennþá. Ég lyktaði upp úr flöskunni en fann nú auð- vitað enga lykt.“ Hinar flöskurnar sem fundust voru Carlsberg-flaska með hakakrossi, en Úlfur segir hana ekki meira en kannski sextíu ára gamla. Hinar flöskurnar eru óþekkjanlegar, en Úlfur segir líklegast að þær séu líka frá Carlsberg. „Hug- mynd okkar bræðranna er að koma húsinu í upp- runalegt ástand og gera svo eitthvað skemmtilegt í því. Ætli það verði ekki einhvers konar veitinga- rekstur. Það fer eftir því hvað við verðum kaldir hvenær af þessu verður, en það er ljóst að flöskurnar verða það fyrsta sem fer upp á vegg þegar við byrjum að skreyta.“ STÓRMERKILEGUR FLÖSKUFUNDUR Á ÍSAFIRÐI: Verða það fyrsta sem fer upp á vegg FLÖSKURNAR GÓÐU Ótrúlega heillegar miðað við aldur. FRÉTTABLAÐIÐ/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON Nú er ferðamannastraum- urinn farinn að minnka en um 170 þúsund erlendir ferðamenn lögðu leið sína til landsins í sumar. Sam- kvæmt könnunum eyða þeir hér um 10-15 prósentum í verslun. Hvað skyldu nú þessir gjaldeyrisskapandi farfuglar hafa keypt og tekið með sér heim frá land- inu bláa? Rammagerðin er rótgrónasta minjagripaverslunin og Bryndís Sigurðardóttir, verslunarstjóri í Hafnarstræti, segir verslun hafa verið mikla í sumar. „Við finnum ekki fyrir neinni minnkun þótt túristabúðir séu opnaðar nánast á hverju götuhorni yfir sumarið. Túristarnir eru mest í smávöru en minna í stærri hlutum.“ Bryndís segir gömlu góðu lopapeysuna eiga undir högg að sækja. „Nýja útgáfan af lopapeysunni sem er minni og með rennilás selst miklu meira en þessi gamla góða.“ Bryndís heldur áfram: „Allt með lundanum og íslensku rúna- stöfunum er mjög vinsælt, t.d. bolir og hálsmen. Vörumerkið Lost in Iceland er líka orðið mjög vin- sælt. Það byrjaði sem ljósmynda- bók fyrir nokkrum árum en nú seljast bolir, húfur og hettupeysur með áletruninni „Lost in Iceland“ eins og heitar lummur.“ Ásdís Benediktsdóttir hjá bóka- búð Máls og menningar á Lauga- vegi tekur undir þetta. Hún er ekki í vafa um hvaða bók túristarnir kaupa mest: „Það er ljósmynda- bókin Lost in Iceland eftir Sigur- geir Sigurjónsson.“ segir hún. „Ég held mér sé óhætt að segja að frá því hún kom út hafi hún verið vin- sælasta túristabókin.“ Ásdís segir ferðamannastraum- inn alltaf vera að aukast. „Þetta er líka að lengjast fram á haustið. Ég er að fara að taka túristavörurnar niður núna, en áður var ég að því í ágúst.“ Ásdís segir ýmsar aðrar bækur njóta hylli. „Margir sækja í söguarfinn okkar og Völuspá og Íslendingasögurnar eru vinsælar. Þó eru Hávamál alltaf vinsælust. Hávamál má fá á fjölmörgum tungumálum, rússnesku og arabísku meira að segja. Ýmsar barnabækur á ensku eru líka vin- sælar og matreiðslubækur Nönnu Rögnvaldsdóttur. Vinsælasta skáldsagan er svo Sjálf- stætt fólk á ensku – Independent People – en Arnaldur kemur á hæla Laxness. Hann er til bæði á ensku og þýsku.“ Plötubúð 12 Tóna á Skólavörðu- stíg er vinsæll við- komustaður túr- ista. „Við erum að sjá ótrúlega aukningu í sölu til ferðamanna og þegar mest lætur yfir sumarið fáum við hér rúmlega hundrað túrista á dag,“ segir Einar Kristjánsson innanbúðarmaður. „Það er mikið hlustað og skoðað og aðallega eru okkar gestir að tékka á nútímatón- list. Söluhæsti diskurinn í sumar var ný safnplata Tilraunaeldhúss- ins en eini hefðbundni túristadisk- urinn sem selst að einhverju ráði hjá okkur heitir The Soul of the Great Viking.“ Í Skífunni á Laugavegi kaupa túristar einnig mikið. „Við seljum langmest af plötum Sigur Rósar og Emilíönu Torrini, og svo er Gling Gló mjög vinsæl,“ segir Davíð Sig- urðsson, starfsmaður Skífunnar. Gling Gló með Björk og Tríói Guð- mundar Ingólfssonar kom út fyrir sextán árum og hefur selst á Íslandi í um 40 þúsundum eintaka. Þar með er Gling Gló líklega sölu- hæsta íslenska platan og er stór hluti sölunnar til ferðamanna. Í verslun 66° N í Bankastræti fengust þau svör að útlendingarnir væru vitlausir í íslenska flísið og allt sem er merkt 66° N. „Þeir kaupa allt sem við erum með,“ segir Katrín Kristjánsdóttir, „en ef ég ætti að giska á vinsælustu vöruna myndi ég segja að það væru Wind- stopper-peysurnar sem við erum með.“ Hjá Global Refund sem end- urgreiðir útlendingum virðisauka- skatt fengust þær upplýsingar að stærstur hluti endurgreiðslna væri vegna kvenfatnaðar og skartgripa, bæði íslenskrar framleiðslu og erlendrar merkjavöru. Yfir sumarið verður ekki þver- fótað fyrir ferðamönnum að mynda Hallgrímskirkjuturn. Margir þeirra koma við í Krambúðinni efst á Skóla- vörðustíg. „Það er vatn og mjólkur- vörur eins og skyr og jógúrt sem túristar kaupa mest,“ segir Gunnar Ársæll Ársælsson, verslunarstjóri. „Íslenskt sælgæti er líka vinsælt, lakkrísinn líklega vinsælastur. Jap- anarnir eru svo mikið í fiskmetinu, búðin tæmist nánast af harð- fiski, laxi og kavíar þegar við fáum Jap- ana hingað inn.“ gunnarh@fretta- bladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.