Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 23

Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 23
Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Heimild: Almanak Háskólans GÓÐAN DAG! Í dag er miðvikudagurinn 20. september, 263. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 7.04 13.21 19.37 Akureyri 6.48 13.06 19.22 Árleg Land Rover jeppaferð á vegum B & L verður farin laugar- daginn 23. september næstkom- andi. Dagurinn hefst kl. 08.30 í sýningarsal B&L á umræðum um ferðatilhögun og öryggismál. Er ferðinni heitið til Brautarholts í Skeiðahreppi um Hrunamanna- afrétt. Dagskrá lýkur kl. 17.00. Sjá nánar á www.bl.is Í vefverslun Útiveru er nú fáanlegur fjöldi nýrra bóka sem henta vel í ferðalög og útiveru eða eru góður undir- búningur að þeim, þ.á.m. bókin „Bicycling with children“ þar sem sagt er frá því hvernig best sé að hjóla með börnum. Allar nánari upplýsingar er finna inni á vefsíðu Útiveru www.utivera.is Stjórnmálafræðiskor HÍ stendur fyrir sýningu á kvikmyndinni „Divorce Iranian Style“ (1998), þar sem fjallað er um konur sem leita lögskilnaðar við eiginmenn sína. Myndin er sýnd kl. 20.00 í kvöld í Öskju. Sjá www.stjorn- malogstjornsysla.is ALLT HITT [BÍLAR FERÐIR NÁM] Ingveldur Ýr Jónsdóttir hefur kennt fólki að nota raddböndin í um tuttugu ár. Hún segir að allir geti lært að syngja. Um þessar mundir er hægt að skrá sig á söngnámskeið hjá Ingveldi. „Ég kenni grunnatriði í raddbeitingu, en sú kennsla felur í sér öndunaræfingar, rétta líkamsstöðu, raddæfingar og létt sönglög,“ útskýrir Ingveldur Ýr þegar blaðamaður spyr hana hvað gerist á söngnámskeiðun- um. „Í raun er hægt að læra öll undirstöðuat- riði söngs í þessum tímum og að auki öðlast nemendur innsýn í tónlist með því að fá kennslu í tónheyrn og nótnalestri.“ Ingveldur telur að allir geti lært að syngja. „Það verða kannski ekki allir atvinnusöngvarar en hver sem er getur lært að beita röddinni þannig að öndun og stuðningur séu með inni í myndinni. Fólk getur lært að stilla hljóðfærið sitt, röddina, á réttan hátt og haldið þannig lagi. Sumir eru reyndar ólagvissari en aðrir af því það vantar samhæfingu milli eyra og radd- banda, en af því að „tóneyrað“ er í raun bara ákveðin heilastöð þá hefur þetta ekkert með röddina sjálfa að gera. Fólk heldur stundum að það sé laglaust vegna þess að það hefur ekki tök á röddinni, en um leið og það nær tökum á henni þá fylgir næmni tóneyrans eftir.“ Innt eftir því hvernig einstaklingar það séu sem sækist eftir því að læra að syngja hjá henni segir Ingveldur það vera fólk á öllum aldri. „Alveg frá átján ára og upp í sextugt. Bæði konur og karlar; allur þjóðfé- lagsstiginn eins og hann leggur sig. Fólk hefur gríðarlega mikinn áhuga á þessu. Í því samhengi þætti mér gaman að minna á að 21. september verður kennslufyrirlestur hjá Mími þar sem farið er yfir öll grunn- atriði söngs og fólk getur í kjölfarið tekið æfingar með sér heim,“ segir Ingveldur. Til að skrá sig á námskeið hjá Ingveldi má annaðhvort fara á heimasíðu hennar www.songstudio.ehf.is og skrá sig þar eða hafa samband við Mími símenntun. Allir geta haldið lagi „Af því að „tóneyrað“ er í raun bara ákveðin heilastöð þá hefur þetta ekkert með röddina sjálfa að gera,“ segir Ingveldur Ýr söngkona og söngkennari. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HREINRÆKTAÐUR SPORTBÍLL Reynsluakstur Porsche 911 Carrera 4S BÍLAR 2 VEGIR LIGGJA TIL ALLRA ÁTTA Friedrichshafen stend- ur við vatnið Bodensee í Suður-Þýskalandi FERÐIR 5 HULUNNI SVIPT AF C-MÉTISSE UM NÆSTU HELGI. Citroën sviptir hulunni af afar spennandi hugmyndabíl, sem kallaður er C-Métisse, á alþjóðlegu bílasýningunni í París sem hefst nú í lok mán- aðarins. Bíllinn ber hönnuðum sínum vitni um mikla ástríðu því við hönnun hans var lagt upp með það að hann markaði ný spor þegar akstursánægja væri annars vegar. Tæknileg útfærsla C-Métissé er enn athyglisverðari en nýstárlegar hurðir, því bíllinn er búinn tveimur samstarfsvélum, dísil- og rafmagnsvél, og því hannaður til þess að taka fullt tillit til umhverfis síns. Útfærsla þess búnaðar er einna athyglisverðust vegna þess að dísilvélin er tengd framhjólum hans en rafmótor- inn hins vegar afturhjólunum. Að grunni til er C-Métissé byggður á sömu hugmynd og C4 sem kynntur var fyrr á árinu en þessi frumlega útfærsla eykur mjög á aksturseiginleika C-Métisse og stöðugleika í akstri. Tækniundur frá Citroën C-Métisse er ekki bara sérstakur í útliti heldur er vélbúnaður hans byltingakenndur líka.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.