Fréttablaðið - 20.09.2006, Side 24
[ ]Misskilinn gulur Munið að gult ljós við gatnamót þýðir ekki að gefa eigi í heldur að hægja eigi á ferðinni. Stöndum saman og gerum umferðina öruggari.
Reynsluakstur Porsche 911
Carrera 4S með aflaukningar-
pakka.
Ímyndaðu þér að einn góðan veð-
urdag komist þú að því að þú hafir
aðeins notað annað lungað alla
þína ævi. Skyndilega byrjar svo
hitt lungað að starfa og í fyrsta
skipti getur þú dregið andann
fyrir alvöru.
Þetta er kannski ekki góð sam-
líking en gefur smá hugmynd um
muninn á því að keyra Porsche 911
Carrera 4S og venjulegan fólksbíl.
Samband ökumannsins við bílinn er
mjög sterkt, maður skynjar hann
og veginn með næstum öllum lík-
amanum. Þrátt fyrir að vera hlað-
inn búnaði af nýjustu sort verður
hann fyrst og fremst framlenging á
manni sjálfum. Og þá fyrst verður
nú gaman að keyra bíl.
Ekki skemmir að fyrir aftan
aftursætin, og reyndar afturöxl-
ana líka, liggur 381 hestafls mótor
sem öskrar eins og hjörð villidýra
um leið og þú treður bensíngjöf-
inni niður. Kannski hávaði í eyrum
sumra, en ljúfasta tónlist í eyrum
allra sem kunna að njóta þeirrar
óhefluðu ánægju sem það er að
keyra alvöru sportbíl.
Í akstri hefur bíllinn breitt
notkunarsvið og þó að allar tölur
sýni að hægt sé að koma honum í
300 km hraða er það alls ekki nauð-
synlegt til að njóta þess að keyra
hann. Maður er mjög fljótur að fá
tilfinningu fyrir bílnum og hann
er léttari og þægilegri í akstri en
margir vinsælir fólksbílar,
kannski ekki síst fyrir það hvað
vélin svarar vel.
Gírskiptingin er sérlega ljúf og
áreynslulaus. Sama má segja um
kúplingu og bensíngjöf, svo að
bíllinn er mjög þægilegur í innan-
bæjarakstri, öfugt við suma sport-
bíla sem eru stífir og þreytandi að
keyra lengi í þéttri og tafsamri
umferð.
Bíllinn er búinn fjórhjóladrifi
sem tryggir honum gott upptak,
aðeins 4,6 sekúndur úr kyrrstöðu í
hundrað. Að viðbættri stillanlegri
fjöðrun, breiðum dekkjum og
kraftmiklum og stórum keramik-
bremsum gerir það bílinn líka
gríðarlega skemmtilegan í akstri.
Á hlykkjóttum vegum heldur hann
hraða í gegnum hverja beygjuna á
fætur annarri án þess svo mikið
sem að halla, og í þeim kröppustu
er ekkert mál að bremsa eldsnöggt
niður, taka beygjuna og skjótast
aftur upp í leyfðan hámarkshraða
á svipstundu.
Þó að um hreinræktaðan sport-
bíl sé að ræða ber innréttingin
þess vott að Porsche er líka lúxus-
bíll. Leður og burstað ál hvert sem
litið er, gervihnattaleiðsögukerfi,
mjög vandað hljóðkerfi og fallegt
mælaborð sem er að hluta til staf-
rænt. Skriðstillir, innbyggður sími
og rafmagn í sætum, rúðum, spegl-
um og topplúgu eru meðal annarra
hluta sem hægt væri að telja upp.
Porshe hefur að þessu leytinu
breyst í gegnum árin, en áður fyrr
voru bílarnir frekar hráir að
innan, enda fyrst og fremst byggð-
ir til að njóta þess að keyra þá.
Eitt sem hefur ekki breyst er
staðsetning vélarinnar, sem gerði
það reyndar að verkum að í árdaga
911, fyrir fjörutíu árum, var frek-
ar erfitt að stjórna bílnum. Aftur-
endinn átti það til að vilja fara
eitthvert annað en framendinn.
Þessu hefur fyrir löngu síðan
verið kippt í lag með háþróaðri
fjöðrun og vandlegri þyngdar-
dreifingu. Í dag ræður nánast
hvaða ökumaður sem er við að
keyra bílinn þannig að hans sé
notið, enda af mörgum talinn best
heppnaði og vandaðasti 911-bíll-
inn til þessa.
En þarf maður virkilega bíl
sem er 4,6 sekúndur í hundrað,
ræður við vinkilbeygju á mikilli
ferð og kæmist í 300 ef maður
færi með hann á kappaksturs-
braut? Nei nei, ekkert frekar en
maður þarf bæði lungun.
Hreinræktaður sportbíll
Mælaborðið er leðurklætt, með gervi-
hnattaleiðsöguskjá, innbyggðum síma
og mörgu fleiru.
Í Porsche þýða gular bremsudælur að
um keramikbremsur sé að ræða.
Með aflaukingarpakkanum verður bíll-
inn 381 hestafl í stað 355 áður.
Útlit bílsins fylgir hefðbundnum línum 911, ef frá er talinn Aerokit vindskeiðapakkinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
PORSCHE 911 CARRERA S4
(MEÐ AFLAUKNINGARPAKKA)
Vél: 3,8 lítra bensín
381 hestafl / 415 Nm
Uppg. eyðsla í bl. akstri: 12,5 l/100
km
Hámarkshraði: 300 km/klst
0-100 km/kls: 4,6 sek.
Farangursrými: 105 lítrar
Þyngd: 1.550 kg
6 gíra „short shift“ beinskipting
PLÚS:
Unaðslegir aksturseiginleikar
Góð hröðun og bremsur
Hljóðið í vélinni
MÍNUS:
Afturætin aðeins fyrir lítil börn
Umboð: Bílabúð Benna
REYNSLUAKSTUR
Man 26.430. fyrst skráður Desember 2005. Tveggjadrifa dráttarbíll á lofti að aftan
með sturtudælu. Nádrif - XL Hús með einni koju – Sólskyggni - Kælibox
Símkerfi - Útvarp og geislaspilari - Rafm. í rúðum og speglum - loftkæling.
Ekinn aðeins 48,000 km. Verð 7.250,000 + vsk. skráður og skoðaður.
Nýir 2007. Ford 2,2 Lt 130 hestöfl - Commandrail diesel, ABS- EBD Aksturstalva
– Útihitamælir - Leður stýri - Armpúðar á sætum. Loftkæling-2 öryggispúðar
– Útvarp - Geislaspilari með fjarstýringu. Rafm. í rúðum - Gírskipting í mælaborði
- Þjófavörn með fjarstýringu. Lengd 6,37 - Svefnpláss fyrir fjóra - Tvíbreitt rúm aftur
í. Þriggja punkta öryggisbelti fyrir fjóra - Stór dekk 215/75 R16”.
Verð 5,200,000 kr. með vsk. skráður og skoðaður. Til sölu fyrir viðskiptavin.
Bílexport á Íslandi ehf.
Bóas sími 0049-175-271-1783 • Eðvald sími 896-6456
BluCamp Sky 20
Mercedes Bens 316CDI árg. 2005. Ekinn 6000 km. 156 hestafl a Commandrail Td.
Stórt hjónarúm aftur í - Stór geymsla m. aðgengi að utan, L eldhús – Loftkæling
Geislaspilari-Dvd + tvö sjónvörp m/fl atskjá. og m.m.fl eira. Sjón er sögu ríkari.
Verð 6.200.000 skráður og skoðaður.
Mercedes Benz 316CDI
MAN 26.430
Höfum til afhendingar strax
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði
Japan/U.S.A.
STÝRISENDAR,
SPINDILKÚLUR
OG FÓÐRINGAR
í jeppa í miklu úrvali
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000