Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.09.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 23.09.2006, Qupperneq 4
4 23. september 2006 LAUGARDAGUR GENGIÐ 22.9.2006 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 124,9934 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 70,76 71,1 134,66 135,32 90,66 91,16 12,149 12,221 10,876 10,94 9,779 9,837 0,6074 0,611 105,19 105,81 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR LÖGGÆSLA Ef upplýsingar sem lágu fyrir hjá öryggisdeildum hinna ýmsu landa þegar hryðjuverkin í Bandaríkjunum, Balí, London og Madríd voru framin hefðu skilað sér í miðlægan gagnagrunn hefði verið hægt að koma í veg fyrir þau. Þetta kemur fram í áður óbirtri skýrslu sem Arnar Jensson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá embætti ríkislög- reglustjóra, lauk nýverið við, en hún fjallaði um Öryggisþjónustu ríkisins, upplýsingagreiningu og öryggismat. Skýrsluna vann Arnar fyrir dóms- málaráðuneyt- ið og Ríkislög- reglustjóra, en hún er jafn- framt loka- verkefni hans í meistaranámi við Háskóla Íslands. Arnar við- aði að sér ýmsu efni við vinnslu verkefnisins og kynnti sér meðal annars innra starf öryggis- og greiningardeilda Europol og öryggislögreglunnar í Danmörku, svo og stefnu Evrópusambandsins gegn hryðjuverkum. Arnar bendir á að mörg dæmi hafi legið fyrir um togstreitu, samkeppni og valdabaráttu innan löggæslu- og öryggisþjónustu- sviðs. Meðal annars vegna þess hafi verið gerðar verulegar breyt- ingar á greiningar- og matsaðferð- um sumra öryggisþjónustustofn- ana í Evrópu og stofnaðar sérstakar miðlægar stofnanir sem tóku á móti, greindu og mátu upp- lýsingar frá öllum sem starfa á sviði öryggis- mála til þess að ná sem heild- stæðastri mynd af þeim ógnum sem steðjuðu að tilteknu landi á hverjum tíma. „Ytri ógnir sem steðja að á Vesturlöndum hafa tekið á sig nýja mynd,“ segir hann enn frem- ur. „Nú telja flest Vesturlönd að hryðjuverk séu sú ógn sem mest hætta stafar af. Markviss, öflug og vönduð upplýsingagreining á vegum öryggisþjónustustofnana sé lykillinn að vörnum gegn þeirri ógn.“ Þá segir Arnar „afar mikil- vægt að tryggja að slík starfsemi vinni ekki gegn hagsmunum almennings eða verði verkfæri í höndum ráðamanna.“ Hvað varðar stöðu mála hér á landi segir Arnar að vöntun á lagaákvæðum og skráðum réttar- heimildum varðandi öryggismála- verkefni hafi verið mjög til tra- fala. Það hafi einnig skapað réttaróvissu bæði gagnvart þeim viðfangsefnum sem öryggismála- svið hjá Ríkislögreglustjóra hafi þurft að sinna og starfsfólki þar. Arnar metur það svo að starfs- menn við öryggis- og greiningar- deild sem stofnuð yrði hjá emb- ætti Ríkislögreglustjórans hér á landi þyrftu að vera í það minnsta tólf. Þar af væru fimm lögreglu- menn og fimm sérfræðingar á til- teknum sviðum. jss@frettabladid.is ARNAR JENSSON HRYÐJUVERKIN Í MADRÍD Eftir á að hyggja sjá menn nú að koma hefði mátt í veg fyrir hryðjuverkin í Bandaríkjunum og Evrópulöndum, hefðu allar upplýsingar sem fyrir lágu borist greiðlega milli öryggisþjónusta. Upplýsingaflæði milli landa hefði hindrað hryðjuverk Hefðu upplýsingar sem lágu fyrir hjá ýmsum öryggisdeildum skilað sér í miðlægan gagnagrunn hefði að líkindum verið hægt að hindra hryðjuverk sem framin voru á síðustu árum í Bandaríkjunum og Evrópu. LÖGGÆSLA Samæfing yfirstjórna og sérsveita lögreglu á Norður- löndunum fór fram fyrr í vikunni. Æfingin var haldin í ráð- stefnumiðstöð danska Ríkislög- reglustjórans. Var látið reyna á samskipti stjórnstöðva ríkislög- reglustjóraembættanna til þess að æfa samvinnu og samhæfingu við möguleg hryðjuverkatilfelli á Norðurlöndunum. Öll Norðurlöndin tóku þátt og þátttakendur þurftu að glíma við margvísleg hryðjuverkatilfelli sem mögulega gætu komið upp. Markmiðið var að styrkja sam- vinnu Norðurlandanna á þessu sviði með því að samæfa hryðju- verkaviðbúnað landanna. - jss Norðurlöndin: Æfing gegn hryðjuverkum Nú telja flest Vesturlönd að hryðjuverk sé sú ógn sem mest hætta stafar af. ARNAR JENSSON AÐSTOÐARYFIRLÖGREGLUÞJÓNN VIÐSKIPTI Skífan þarf að greiða 65 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir að hafa misnotað markaðs- ráðandi stöðu sína. Áfrýjunar- nefnd staðfesti í gær fyrri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þar að lútandi. Í ákvörðun Samkeppniseftir- litsins frá 16. júní var Skífan (sem nú heitir Dagur Group) fundin sek um að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið þannig gegn bannákvæð- um samkeppnislaga. „Þetta gerði Skífan með gerð ólögmætra samninga við Hagkaup um sölu á hljómdiskum og tölvuleikjum, annars vegar á árinu 2003 og hins vegar á árinu 2004,“ segir Sam- keppniseftirlitið, en Hagkaup skuldbundu sig til að kaupa í heildsölu tiltekið hlutfall af disk- um og leikjum, eingöngu af Skíf- unni. „Með samningunum voru keppinautar Skífunnar í heild- sölu á hinum tilgreindu vörum nánast útilokaðir frá viðskiptum við Hagkaup,“ segir Samkeppnis- eftirlitið og kveður Skífuna með þessu hafa ítrekað brot sitt sem fjallað hafi verið um í ákvörðun samkeppnisráðs árið 2001 og í hæstaréttardómi árið 2004. Dagur Group skaut málinu til áfrýjunarnefndar, sem telur að brot Skífunnar hafi verið bæði augljós og alvarleg og að for- svarsmönnum fyrirtækisins hafi mátt vera ljóst að að umræddir samningar færu gegn samkeppnis- lögum. - óká Í VERSLUN HAGKAUPA Samningur sem Skífan gerði við Hagkaup árin 2003 og 2004 braut í bága við samkeppnislög. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir úrskurð Samkeppniseftirlitsins: Skífan sektuð um 65 milljónir ��������� ������� www.minnsirkus.is/sirkustv ��� �� UNGVERJALAND, AP Þúsundir Ung- verja söfnuðust saman til að mót- mæla „lygahneykslinu“ í Búda- pest í gærkvöldi, fimmta kvöldið í röð. Hópurinn var heldur fámenn- ari og rólegri en kvöldið áður. Talsmenn stærsta stjórnarand- stöðuflokksins greindu frá því á fimmtudag að ákveðið hefði verið að fresta fjöldafundi um helgina, vegna sprengjuhótana. Mikið spennuástand ríkir í stjórnmálum landsins í kjölfar þess að dreift var upptöku úr ræðu forsætisráðherrans þar sem hann talaði um að stjórnarliðar hefðu logið að þjóðinni fyrir þingkosningar í apríl. - aa Ólgan í Ungverjalandi: Mótmælendur færri og rólegri LÖGREGLUMÁL Fimmtíu og tveggja ára gömlum manni, sem var í haldi lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot gagnvart börnum, hefur verið sleppt úr haldi. Maðurinn neitar alfarið sök. Nokkur sex ára gömul börn fóru inn í íbúð mannsins og tilkynntu foreldrar barnanna að hugsanlega hefði maðurinn áreitt börnin kynferðislega. Ekkert hefur komið fram hjá börnunum ennþá sem gefur tilefni til þess að maðurinn hafi beitt þau kynferðis- legu ofbeldi, samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglu. Hörður Jóhannesson, yfirmað- ur rannsóknardeildar lögregl- unnar í Reykjavík, segir yfir- heyrslum yfir börnunum ekki enn lokið. - mh Rannsókn á kynferðisbroti: Karlmanni sleppt úr haldi VARNARMÁL Íslendingar og Bandaríkjamenn gerðu sína mengunarskýrsluna hvorir þar sem segir nákvæmlega hvar þeir telji mengun vera á varnarsvæð- inu og hvert mat manna sé á henni, að sögn Árna Sigfússonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ. Bandaríkja- menn voru nákvæmari en Íslendingar og bentu á marga smærri bletti. Þessir punktar eru um sextíu talsins og eru dreifðir á stóru svæði. Árni telur að í næstu viku verði kynnt áætlað mat á kostnaði Íslendinga og hvernig þeir fái það jafnað upp með eignum á svæðinu. - ghs Árni Sigfússon: Bentu á fleiri mengaða bletti ÁRNI SIGFÚSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.