Fréttablaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 22
22 23. september 2006 LAUGARDAGUR
■ LAUGARDAGUR, 16. SEPTEMBER
Átaksverkefni
Í dag skilst mér að tvö átaksverk-
efni séu í gangi, annars vegar á að
fá Reykvíkinga til að eta fisk en
ekki ket og hins vegar til að hjóla í
stað þess að aka bíl. Hvorttveggja
hið besta mál. En af meðfæddri
þvermóðsku ákvað ég að gera
hvorugt.
Við Sólveig fórum út að borða
og Fjalakötturinn varð fyrir val-
inu. Af því að vegalengdin
þangað að heiman
er innan við 200
metrar neitaði Sól-
veig að leyfa mér
að fara þangað á
bíl, en þegar á stað-
inn var komið gat
hún ekki neytt mig
með sér í fiskátakið.
Ég er reyndar bara
svona þvermóðskufull-
ur á sérstökum átaks-
dögum þegar einhverjir
vilja ráðskast með mig.
Hvunndags þegar ég fæ
að vera í friði með mínar sérviskur
vil ég fremur fisk en kjöt og hjóla
fremur en keyri bíl.
Fjalakötturinn er fínn stað-
ur, það er að segja hugguleg-
ur veitingastaður, maturinn
góður og verðið innan skyn-
samlegra marka.
■ SUNNUDAGUR, 17.
SEPT.
Ljóð verður að
lífgjafa
Í dag var aðal-
fundur Spes.
Foringjarnir í því
félagi, Njörður forseti og
Össur formaður, eru
kraftaverkamenn, því að
nú er lítið ljóð um barn í
Afríku sem Njörður orti
fyrir næstum 40 árum
orðið að lífgjafa afr-
ískra barna, það er
orðið að barnaþorpi í
Lomé í Togo þar sem kátir krakk-
ar njóta góðrar umönnunar.
Meðan deilt er um það fram og
aftur hvort þróunaraðstoð geri
gagn og komist yfirleitt til skila
fer hver einasta króna
sem Spes aflar rak-
leiðis í uppbyggingu
og rekstur barnaþorps-
ins og stjórnarmenn í
samtökunum borga
kostnað
vegna
ferðalaga og
fundahalda
beint úr eigin
vasa.
„Sá sem
bjargar einu
barni bjargar
mannkyninu,“
eru einkunnarorð
Spes.
Þegar ég var orð-
inn uppiskroppa með
ráð til að bjarga
mannkyninu frétti
ég af Spes og finnst
ég ekki alveg jafn
gagnslaus síðan.
Í dag voru kosningar í Svíþjóð
og allt útlit er fyrir að Göran Pers-
son og sósjaldemókratar fái fúlan
bakstur og íhaldið sem Friðrik
Reinfeldt hefur dubbað upp í
félagshyggjumúnderingu og fót-
laga skó taki við stjórn landsins.
Kratarnir hafa bara gott af því
að hvíla sig frá landsstjórninni um
stund. Það er nauðsynlegt fyrir
alla að breyta um
ríkisstjórn af og til.
■ MÁNUDAGUR, 18.
SEPT.
Afmælisbarn í þriðju
persónu
Litla Sól á afmæli í
dag, þriggja ára, sem
er auðvitað merkis-
afmæli. Í heila viku
hefur hún talað um
sig í þriðju persónu
sem „afmælisbarn-
ið“ allar götur síðan
ég álpaðist til að
segja henni að hún
ætti afmæli á næstunni og yrði þar
af leiðandi afmælisbarn.
„Úbs, afmælisbarnið sullaði
niður á sig,“ segir hún og setur upp
hátignarsvip.
Frökenin tók með sér afmæl-
is(súkkulaði)köku á leikskólann í
morgun og í kvöld gerðum við
okkur dagamun þótt afmælishátíð-
in sjálf verði ekki fyrr en um
næstu helgi.
■ ÞRIÐJUDAGUR, 19. SEPT.
Vindurinn sem skekur stráin
Aðalkosturinn við að vera meðlim-
ur í Evrópsku kvikmyndaakademí-
unni er að maður fær á hverju ári
sent úrval af 40 til 50 bestu mynd-
um sem gerðar eru í álfunni.
Tilgangurinn er sá að félagar í
akademíunni kjósi síðan „bestu
myndina“, „besta handritið“,
„besta leikarann“ og svo framveg-
is og svo er haldin hátíð þegar Evr-
ópsku kvikmyndaverðlaunin,
Felix, eru afhent.
Ég er latur að kjósa - nema af
þjóðræknisástæðum.
Ég er samt hræddur um að
þjóðremban verði útundan hjá mér
þetta árið því að í kvöld horfðum
við á mynd eftir einn af mínum
eftirlætisleikstjórum, Ken Loach,
„The Wind That Shakes the Bar-
ley“ (Vindurinn sem skekur strá-
in). Snilldarverk um fólk í
stríðshrjáðu landi sem leiðir hug-
ann að þeim hörmungum sem nú
ganga yfir Írak - og við Íslending-
ar gengumst í ábyrgð fyrir.
■ FIMMTUDAGUR, 21. SEPT.
Hefðbundinn fíflagangur
yfirvalda
Stórfrétt í Fréttablaðinu þar sem
fullyrt er að löggan sé að rannsaka
„mál sem flokkast undir þjóðarör-
yggismál“.
Þetta „þjóðaröryggismál“ snýst
um mann „af erlendum uppruna“
(að sjálfsögðu) sem er talinn hafa
„lagt sig fram um að kynna sér
meðferð sprengiefnis og sprengju-
gerð“.
Mér þótti þetta lúmsk frétt.
Ekki síst vegna þess að fingra-
förin á henni vitnuðu um hefð-
bundinn fíflagang yfirvalda: Fyrst
er fréttinni lekið. Svo vill enginn
kannast við að hafa lekið henni.
Ekki benda á mig. Enginn vill
kannast við neitt. Samt vill enginn
neita neinu. Enginn vill láta hanka
„Forvirkar rannsóknarheimildir“
Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá átaksverkefnum, meðfæddri þvermóðsku, félagshyggjumúnderingu og fótlaga skóm.
Ennfremur er rætt um afmælisbarn í þriðju persónu og undarlega fréttarunu um ógn við öryggi þjóðarinnar.
KJARTAN ÓLAFSSON
KJARTAN
ÓLAFSSON
KJART
AN KJ
ARTAN
SSON
KJARTAN STURLUSON