Fréttablaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 94
23. september 2006 LAUGARDAGUR58
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Venesúela.
2 Fram.
3 Náttmörður.
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT
2 ullarband 6 skammstöfun 8 skaut 9
eldsneyti 11 í röð 12 enginn löngun 14
gorta 16 skammstöfun 17 hækkar 18
bókstafur 20 karlkyn 21 leikni.
LÓÐRÉTT
1 tilraunaupptaka 3 gat 4 stjórnmál 5
angan 7 hóf 10 dýrahljóð 13 áverki 15
sót 16 hugur 19 fyrirtæki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 lopi, 6 eh, 8 pól, 9 mór, 11
lm, 12 ófýsi, 14 státa, 16 þe, 17 rís, 18
emm, 20 kk, 21 list.
LÓÐRÉTT: 1 demó, 3 op, 4 pólitík, 5
ilm, 7 hófsemi, 10 rýt, 13 sár, 15 aska,
16 þel, 19 ms.
„Hún er í strangri þjálfun hjá
okkur,“ sagði Kristína Berman
þegar Fréttablaðið grennslaðist
fyrir um ungbarn á afgreiðslu-
borði Verksmiðjunnar sem vakti
athygli vegfarenda á Skólavörðu-
stíg í vikunni. Kristína er móðir
stúlkunnar og einn af eigendum
Verksmiðjunnar, sem rekin er af
sjö hönnuðum. Þessi yngsta
afgreiðsludama landsins ber nafn-
ið Úlfrún Kristínudóttir og er sjö
mánaða gömul, en Kristína segir
hana þegar hafa vakið nokkra
athygli fyrir störf sín.
„Það voru hérna Bretar áðan
sem mynduðu hana í bak og fyrir,
hún stendur sig svona vel sem
móttökudama,“ segir Kristína
hlæjandi. „Svona er þetta þegar
maður fær ekki pössun, maður
bjargar sér bara,“ bætir hún við
og ítrekar að fólk hafi brugðist vel
við stúlkunni, sem eins og sjá má
er mikil prýði í húsakynnum Verk-
smiðjunnar. - sun
Yngsta afgreiðsludama landsins
KRISTÍNA BERMAN OG ÚLFRÚN KRIST-
ÍNUDÓTTIR Kristína segir Úlfrúnu vera í
starfsþjálfun hjá Verksmiðjunni og hefur
þessi sjö mánaða dama þegar vakið
nokkra athygli fyrir störf sín.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tónlistarkonan Björk Guðmunds-
dóttir ætlar að sigla um strendur
Suður-Afríku næstu vikurnar. Mun
hún jafnframt nýta ferðina í að
semja lög fyrir næstu plötu sína.
Björk er komin með pungapróf eftir
að hafa stundað nám í
siglingafræði og mun
það vafalítið nýtast
henni vel í væntan-
legri för til framandi
stranda. Með í för
verður væntanlega
ný barnfóstra tón-
listarkonunnar, en
eins og Fréttablaðið
hefur greint frá tók Björk áhuga-
samar barnfóstrur í viðtal vegna
starfsins á dögunum.
Einar Örn Benediktsson segir
að Sykurmolarnir, sem spila
í Laugardalshöll í nóvember,
hafi upphaflega ætlað að halda
endurkomutónleika sína á sextíu
manna bar í Reykjavík. Í
viðtali við bandarísku
tónlistarsíðuna
Pitchfork segir hann
jafnframt að þau
hafi beðið fimm aðila
um að hita upp fyrir
sig á tónleikunum og
þeir séu að hugsa
málið. Ítrekar Einar
jafnframt að einungis verði um
þessa einu tónleika að ræða hjá
Sykurmolunum.
„Við erum þrír sem erum að prófa
þetta en enn sem komið er hefur
þetta gengið mjög vel,“ segir
útvarpsmaðurinn og líkamsræktar-
þjálfarinn Ívar Guðmundsson, en
nýtt æði virðist vera í uppsiglingu
hjá þeim Íslendingum sem vilja
koma sér í form. Íslenski laxinn
ætlar nefnilega að verða nýjasta
megrunarlyfið á markaðinum.
„Aðferðin er mjög einföld,“
segir Ívar. „Þú borðar haframjöl í
morgunmat með soðnu vatni og
einni teskeið af próteini,“ útskýrir
útvarpsmaðurinn. „Tveimur og
hálfum tíma seinna borðar þú 80
grömm af laxi, sem síðan verður í
matinn fimm sinnum á dag næstu
sex daga,“ segir líkamsræktar-
þjálfarinn. Meðal þeirra sem hafa
ákveðið að taka líkamsræktina
föstum tökum með þessum nýstár-
lega hætti, að sögn Ívars, er enginn
annar en Sverrir Þór Sverrisson,
sjónvarpsmaðurinn góðkunni, en
hann ætlar augljóslega að koma
sér í gott form fyrir komandi átök.
Átið á laxinum kemur eflaust
mörgum spánskt fyrir sjónir en
þessi aðferð er upprunnin hjá
góðum vini Ívars, vaxtarræktar-
tröllinu Arnari Grant, og segir
Ívar að laxinn innihaldi mikið af
„góðri“ fitu sem segir „vondu“
fitunni stríð á hendur og losar lík-
amann við hana. „Fólk vill oft að
hlutirnir gerist mjög hratt og
menn hafa verið að missa kíló á
dag með þessari aðferð,“ segir
Ívar og telur að þeir sem prófi fái
nú ekki ógeð á þessari vinsælu
afurð. „Ég er
sjálfur á
fimmta
degi og er
enn ekki
búinn að
fá nóg af
laxin-
um,“
segir
Ívar, sem
nýverið
fékk gefins
góðan afla
frá Bubba
Morthens,
beint úr einhverri af betri
laxveiðiám landsins,
þannig að ekki væsir
um kappann.
freyrgigja@fretta-
bladid.is
ÍVAR GUÐMUNDSSON: KYNNIR NÝJA AÐFERÐ Í LÍKAMSRÆKT
Frægir borða lax í
megrunarskyni
LAXINN Hefur öðlast nýtt notagildi hjá
Íslendingum sem ætla að taka líkams-
ræktina alvarlega.
... fær Þorvaldur Þorsteinsson
sem lætur ekki erfið veikindi
buga sig og er snúinn aftur til
starfa.
ÍVAR GUÐMUNDS-
SON Er að prófa nýj-
asta megrunarlyfið á
markaðinum, laxinn,
sem kemur beint úr
íslensku ánum.
ARNAR GRANT Er
hugmyndasmiðurinn á
bakvið þessa nýstárlegu
aðferð sem flýtir fyrir
stríðinu gegn fitunni.
SVERRIR ÞÓR SVERRISSON
Tekur líkamsræktina föstum
tökum og étur lax í hvert mál.
BUBBI MORTHENS Gaf Ívari
lax sem nú er notaður til að
herja á hina vondu fitu en
Bubbi er sjálfur mikill íþrótta-
karl og verður vafalítið forvit-
inn um þessa nýju aðferð.
Stuðmaðurinn Egill Ólafsson fer
á kostum í viðtali við DV í gær þar
sem hann talar um óvelkomnar
heimsóknir hunda á lóð sína. Egill
segir hunda í hverfinu gera þarfir
sínar, stórar og smáar, við inn-
keyrsluna og heimtröðina. Söngvar-
inn og leikarinn kunni er hreint
ekki sáttur: „Ég veit ekki til þess
að ég hafi gert á hlut hunds um
mína daga, en auðvitað má vera
að ég hafi yfirskyggt líf einhvers
hundaeiganda með góli mínu
undangengin rúm þrjátíu ár - nema
hvorttveggja sé,“ segir Egill
og harmar vinnuna sem
fer í að þrífa. „Ég hef nú
gjarnan sópað þessum
harðlífisskít hundsins af
auðmýkt og hugsað
hlýlega til blessaðrar
skepnunar - en
þegar guðsvolað
dýrið skilur við sig
steinsmuguleðju,
þá kárnar gam-
anið - þá þarf
ég að spúla og
skrúbba.“
FRUMSÝND 22.09.06
V
in
ni
ng
ar
v
er
ð
a
af
he
nd
ir
h
já
B
T
S
m
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í S
M
S
k
lú
b
b
. 9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
9.
HV
ER
VI
NN
UR
!
SE
ND
U S
MS
JA
FC
K
Á
NÚ
ME
RIÐ
19
00
ÞÚ
GÆ
TIR
UN
NIÐ
M
IÐA
!
Vin
nin
ga
r e
ru
mið
ar
fyr
ir 2
,
·
DV
D m
ynd
ir o
g m
arg
t fl
eir
a
MOBILE
Kvikmyndaleikstjórinn Friðrik
Þór Friðriksson var viðstaddur
forsýningu kvikmyndarinnar
Direktøren for det hele, sem er
nýjasta afurð furðufuglsins og
sérvitringsins Lars Von Trier,
en Friðrik leikur stórt hlutverk
í myndinni. Fullt var út úr húsi
í einu stærsta kvikmyndahúsi
heims, sem tekur í kringum
fjórtán hundruð gesti í sæti, en
þetta er í fyrsta skipti sem Trier
frumsýnir mynd í Danmörku.
Direktøren for det hele er
meðal annars merkileg fyrir þær
sakir að hún fjallar um inn-
rás íslenskra viðskipta-
manna í Danmörku og lýsti
Trier því nýlega yfir í viðtali við
breska blaðið The Guardian að
hann væri ugg-
andi yfir
útrás
þessar-
ar
fyrrverandi nýlendu konungs-
veldisins. „Allir Íslending-
ar hata Dani og Dan-
mörku fyrir að hafa
þurft að lúta stjórn
landsins,“ sagði von
Trier við The
Guardian.
Friðrik Þór leikur í
myndinni íslenskan við-
skiptajöfur sem hyggst
söðla undir sig danskt
fyrirtæki og var
leikstjórinn sátt-
ur við frammi-
stöðu sína.
„Þessi leik-
stjórar eyðileggja alltaf þetta fína
sem við leikararnir gerum,“ segir
hann og hlær. „Von Trier er alltaf
að finna upp á einhverju sem
gerir kvikmyndagerð erfiða,“
segir Friðrik. „Hann hafði tölvu
sem stjórnaði tökunum að mestu
leyti, það mátti ekki taka upp
sama vinkilinn tvisvar og leikarar
urðu að leika á fullum krafti þrátt
fyrir að vera ekki í mynd,“
útskýrir Friðrik, sem bjóst við því
að koma heim til Íslands áður en
myndin yrði sýnd hér á landi en
The Boss of it All mun vera loka-
myndin á Alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðinni í Reykjavík.
Trier hræddur, Friðrik sáttur
FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON Var viðstaddur forsýningu
kvikmyndarinnnar The Boss of It All sem segir frá innrás
íslenskra auðjöfra inn í danskt atvinnulíf.
LARS VON TRIER Er hræddur við
íslensku auðjöfrana