Fréttablaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 29
Borgartúni 37 | 105 Reykjavík | s: 569 7700 | f: 569 7799 | nyherji@nyherji.is
www.lenovo.is
1981
1982
1983
1984
1985
1986
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
Nýherji stofnaður með
samruna IBM á Íslandi og
Skrifstofuvéla og verður
umboðsaðili IBM.
IBM kynnir fyrstu
fartölvuna sem
vegur minna en 2kg.
IBM hefur selt
100 milljón tölvur
út um allan heim.
Einkatölvuhluti IBM og
tölvuframleiðandinn Lenovo
renna saman í eitt fyrirtæki
undir nafninu Lenovo.
IBM kynnir fyrstu
einkatölvuna til sögunnar.
Hún var með 4,7MHz
örgjörva og 16K í minni.
Fyrsta færanlega tölva IBM
kemur á markað, hún var
aðeins 14 kg.
Fyrsta fartölvan
frá IBM kemur á markaðinn.
Þetta er fyrsta fartölvan á
markaðnum með litaskjá
og pinnamús.
25 árum síðar víkkar
Lenovo út vörulínuna. Auk
Lenovo ThinkPad kemur
Lenovo 3000 fartölvulínan
á markað sem setur nýja
staðla í gæðum og verðum.
Í tilefni 25
ára afmæl
isins
bjóðum við
25.000 kr
óna
afslátt af
Lenovo
ThinkPad
T60 fartöl
vu
Tilboðsve
rð:
239.900 k
r.
Verð áður:
264.900 k
r.
Nýherji fagnar því að í ár eru
25 ár síðan hóf
tölvubyltinguna með því að
setja fyrstu einkatölvuna á
markaðinn.
Kíktu í verslun Nýherja og
skoðaðu afmælistilboðin.
LAUGARDAGUR 23. september 2006
JÓN ÓLAFSSON
SJÓNVARPS- OG
TÓNLISTARMAÐUR
Fatlafól
„Ég hef náttúrlega heyrt
margar sögur af Hemma. Til
dæmis þessa sem ég veit
ekkert hvort er sönn. En
þessum mönnum er trúandi
til alls. Þannig var að fyrir
mörgum mörgum árum voru
þeir á erlendri grundu þeir
Hemmi og Gylfi Kristinsson
blaðamaður. Líklega verið
þarna saman vegna einhvers
íþróttaviðburðar sem þurfti
að lýsa og skrifa um. Voru í
einhverri flughöfn og rekast
þá á hjólastól. Í góðu fjöri
ákveða þeir að rétt sé að Gylfi
keyri Hemma um í stólnum
sem fatlaður sé. Á einhverju
ákveðnu andartaki keyrir Gylfi
á kant með þeim afleiðingum
að Hemmi dettur úr stólnum.
Drífur að múg og margmenni.
En þá rís Hemmi
upp og segir
hátt og snjallt,
mjög undr-
andi á svip: I
can walk!“
ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON (LADDI) SKEMMTIKRAFTUR
Þekkti mig ekki
sem Elsu Lund
„Það var ansi skondið þegar Elsa Lund kom fyrst
fram á sjónarsviðið. Hemmi kallinn vissi að það var
búið að plata mig til að leika einhverja kellingu
og gera eithvað fyndið. Hann fylgdist hins vegar
ekkert með því þegar ég og Bjössi Emils upp-
tökustjóri bjuggum til gervið. Bjössi ákvað
að við skyldum bara búa til rosa skutlu, sem
varð auðvitað raunin með Elsu. Svo þegar ég
var kominn í gervið réðst ég beint á Hemma, fór
að tala við hann og hanga utan í honum. Hemmi
hreinlega þekkti mig ekki til að byrja með. Smám
saman fór hann að fatta þetta en var aldrei alveg
viss, enda var þetta svo ólíkt mér, rosaleg skvísa
með flottar tennur og svona. Hemma greyinu
fannst þetta mjög óþægilegt og ég auðvitað nýtti
mér það vel, var alltaf utan í honum og káfaði
á honum og fleira. Það er óhætt að segja að
Hemmi var mjög feiminn og óöruggur í fyrstu
tökunum.“
HEMMI GUNN Hemmi er líklega einn hláturmildasti maður landsins og þó víðar væri leitað. Og landsmenn þekkja ekki nema
brot af öllu gríninu.
Og til að rugla
menn í ríminu
enn á Hemmi
nú 3 ára afmæli
hins nýja lífs síns
eða frá því hann
fékk hjartaáfall og
hvarf um hríð til
annarra heima.
„Og nú er ég að
byrja með nýjan þátt. „Í sjöunda
himni“. Og verður ekki annað sagt
en ég hafi kannað þann himinn
nokkuð vel í gegnum tíðina.“
ÓMAR RAGNARSSON SJÓNVARPSMAÐUR
Engan leikaraskap hérna!
„Sögur af Hemma Gunn? Við höfum sko átt nokkrar snerrurnar saman.
Hemmi var einu sinn að spila kappleik með Val á Akureyri. Hann var
algjör snillingur í að sóla varnarmennina og tók eina af sínum þekktu
rispum, plataði hvern leikmanninn á fætur öðrum upp
úr skónum þar til varnarmaður kom og keyrði hann
niður. Hemmi spratt á fætur og horfði á Magnús
Pétursson sem þá var að dæma en hann flautaði
ekkert. Hemmi gekk að Magnúsi og spurði af
hverju hann hefði ekki dæmt neitt, þetta hefði verið
augljóst brot. Magnús brosti bara og sagði að fyrst
Hemmi hefði verið svona snöggur upp væri þetta
varla neitt til að væla yfir. Svo líður á leikinn og
Hemmi tekur aðra rispu, sólar sömu mennina þar
til að sami varnarmaðurinn keyrir hann niður.
Hemmi rúllar eins og leikmenn gera oft í
dag, liggur eftir og þykist vera sárþjáður
en Magnús dæmir ekki neitt. Hemmi
hleypur að honum og segir af hverju
hann hafi ekki dæmt neitt núna. „Heyrðu
karlinn minn,“ svarar Magnús ákveðið. „
Engan leikaraskap hérna!“