Fréttablaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 28
23. september 2006 LAUGARDAGUR28
MAGNÚS KJARTANSSON TÓNLISTARMAÐUR
Margbrotin persóna
„Þegar við fórum af stað með þættina Á tali var honum umhugað að
gera eitthvað nýtt í sjónvarpi. Var því með keppni í skyráti og í sama
þætti, sem var sá fyrsti, kom maður sem ætlaði að sýna þjóðinni hvað
hann væri með vel þjálfaða hunda. Þátturinn fór örugglega tuttugu
mínútur fram yfir áætlaðan dagskrártíma. Þegar þátturinn átti að vera
búinn var fólk enn að borða skyr og hundarnir neituðu að sýna okkur
allar þær listir í beinni útsendingu og þeir höfðu sýnt okkur fyrr um
daginn. Fresta þurfti fréttunum en okkur fannst þetta samt ægilega
fyndið og hlógum mikið.
En einn veturinn sem við vorum með þættina ætlaði ég að gera
svakalegt átak og fara reglulega í sund. Hemmi hafði haft einhvern pata
af þessu fyrirhugaða átaki mínu og hringdi alltaf í mig
þegar ég var að synda. Þá lét hann laugarvörðinn
hlaupa að bakkanum og sækja mig í laugina. Þegar
ég kom upp úr og í símann, rennblautur og kaldur
á skýlunni, fór hann yfir prógramm næsta þáttar
í miklum smáatriðum. Ekki var ég fyrr farinn að
synda aftur en ég sá laugarvörðinn koma hlaupandi
á ný til að sækja mig í símann. Þá þurfti Hemmi
að ræða dagskrá þáttarins enn frekar. Það
varð því ekkert úr þessum fögru fyrirhei-
tum mínum um sundátakið. Ég hef
lengi haft Hemma grunaðan um að
hafa verið að stríða mér, án þess
að hafa nokkurn tíma fengið svör
við þessu.“
HALLDÓR EINARSSON (HENSON) ATHAFNAMAÐUR
Elskaður af ekkju á Ísafirði
„Ég kann ófáar sögur af honum Hermanni en fæstar þeirra eru prenthæ-
far,“ segir Halldór Einarsson, góðvinur Hemma Gunn. „Ég veit eiginlega
ekki hvor sagan fær að flakka þannig að þær fjúka bara báðar,“ bætir
hann við. „Hemmi var að stjórna samkomu á Súðavík og eins og svo oft
áður var töluvert um að myndir væru teknar af honum. Þarna var hins ve-
gar maður sem var alltaf á vappi í kringum sviðið og smellti af í gríð og
erg þannig að Hemma þótti nóg og spurði hverra erinda maðurinn gengi.
Maðurinn sagðist vera að vinna fyrir ekkju á Ísafirði sem hefði einungis
elskað þrjá menn allt sitt líf; manninn sinn sáluga, Elvis Presley og Hem-
ma Gunn,“ segir Halldór. „Hin sagan gerist
hjá Bergi Guðnasyni sem hélt smá teiti
til heiðurs Hemma en hann hafði þá
fengið viðurkenningu fyrir hundrað
landsleiki,“ segir Halldór og heldur
áfram. „Hemmi hafði fengið litla
styttu af manni sem teygði aðra
höndina upp í loft. Þegar vel var
liðið á selskapinn gerðist það að
Hemmi settist á styttuna með þeim
afleiðingum að hún stakkst inn í
ofanvert lærið. Jón H. Karlsson, sem
þá var nýbyrjaður í læknisfræði, fékk
þarna sitt fyrsta verkefni, að girða niður
um Hemma í stofunni og ná
styttunni út. Var haft á orði
að þarna hefði Hemmi
fengið landsleikina í
rassinn á sér.“
BERGUR GUÐNASON
LÖGMAÐUR
Hrekkjusvín
„Hemmi var hrekkjóttur í gamla
daga og gat verið alveg hams-
laus, jafnvel við sína bestu vini.
Hemmi var ágætis eftirherma
og hringir eitt sinn í félaga sinn
Elías Hergeirsson, sem var þá í
stjórn knattspyrnuráðs Reykja-
víkur, og þykist vera Sigurður
Sigurðsson útvarpsmaður, sem
hann náði asskoti vel. Hann
bað Elías að taka saman fyrir
sig úrslit úr öllum knattspyrnu-
leikjum sumarsins; A, B, C og
D lið í öðrum, þriðja, fjórða og
fimmta flokki karla og kvenna.
Hann yrði að fá þetta strax eftir
helgina því hann ætlaði að vera
með sérstakan þátt sem fjallaði
um árangur félaganna í yngri
flokkunum. Þetta var náttúru-
lega svakalegt verkefni, því Elías
þurfti að tína þessar upplýs-
ingar til úr öllum áttum. Ég held
að Hemmi hafi látið aumingja
manninn engjast
í sólarhring áður
en hann hringdi í
hann og sagði að
þetta hefði bara
verið í gamni.“
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR
Kjaftstopp
„Páll Magnússon hafði fengið
Hemma til að lýsa meistara-
deildinni á Sýn og ekkert mál
með það. Hemmi undirbjó
lýsingar sínar af kostgæfni
og skrifaði inngang og svo
framvegis. Hann fékk að vera
á skrifborði Valtýs Bjarnar sem
var einhvers staðar fjarri góðu
gamni. Sími Valtýs hringdi hins
vegar látlaust og var Hemmi
orðinn frekar svona pirraður
á að svara. Og brestur þolin-
mæðina þegar enn og aftur er
spurt um Valtý og segir: „Já,
nei. Hann er ekki við. Hann
fór að kaupa sér skó. Það
er útsala í búðinni Krakkar.“
„Já, vildirðu biðja hann um
að hringa heim þegar hann
kemur. Þetta er konan hans.“
Ekki oft sem Hemmi verður
kjaftstopp
en það
var
þarna.“
RAGNA FOSSBERG SMINKA
Tunglið hans Hemma
„Ég man eftir því þegar Hemmi fór fyrst að fá skalla. Í fyrsta skiptið sem ég
spurði hvort ég ætti að greiða yfir tunglið fékk hann dálítið sjokk og þurfti
að fá spegil til að athuga málið. Honum fannst ég náttúrlega voðalega
ósanngjörn að vera að benda honum á þetta. Svo var þetta gegnum-
gangandi brandari hjá okkur, hvernig tunglið liti út þann og þann
daginn. Þegar hann kom svo aftur til okkar eftir dvölina í Taílandi
hélt ég að hann væri búinn að fá sér einhvern hártopp, hárið á
honum var svo þykkt að framan eitthvað. En svo var víst ekki.“
RAGGI BJARNA SÖNGVARI
Bjó til Þröst og Bíbí
„Hemmi er alveg ótrúlegur grallari og það vita það nú eiginlega flestallir
sem þekkja hann vel. Hann lýgur að manni og ruglar mann upp úr skónum
og hefur óhemju gaman af því. „Þegar við vorum í Sumargleðinni þá var það
heilt sumar að hann bjó til par sem hét Þröstur og Bíbí. Þegar stóru böllin
voru á laugardögum voru þau alltaf að gera einhver ósköp af sér úti í sal sem
Hemmi fann upp á að þau væru að gera. Hann passaði sig alltaf á því að ég
var alltaf niðri í kjallara þar sem maður skiptir um föt. Síðan veinaði hann
á mig og strákabjálfarnir tóku alltaf þátt í þessu. Ég hljóp alltaf upp til að
sjá þetta. Það var svo spennandi að vita hvað þau væru að gera af sér
því hann bjó til alls konar hryllingssögur um það. Og ég upp á þúsund
og beint inn á svið og þá sagði Hemmi alltaf: „Andskotinn, þú ert
nýbúinn að missa af þessu, þau voru að fara út.“ Þetta gerði hann við
mig í heilt sumar og ég fattaði þetta aldrei. Við héldum síðan loka-
partý á Sögu og þá var hlegið alveg óskaplega að þessu.“
Árið 2006 er tímamótaár fyrir Hermann Gunnarsson. Og þar með þjóðina alla. En sá Hemmi sem
þjóðin þekkir af skjánum er aðeins önnur hliðin á peningnum, án þess að hér sé sagt að Hemmi sé
tvöfaldur í roðinu. Ekki eiga allar sögur af Hemma endilega erindi við almenning. Enda Hemmi marg-
brotin persóna og stundum flókin. Fréttablaðið fékk nokkra samferðamenn Hemma til að segja af
honum sögur.
Hér kemur stjórnandi þáttarins...
Heeeeeemmmi Gunnnnnn
UNNUR STEINSSON
ATHAFNAKONA
Systir Heimis
Steinssonar
„Hemmi er náttúrlega einstak-
lega stríðinn og hefur mjög sérstakan
húmor, eins og landsmenn þekkja.
Við unnum saman við þættina Happ
í hendi sem voru sýndir í Sjónvarpinu
á þeim tíma sem Heimir Steinsson var
útvarpsstjóri. Ég var aðstoðarmanneskja
í þáttunum, nýbyrjuð í sjónvarpi og eðli-
lega voðalega viðkvæm fyrir allri stríðni.
Hemmi kynti salinn oft upp með því að
segja brandara fyrir útsendingar og í eitt
skiptið var ég á leið framhjá upptöku-
salnum þegar Hemmi segir:
„Þetta er hún Unnur, systir
hans Heimis. Þannig
fékk hún vinnuna.“ Ég
stóð þarna eins og kjáni
og salurinn gleypti við
þessu. Allir héldu að ég
væri skyld honum. Ég
var í marga mánuði
á eftir að reyna að
leiðrétta þennan
misskilning, meira
að segja við
aðra starfsmenn
sjónvarpsins.“
1966 Fer allt að gerast í lífi Hem-ma sem þá er á 20. aldursári.
Hann lýkur þá Versló
og útskrifast sem bis-
nessmaður. Nokkrum
vikum áður var hann
valinn í landsliðið í
handbolta og spilaði
sinn 1. landsleik við
Pólverja og þá Dani í
undankeppni heims-
meistaramóts. Á miðju
sumri 1966 er Hemmi
valinn aftur í landsliðið
í fótbolta og verður auk þess
Íslandsmeistari með Val í fyrsta
skipti. Þetta sama ár er
hann fastráðinn á Ríkisút-
varpinu - Gömlu gufunni
og var þá með Lög unga
fólksins. Hemmi hefur því
verið 40 ár í útvarpi.
1981 Hemmi er fenginn til
að stjórna Áramótaskaupi
Sjónvarpsins og hófst þar með glæstur
sjónvarpsferill Hemma. Þetta þýðir að
Hemmi á 25 ára starfsafmæli sem sjón-
varpsmaður.
1986 tók Hemmi þátt í stofnun
Bylgjunnar þar sem hann
hefur verið með annan fótinn
síðan.
2006 Og Hemmi mun í desem-
ber hinn 9. verða sextugur!
„Já, með pompi og prakt. Eða...,“
segir Hemmi um komandi afmæli. Flókið
verður að toppa 50 ára afmælið en þá
mættu rúmlega þúsund manns
og 230 skemmtikraftar stigu á
stokk.
„Öll flóran. Allt frá geggjuðu
rokki upp í Karlakór Reykja-
víkur. Q4U og Hljómarnir í upp-
runalegri mynd. Ég hef ekkert
ákveðið enn. Annað hvort læt
ég mig hverfa eða held upp á
það. Það þýðir ekkert kaffi milli
þrjú og fimm.“
ÁRIÐ HANS HEMMA