Fréttablaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 36
[ ]mannlegi
þátturinn
m
an
nl
eg
i
þá
tt
ur
in
n
Nudd er ekki bara fyrir sjúka, heldur virkar líka vel sem
fyrirbyggjandi aðgerð
Höfuðbeina- og spjaldhryggs-
meðferð er heildrænt með-
ferðarform sem á sér rætur
í hefðbundnum vestrænum
vísindum.
Það sem átt er við með höfuð-
beina- og spjaldhryggskerfi, eru
þær himnur sem umlykja mið-
taugakerfið (heili og mæna) og
hafa beinfestu á höfuðbeinum og
spjaldhrygg. Innan þessara himna
er mænuvökvinn sem nærir og
ver miðtaugakerfið. Ef spjald-
beinið situr ekki rétt í mjaðma-
grindinni, eða höfuðið liggur ekki
nákvæmlega rétt á liðflötum efsta
hálsliðar, má búast við röngu álagi
í himnunum sem umlykja mænuna.
Það getur valdið áreiti á allar taug-
ar sem liggja út úr henni og getur
valdið hinum ólíkustu einkennum,
hvar sem er í líkamanum.
Við kjöraðstæður hjá heilbrigðum
einstaklingi er ekkert sem hindrar
þessa hreyfingu í mænuvökvan-
um, þar af leiðandi er engin hindr-
un á milli miðtauga og úttauga-
kerfis. Margt getur þó farið
úrskeiðis og myndast hindranir,
og þar með erting á taugakerfið.
Höfuðbein geta aflagast vegna
höggs, hnakkabein getur aflagast
á efsta hálslið við fæðingu en slík
skekkja lagast ekki sjálfkrafa.
Mikil staðbundin spenna í band-
vef, vegna sjúkdóma, skurðað-
gerða, höggs, streitu eða annars
konar áfalla getur einnig leitt til
spennu í himnunum.
Meðferðin
Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeð-
ferð fer fram með þeim hætti að í
flestum tilvikum liggur sá er þigg-
ur meðferðina á bekk og er full-
klæddur. Yfirleitt er notaður létt-
ur þrýstingur eða tog sem hefur
að markmiði að meta og með-
höndla himnurnar sem umlykja
miðtaugakerfið. Þessi meðferð
vinnur með líkamanum í að auka
eigin getu til að efla starfsemi
miðtaugakerfisins, minnkar nei-
kvæðar afleiðingar streitu, eflir
almennt heilsufar og eykur við-
nám gegn sjúkdómum. Algengt er
að þessi meðferð taki um klukku-
stund í senn og langflestir finna
fyrir verulega bættri líðan eftir
fyrstu 1-3 skiptin.
Vefræn tilfinningalosun
Vefræn tilfinningalosun er sál-lík-
amleg aðferð sem notuð er til að
aðstoða líkamann við að losa um
vefrænar afleiðingar af áföllum
og neikvæðar tilfinningar sem
þeim tengjast.
Líkaminn geymir oft í sér orku
t.d. reiði eða hræðslu, sem er
afleiðing slysa, meiðsla eða til-
finningalegs áfalls. Áfallið gerir
það að verkum að líkaminn geym-
ir orkuna á einhverjum stað í lík-
amanum og myndar það sem kall-
að er orkumein (energy cyst).
Heilbrigður líkami getur aðlag-
ast slíkum orkumeinum en eftir
því sem árin líða minnkar aðlög-
unarhæfni líkamans og þá koma
fram einkenni sem sífellt er erfið-
ara að horfa framhjá eða halda
niðri. Vefræn tilfinningalosun fer
þannig fram að slík orkumein eru
fundin, losað er um þau og við-
komandi fer í gegnum áfallið og
vinnur þannig úr því. Þessi með-
ferð hefur reynst afskaplega vel
við meðferð á PTSD (Post Trau-
matic Stress Disorder) eða áfalla-
röskun eins og það er kallað á
íslensku.
Efni, orka og andi
Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð
má einnig nota á börn með góðum
árangri.NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Hjón á miðjum aldri óska eftir svefni
Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeð-
ferð hefur verið að þróast alla síð-
ustu öld út frá vinnu og uppgötv-
unum þriggja lækna; A.T. Still,
William Sutherland og Dr John E.
Upledger.
A.T. Still (1828-1917) missti
þrjú barna sinna þegar þau veikt-
ust af heilahimnubólgu. Hann áleit
þau hafa dáið af meðferðinni en
ekki sjúkdómnum sjálfum. Hann
hneigðist í átt að náttúrulækning-
um eftir þá erfiðu reynslu. Hann
lagði mikla áherslu á að líkaminn
væri ein eining eða heild og að
uppbygg-
ing líkam-
ans og
starfsemi
hans væru
nátengd.
Hann leit á
líkamann sem
kerfi með
sjálflækn-
andi eigin-
leika, því
minna sem
gripið sé inn í
starfsemina
þeim mun
betur gangi
að læknast.
Hann komst
einnig að
þeirri niðurstöðu að sum lyf væru
hættuleg.
Dr. John Upledger, prófessor í
lífaflsfræði, leiddi teymi af líf-
fræðingum, lífeðlisfræðingum og
lífefnaverkfræðingum og þróaði
CranioSacral-meðferðina á árun-
um 1975 til 1980, eftir mikla rann-
sóknarvinnu. Niðurstaða Dr.
Upledgers var sú að árangursrík
meðferðarvinna yrði að taka til
allra mannlegra þátta, jafnt lík-
amlegra sem andlegra þátta. Mað-
urinn er ein heild og þannig beri
að meðhöndla hann.
Saga og þróun
Við kynnumst Erlu Ólafsdóttur sjúkra-
þjálfara og hennar leið frá hefðbundu
meðferðarformi yfir í heildrænar
lækningar.
Ragnar Stefánsson rafmagns-
verkfræðingur segist hafa orðið fyrir
kraftaverki á bekknum hjá Erlu.
Þórey Edda Elíasdóttir, stangar-
stökkvari og afreksíþróttakona, segir
okkur frá reynslu sinni af höfuðbeina-
og spjaldhryggsmeðferð í vatni.
Vilhjálmur K. Stefánsson lögreglu-
þjónn líkir upplifun sinni af meðferð-
inni við alsæluástand.
MANNLEGI ÞÁTTURINN ER Á DAGSKRÁ NFS OG TALSVÖÐVARINNAR Í DAG KL. 10.10
A.T. Still upp-
hafsmaður
höfuðbeina
og spjald-
hryggjarmeð-
ferðar.
John Upledger hefur
þróað meðferðina á
síðustu árum.
í dag Höfuðbeina- og spjaldhryggs-meðferð hefur m.a. reynst
árangursrík við eftirfarandi:
• Mígreni
• Krónískum háls- og bakverkjum
• Heila- og mænuskaða
• Örðugleikum í stjórnun hreyfinga
• Streitu- og streitutengdum vandamál-
um
• Kjálka- og bitvandamálum
• Hryggskekkju
• Síþreytu
• Taugavandamálum
• Námsörðugleikum
• Ofvirkni
• Vefjagikt
• Áfallaröskun
• Vandamálum í ónæmiskerfinu
• Vefjavandamálum eftir skurðaðgerðir
• Vanlíðan ungbarna
Mannlegi þátturinn
ÁSDÍS OLSEN
Eftir að ég fæddi þriðju dóttur
mína var ég að drepast í mjöðm-
unum. Ég fann til í hverju
skrefi og haltraði um eins og
útbrunnin hornkerling sem les
í skrokkinn á sér eins og veður-
kort og finnur á mjöðminni ef
lægð er á leiðinni. Ég sá fyrir
mér lífið í eldhúskróknum þar
sem ég reri fram í gráðið og
nuddaði lífi í skrokkinn á
morgnana. Velti því líka fyrir
mér hvort almættið væri að
kyrrsetja mig svo ég gæti betur
sinnt eldhússtörfunum. Svo ég
leitaði mér hjálpar hjá heimil-
islækninum sem vísaði mér í
sjúkraþjálfun. Ég fór í bylgjur
og hita og nudd og teygjur − í
marga mánuði haltraði ég upp
stigann til að komast í sjúkra-
þjálfun og ég haltraði niður
stigann aftur.
Einn dag í sjálfsvorkun og
vonleysi datt mér í hug að fara
í nudd. Ég pantaði tíma hjá
nuddara í Baðhúsi Lindu og
bjóst við ilmolíum, góðri slök-
un og notalegheitum. En áður
en ég veit af er nuddkonan
komin upp á bekkinn til mín
þar sem hún hamast á mjöðm-
unum á mér eins og bestía.
Þetta var ekki alveg það sem ég
hafði átt von á frá þessar við-
mótsþýðu ungu konu. En krafta-
verkið gerist! Allt í einu var
eins og gysi upp úr mjöðmun-
um áþreifanlegur kuldi − ég
fann kuldann yfirgefa mig og
svífa burt og síðan streymdi
hiti um mig eins og kveikt hefði
verið bál inni í mér. Og ég var
útgrátin og agndofa − skildi
ekki hvað hafði komið fyrir
mig.
Ég hef aldrei fundið til í
mjöðmunum síðan. Og enn
þann dag í dag − þó að ekkert sé
að mér − fer ég stundum í nudd
til Unnar – og kannski er það
einmitt þess vegna sem ekkert
er að mér.
Nema hvað – það var enginn
galdur sem ég upplifði. Ég
hafði bara kynnst því á eigin
skinni að líkaminn er meira en
efni. Við erum líka orka. Ný
uppgötvun fyrir mig, sem er
alin upp við vestræna vísinda-
hyggju, en aldagamall sann-
leikur í Indlandi og Kína.
Þegar fjórða stelpan mín
mætti í þennan heim var hún
ekki viss um að þetta væri
öruggur staður. Strax í móður-
kviði hafði hún upplifað kvíða-
kast hjá móður sinni. Hún hafði
tekið til sín ótta og spennu ... og
kannski svolítið óæskilega
mynd af jarðlífinu. Sú litla taldi
því öruggast að vera við brjóst-
ið á mömmu sinni. Hún var ekki
viss um að það væri óhætt að
sofna og svaf því lítið og stutt í
einu og hún átti það til að
hrökkva upp með harmkvælum
eins og skrattinn hefði birst
henni. Þegar ég bar mig upp
við ungbarnaverndina á heilsu-
gæslunni var mér sagt að láta
barnið gráta sig í svefn. Ég hélt
nú ekki – ég hafði aldrei heyrt
annað eins bull.
Nú voru góð ráð dýr því við
hjónin, komin á miðjan aldur,
þurftum endilega að fá svefn
hvað úr hverju. Ég fór að
spyrjast fyrir og leita lausna í
óhefðbundna geiranum – þó
með allan vara á. Ætlaði ekki
að taka neina sjensa með þetta
viðkvæma blóm sem mér
hafði verið treyst fyrir. Snorri
sundkennari er traustur
maður og sagðist hafa heyrt
vel látið af konu sem tæki
börn í höfuðbeina- og spjald-
hryggsmeðferð. Og hún væri
enginn kuklari, heldur sjúkra-
þjálfari sem hefði traustan
grunn í anatómíu og lífefna-
fræði.
Við hjónin mættum bæði
með snúllu á stofuna til Erlu
uppi í Mosfellsbæ. Sú stutta í
fanginu á mér og við skoðuðum
bók. Erla var með lokuð augun
og hélt um hana miðja. Þegar
tíminn var búinn var barnið
uppgefið og hún svaf lengur en
nokkru sinnum fyrr. Það var
eins og slaknað hefði á henni og
henni leið betur. Eftir annan
tímann var komið nýtt öryggi í
barnið og hún svaf heila nótt í
fyrsta skiptið.
Heilun og Slökun
Tilvalið fyrir þá sem eiga erfi tt með svefn og
andlega vellíðan Jafn fyrir unga sem aldna
Pantið tíma í síma 845 4890
-Magnús
Þú getur byrjað hvenær sem er
Morguntímar 7:15-8:15
Til að auka afköstin
Hádegistímar 12:00-12:50
Til að endurnýja orkuna
Kvöldtímar 20:00-21:00
Til að láta sér líða vel
Engjateigur 5, 2.hæð, S:553-0203, www.yogashala.is,
yoga@yogashala.is , . Frír prufutími