Fréttablaðið - 23.09.2006, Síða 24
23. september 2006 LAUGARDAGUR24
„Ég neita því ekki að ég varð mjög
glaður að fá þessi verðlaun,“ segir
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
stjórnarformaður Trygginga-
miðstöðvarinnar, sem valinn hefur
verið stjórnarformaður ársins 2006. Í
fyrsta sinn er nú stjórnarformaður
ársins valinn með formlegum hætti
hér á landi.
Jón Sigurðsson, viðskipta- og
iðnaðarráðherra, afhenti Gunnlaugi
verðlaunin á Nordica hóteli á fimmtu-
dag en Gunnlaugur fékk flest stig í
könnun sem var gerð meðal fram-
kvæmdastjóra og stjórnarmanna á
Íslandi. „Þetta er fyrst og fremst
ánægjulegt þótt það fari kannski minna
fyrir praktísku gildi,“ segir Gunnlaug-
ur, sem hefur verið stjórnarformaður
TM í fjögur ár. Á þeim tíma hefur hagn-
aður félagsins aukist jafnt og þétt og
starfsemi erlendis hefur verið aukin.
Hann telur að stjórnarformenn eigi
að vera íhaldssamir og fastheldnir
frekar en hitt. „Án þess að vera að
hugsa um sjálfan mig, þá held ég að
góður stjórnarformaður þurfi að vera
vel að sér í þeim rekstri sem undir
hann heyrir, hann þarf að hafa ákveðna
sýn á hvert fyrirtækið er að fara og
þarf að geta valið gott fólk til trúnaðar-
starfa í félaginu.“
Verðlaunin eiga sér norska fyrir-
mynd og er tilgangur þeirra að skapa
umræðu, vekja athygli á mikilvægi og
gæðum stjórnarstarfa og stuðla að
bættu viðskiptasiðferði. „Ég held að
það sé alltaf ágætt að reyna að bæta
hluti og stuðla að betra viðskipta-
siðferði. Ég held að stjórnarstörf á
Íslandi hafi tekið miklum framförum á
undanförnum árum. Vinnubrögð eru
orðin agaðri og stjórnarmenn betur
upplýstir en áður var og virkari í störf-
um. Ég held að það eigi almennt við um
fyrirtæki á Íslandi.“
Þótt stoltur sé af verðlaununum
kveðst Gunnlaugur Sævar ekki ætla að
halda sérstaklega upp á að vera orðinn
stjórnarformaður ársins. „Ég tek þessu
með stóískri ró.“ bergsteinn@frettabladid.is
GUNNLAUGUR SÆVAR GUNNLAUGSSON: STJÓRNARFORMAÐUR ÁRSINS
Tekur þessu með stóískri ró
GUNNLAUGUR SÆVAR Hefur verið stjórnarformaður TM undanfarin fjögur ár. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Í tilefni af 150 ára fæðingar-
afmæli séra Jónasar Jónas-
sonar frá Hrafnagili í ár
var opnuð sýning honum til
heiðurs í Þjóðarbókhlöð-
unni í gær undir yfirskrift-
inni Sú þrá að þekkja og
nema ... Í dag fer enn frem-
ur fram málþing um séra
Jónas og verk hans.
Jónas fæddist 4. ágúst
1856 á Úlfá í Eyjafjarðar-
dal, sonur hjónanna Guð-
ríðar Jónasdóttur og Jónas-
ar Jónssonar. Hann lauk
embættisprófi 1883, tók
prestsvígslu og þjónaði í
Grundarþingum í Eyjafirði
í um 25 ár. Seinna starfaði
Jónas sem kennari við
Gagnfræðaskólann á Akur-
eyri. Árið 1915 stóð séra
Jónas fyrir heimildasöfnun
um þjóðhætti, þjóðsiði, trú
og venjur hér á landi.
Afrakstur söfnunarinnar
kom út í bókinni Íslenskir
þjóðhættir sem fyrst var
gefin út árið 1934 og er ein
verðmætasta heimild okkar
um íslenskan menningar-
arf.
Á málþinginu flytja sex
fyrirlesarar jafnmörg
erindi um Jónas. Farið
verður vítt og breitt um
sviðið, meðal annars verð-
ur fjallað um ævi hans og
fjölskylduhagi og verk hans
sett í alþjóðlegt samhengi.
Málþingið fer fram í
Þjóðarbókhlöðunni og hefst
klukkan 13. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Nánari upplýsingar um
dagskrána má finna á
heimasíðu Þjóðarbókhlöð-
unnar, bok.hi.is.
Séra Jónasar frá
Hrafnagili minnst
JÓNAS FRÁ HRAFNAGILI Tók saman íslenska þjóðhætti og gaf út í
samnefndu riti.
MERKISATBURÐIR
951 Ottó mikli verður konungur
Ítalíu.
1241 Snorri Sturluson er veginn í
Reykholti.
1719 Liechtenstein lýsir yfir
sjálfstæði frá Þýskalandi.
1835 Skipið HMS Beagle, með
Charles Darwin um borð,
siglir til Karlseyju í Galapagos-
eyjaklasanum.
1942 Sovétmenn snúa vörn í sókn í
Stalíngrad.
1943 Tæplega 300
lögskilnaðarsinnar afhenda
Alþingi áskorun um að ganga
ekki frá sambandsslitum við
Dani að svo stöddu.
1973 Fellibylurinn Ellen gengur yfir
Ísland.
1994 Minnismerki afhjúpað
á Öxnadalsheiði í tilefni
þess að allur vegurinn milli
Akureyrar og Reykjavíkur
hefur verið malbikaður.
SIGMUND FREUD (1856-1939)
LÉST Á ÞESSUM DEGI.
„Siðmenningin hófst þegar einhver sem
reiddist bölvaði og skammaðist í stað
þess að kasta grjóti.“
Sálfræðingurinn austurríski er oftar en ekki nefndur
faðir sálgreiningarinnar.
Elskulegur sonur okkar, faðir, unnusti,
bróðir, barnabarn og frændi,
Kári Breiðfjörð Ágústsson
Flúðaseli 74, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, mánudaginn
25. september kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda,
Kolbrún Ólafsdóttir Hörður Eiðsson
Ágúst Elbergsson Árný B. Kristinsdóttir
María Erla B. Káradóttir
Emma Kolbrún B. Káradóttir
Snædís Sól B. Káradóttir
Loredo Castilla.
AFMÆLI
Hjálmar H. Ragn-
arsson, tónskáld
og rektor, er 54
ára.
Friðþór Eydal,
upplýsingafulltrúi
Varnarliðsins, er
54 ára.
Bragi Guðbrands-
son, forstjóri
Barnaverndar-
stofu, er 53 ára.
Á þessum degi árið 1846 upp-
götvaði þýski stjörnufræðing-
urinn Johann Gottfried Galle
reikistjörnuna Neptúnus.
Neptúnus er áttunda plánetan
frá sólu. Franski stjörnufræð-
ingurinn Urbain-Jean-Joseph
Le Verrier setti upphaflega
fram kenningu um tilvist
plánetunnar og mældi stað-
setningu hennar með því að
reikna út jafnvægissveiflur í
hreyfingum Úranusar. Hinn
23. september árið 1846
lét Le Verrier Galle vita af
niðurstöðum sínum og sama
kvöld kom sá síðarnefndi auga
á reikistjörnuna frá stjörnuskoðunarstöð sinni í
Berlín. Á rúmum sólarhring mældi stjörnufræðing-
urinn hreyfingar plánetunnar
í samanburði við stjörnur í
bakgrunni og staðfestu þær
athuganir að um reikistjörnu
væri að ræða.
Ummál Neptúnusar er fjórum
sinnum meira en ummál jarð-
ar. Plánetan er umlukin bláu
gasi og er nafn hennar dregið
af rómverska sjávarguðinum
Neptúnusi. Fimm hringir eru
umhverfis reikistjörnuna, þrír
bjartir og tveir dimmir og af
átta tunglum hennar er Tríton
það stærsta. Það tekur hana
165 ár að fara einn hring
umhverfis sólu. Árið 1989 kom
fyrsta geimfarið frá jörðu til Neptúnusar en það var
bandaríska geimfarið Voyager 2.
ÞETTA GERÐIST: 23. SEPTEMBER 1846
Neptúnus kemur í leitirnar
NEPTÚNUS
„Ég er alveg í skýjunum,“ segir Erla Ósk Ásgeirsdóttir, sem
kjörin var formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjavík, á fimmtudagskvöld. Erna hlaut 772
atkvæði á móti 692 atkvæðum Heiðrúnar Lindar Marteins-
dóttur, en aldrei hafa jafn mörg atkvæði verið greidd á aðal-
fundi Heimdallar.
Erla boðar nýjar áherslur en þó ekki róttækar breyting-
ar í starfi félagsins. „Undanfarin tvö ár hefur verið unnið
öflugt starf sem við viljum halda áfram. Við ætlum hins
vegar að víkka út málefnasviðin þannig að flestir geti tekið
þátt í starfinu.“
Erla er 28 ára gömul, fædd og uppalin í Stykkishólmi og
stundar meistaranám í stjórnsýslufræðum við Háskóla
Íslands. „Ég á lokaritgerðina eftir og fer að hella mér í
hana, auk þess sem ég vinn hjá markaðsdeild Landsbank-
ans,“ segir Erla Ósk, sem kann félögum sínum og stuðnings-
mönnum bestu þakkir fyrir árangurinn í formannsslagn-
um.
Erla formaður Heimdallar
ERLA ÓSK Boðar nýjar áherslur
en þó ekki róttækar breytingar.
timamot@frettabladid.is
Legsteinar
Kynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur