Fréttablaðið - 23.09.2006, Síða 31

Fréttablaðið - 23.09.2006, Síða 31
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA MANNLEGI BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA TILBOÐ O.FL. Sprengidagar standa yfir í Bílaþingi Heklu, Kletthálsi 11 og hjá umboðsmönnum Heklu á Selfossi, Akureyri og í Reykja- nesbæ. Mikið úrval notaðra bíla á góðu verði. Lokað verður hjá Bílaþingi Heklu á Laugavegi á meðan Sprengidagar standa. Mánudaginn 25. september stendur Ferðafélagið Útivist fyrir göngu um Elliðaárdalinn. Lagt verður af stað kl. 18.00 frá stóra brúna húsinu í dalnum. Gangan tekur rúman klukkutíma. Nánar á www.utivist.is Make up store, snyrtivöruversl- unin, hefur opnað á 3. hæð í Kringlunni. Nýjasta tölublað Útiveru var að koma úr prentun og er á leið til áskrifenda. Þeir sem ekki eru áskrifendur ættu að geta nálgast eintak í stærri bókaverslunum eða á helstu blaðsölustöðum. www.utivera.is ALLT HITT [BÍLAR FERÐIR TÍSKA MANN- LEGI ÞÁTTURINN] Daði Rúnar Jónsson og Gróa Ólöf Þorgeirsdóttir giftu sig í sumar. Brúð- kaupsgestirnir ráku upp stór augu þegar brúðarbíllinn mætti á svæðið en þar var á ferð Mitsubishi Colt frá árinu 1992. „Við vorum búin að segja að brúðarbíllinn yrði fornbíll en enginn af gestunum vissi að það væri okkar fornbíll,“ segir Daði og hlær. Bíllinn er frá 1992 en Daði er búinn að eiga hann í um sjö ár. „Við höfum haldið í þrjú ár að hann væri að gefa upp öndina og alltaf þegar við förum með hann í bifreiða- skoðun höldum við að nú verði hann afskrif- aður,“ segir Daði. „En hann sleppur alltaf í gegn og það er bara eitthvað smotterí að sem auðvelt er að laga.“ Skötuhjúin þorðu varla að fara með bíl- inn í skoðun á þessu ári af ótta við að hann myndi missa af brúðkaupinu. Viti menn, líkt og fyrr flaug bíllinn í gegnum skoðunina og gat því gegnt hlutverki brúðarbíls sem hann gerði með prýði. „Þrátt fyrir skoðunina vorum við búin undir það að hann færi ekki í gang fyrir utan kirkjuna,“ segir Daði. „Við vorum með menn tilbúna í að ýta okkur frá kirkjunni ef með þyrfti.“ Bíllinn er nokkuð breyttur og tóku þær breytingar mið af brúðarhlutverkinu. Í stað farþegasætis fram í er komið bleikt borð fyrir kampavín og búið er að mála bleik hjörtu á hliðar bílsins. Á húddinu er svo stórt hjarta með nöfnum brúðhjónanna og dagsetning brúðkaupsins. Þrátt fyrir áberandi útlit bílsins eru hjónakornin langt frá því að leggja honum. Gróa keyrir um á bílnum sem vekur verð- skuldaða athygli hvar sem hann fer. tryggvi@frettabladid.is Búið er að koma borði fyrir í stað farþegasætis fram í svo hægt sé að sötra kampavín og brúðurin fái nægilegt pláss. Gaman er frá því að segja að Daði kom og sótti Gróu á bílnum á fyrsta stefnumót þeirra. Þá var hann nýbúinn að klessa bílinn en valdi heldur að fara á honum en bíl föður síns. Þar voru nefnilega tveir barnabílstólar í aftursætunum og fannst Daða það ekki líklegt til árangurs. Brúðarbíllinn Krútta Daði og Gróa giftu sig síðastliðið sumar og keyrðu frá kirkjunni í þessum forláta fornbíl. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON MAGNAÐIR MÁLMAR Gull, silfur, brons og hvers kyns málmáferð er það sem koma skal í haust og vetur. TÍSKA 7 GÓÐAN DAG! Í dag er laugardagurinn 23. september, 266. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 7.13 13.20 19.26 Akureyri 6.57 13.05 19.11 H úsgagna Krókháls 10 simi: 557-9510 virka daga frá kl. 9-18 laugardag frá kl. 10-16 Komdu og gerðu góð kaup. Fjölbreytt úrval af nýrri og útlitsgölluðum vörum. Eldhúsinnréttingar NuddstólarSpeglarSófar BorðRafmagnsrúm Rúmgaflar Rýmingarsala HEIMILDARMYND UM KANADAFERÐ Ævintýraleg jeppaferð á slóðir Vilhjálms Stefánssonar. BÍLAR 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.