Fréttablaðið - 23.09.2006, Síða 32

Fréttablaðið - 23.09.2006, Síða 32
[ ]Nú er eins gott að hafa nóg af rúðupissi fyrir rúðurnar. Ökumenn geta lent í blindandi vandræðum þegar sólin skín á skítuga bílrúðuna og brún slikjan varnar mönnum sýn. Hið mikla heimskautafélag vinnur nú að gerð heimildar- myndar um sögulega ferð félagsins á breyttum íslenskum jeppum um norðurslóðir Kan- ada í kjölfar landkönnuðarins Vilhjálms Stefánssonar sem fór um sama svæði á hundasleða fyrir 100 árum. Undirbúningur ferðarinnar tók um fjögur ár og segir Halldór Sveinsson, einn leiðangursmanna, að kostnaðurinn hafi hlaupið á milljónum. „Ferðin var að lang- mestu leyti fjármögnuð af okkur sem í hana fórum. Við vorum reyndar styrktir með fatnaði, við- legubúnaði og fleiru og kunnum góðar þakkir fyrir. En nú erum við að leita að styrkjum og fjármögn- un á heimildarmyndinni til að geta sýnt hana hérlendis og erlendis.“ Ferðin sjálf tók sjö vikur en leiðangursmenn auk Halldórs voru þeir Ómar Friðþjófsson, Karl Rútsson, Kristján Kristjánsson og myndatökumaðurinn Friðþjófur Helgason. Stóran hluta af leiðinni keyrðu þeir á landsvæði þar sem bílar höfðu ekki sést áður og heimamenn, sem höfðu áður sagt að þeim ætti aldrei eftir að takast ætlunarverk sitt, urðu að taka orð sín til baka. „Það stendur allt upp úr eftir þessa ferð,“ segir Halldór. „En hápunkturinn þegar við vorum komnir norðureftir var kannski að vera einhvers staðar þar sem var ekki hægt að snúa við en samt vissi maður ekki hvort olían dygði á næsta áfangastað. Það var tauga- trekkjandi á köflum. Við fórum á staði sem Vilhjálm- ur hafði farið á og hugsuðum oft til hans; að vera á þessum stað í 40 stiga frosti, einn á hundasleða. Það er örugglega magnað. Nánast allir í norðurhéruðunum höfðu heyrt um hann og við hittum afkomend- ur hans í Inuvik. Lokapunkturinn á ferðinni var formlega á Íslend- ingaslóðum í Gimli þar sem okkur var úthlutaður salur og með eins dags fyrirvara komu hátt í tvö- hundurð manns til að heyra ferða- söguna og sjá myndir, bæði Vest- ur-Íslendingar og aðrir sem búa þar,“ segir Halldór. „Það hefur enginn farið um þetta svæði áður með þessum ferðamáta. Þarna eru notaðir hundasleðar og vélsleðar en þeir síðarnefndu eru ekki sérstaklega góður kostur þar sem maður þarf að bera svo mikið bensín með sér. Allir á svæðinu sögðu að við kæm- umst þetta aldrei, við fengum aldrei hvatningu, sama við hvern við töluðum. Svo fengum við bréf frá sama fólki eftirá sem sagði okkur hafa sýnt fram á að það væri hægt að ferðast um landið á „þægilegan“ máta. Okkur var samt alls staðar vel tekið þó að fólk væri hissa að sjá okkur á svona bílum. Íbúarnir höfðu gríðarlega mikinn áhuga á þeim en fólk sem býr þarna hefur svo takmarkað fé á milli handanna að það verður langt þangað til það getur farið að gera út svona tæki þarna. Þeim fannst líka skrítið að við værum að fara þetta að gamni okkar. Þarna er ekkert verið að þvælast neitt nema til að fara á veiðar. Það er ekkert grín í gangi, bara það sem er nauðsynlegt.“ Halldór segir ferðina hafa verið mjög frábrugðna vetrar- ferðum á íslenska hálendið. „Frost- ið og kuldinn er svo gígantískt. Snjórinn er allt öðruvísi og svo er þetta mikil ískeyrsla, bæði á frosnu hafi og vatni, sem maður stundar ekki hér. Það er dálítið ógnvekjandi, að vera úti á miðjum flóa einhvers staðar og sjá sprung- ur í ísnum. Það kom adrenalín- flæðinu af stað, enda margir tugir kílómetra í land,“ segir Halldór að lokum. Þeim sem hafa áhuga á að fjár- magna eða styrkja heimildar- myndina er bent á netfangið info@arctictrails.is einareli@frettabladid.is Búðir ísbjarnaveiðimanna. Bílarnir sem notaðir voru í ferðina voru Ford F350 á 46“ dekkjum. Hér er verið að brjótast í gegnum íshröngl við Smokey Hills. Við minnisvarða um Vilhjálm Stefánsson í Manitoba. Karl Rútsson, Halldór Sveinsson, Kristján Kristjánsson, Ómar Friðþjófsson og Friðþjóf- ur Helgason. LJÓSMYNDIR/HALLDÓR STEFÁNSSON Heimildarmynd um Kanadaferð Opið virka daga 8-18 Gabriel höggdeyfar, AISIN kúplingssett, TRISCAN spindilkúlur, stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir. Tímareimar, ökuljós, stefnuljós ofl. Sætaáklæði, sætahlífar á stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl. Kerruljós, bretti og nef- hjól á kerrur. Bílamottur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.